Tímarit Máls og menningar - 01.06.1960, Page 80
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Ekkert getur komið í veg fyrir ris
rússneskunnar meðal mikilvægustu
stórtungumála heimsins. í þessum
kringumstæðum getur ekkert nema
tilbúið tungumál tryggt víðtæk alls-
herjarsamskipti á jafnfréttisgrund-
velli milli allra jrjóða. Einkum er
þetta atriði afar mikilvægt fyrir smá-
þjóðirnar. Ef lifandi, erlent tungumál
kemst í ráðandi aðstöðu í lifi smá-
þjóðar, útrýmir það smátt og smátt
þjóðlegri menningu hennar. Því að
það skyldi enginn ætla, að hin er-
lenda tunga komi aðeins sem tungu-
mál, hún flytur ineð sér menningu
sína, ])ví að mál og menning verða
ekki aðskilin, eins og ég gat um áðan.
Af þessari ástæðu ættu einkum þær
smáþjóðir, sem annt er um sjálfstæði
sitt, að taka hugmyndinni um tilbúið
alþjóðamál með skilningi og velvild.
Hinn sjálfbirgingslegi eldmóður okk-
ar Evrópumanna, sem höfum gengið
með ])á grillu, að evrópsk menning
hæfði og nægði öllum þjóðum heims-
ins, hefur fengið rækilega kælingu
upp á síðkastið. Við höfum orðið að
gera okkur Ijóst, að vakning þjóða
hlýtur fyrst og fremst að vera reist á
þeirra eigin menningarerfð, sem í
sumum tilvikum á sér miklu eldri sögu
en okkar. Þó má finna þau svið, þar
sem evrópsk menning er í raun og
veru almennt viðurkennd sem alls-
herjarhæf. Ég á hér við tækni og vís-
indi. Engin þjóð getur talizt fullgild á
heimsmælikvarða, nema hún hafi til-
einkað sér þessa ávexti evrópskrar
menningar. Og þar sem orðabók tækni
og vísinda er fyrst og fremst af grísk-
um og latneskum rótum, má segja, að
tilbúið tungumál, sem orðfræðilega er
sprottið úr þeim jarðvegi, bafi frum-
borinn rétt til allsherjarnotkunar.
Lausn heimstunguvandans er i
hönduin stjórnmálamanna, en ekki
málfræðinga. Esperantistar hafa sýnt
með hinu fórnarríka hugsjónastarfi
sínu, að tækið — málið — er tilbúið,
gert á réttum forsendum. Það er
hörmulegt, að þeir, sem ráða örlögum
þjóðanna, hafa svo lítið sinnt þessuin
málum. Árið 1886 sagði Friedrich
Nietzsche þegar fyrir, að í framtíð-
inni myndi nýtt mál samið, sem fyrst
yrði notað í verzlunarviðskiptum og
síðan hvers konar vitrænu samstarfi
allra þjóða. Þetta sagði hann að væri
jafn víst og að flugferðir yrðu ein-
hverntíma raunveruleg staðreynd.
Flugið er nú orðið hversdagslegt fyr-
irbæri, en heimstungumálið býður
ennþá sinnar brýnu lausnar. Svo virð-
ist nú sem mennirnir muni fyrr rata
gegnum geiminn til annarra hnatta en
greiðustu leiðina til nágranna sinna.
Ræð'a flntt 20. sept. 1959 í háskólanum í
Helsinki á minningarhátíð um 100. ártíð dr.
Zamenhofs, höfundar Esperantos. Próf. dr.
Paavo Ravila er fyrrverandi rektor háskól-
ans í Helsinki og félagi í Akademíu Finn-
lands.
tíaldur Ragnarsson þýddi.
222