Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1973, Side 91

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1973, Side 91
AlþjóSlegi bankinn framkvæmdastjórum bankans yrði falið að semja stofnskrá Alþjóðlegra þróunarsam- taka. Stofnskráin var lögð fyrir ríkisstjórn- ir þessar til staðfestingar í janúar 1960. í stofnskránni var kveðið svo á, að einungis ríkisstjómir aðila að bankanum ættu kost á aðild að samtökunum og kveðið svo á, að upphaflegar fyrirskriftir höfuðstóls skyldu nema $ 1.000 milljónum ef allir aðilar bankans yrðu aðilar að samtökunum þegar í upphafi." (Bls. 3—4). Skipulagi Alþjóðlegu þróunarsamtak- anna er þannig lýst í fyrstu ársskýrslu þeirra: „Að fyrirmælum stofnskrárinnar skiptust meðlimir samtakanna í tvær deild- ir: Deild I skipa lönd, sem atvinnulega era fremur langt á veg komin; og deild II skipa lönd, sem (atvinnulega) teljast ekki langt á veg komin. í deildunum tveimur eru fyrirskriftir höfuðstóls reiddar af hendi að ólíkum hætti. Lönd í deild I inna upp- haflega 23 hundraðshluta af hendi og greiða eftirstöðvamar í fjórum jöfnum afborgunum; öllu þessu fé er auðskipt í aðra gjaldmiðla. Lönd í deild II greiða einnig framlög sín á grundvelli afborgana; en aðeins 10 hundraðshluta þeirra, — að hálfu í upphafi og að hálfu í fjórum jöfn- um afborgunum, — í fé, sem auðskipt er í aðra gjaldmiðla. Eftirstöðvaraar eru greidd- ar í eigin gjaldmiðli aðila, og Alþjóðlegu þróunarsamtökin geta ekki gripið til þeirra án samþykkis aðila. — Löndum í deild I er ætlað að leggja Alþjóðlegu þróunarsam- tökunum til fé, þótt samtökin megi leggja fram lánsfé til framkvæmda á landssvæð- um, sem lúta þeim eða eru háð þeim. OIl lönd í deild II eru hlutgeng til lántöku í Alþjóðlegu þróunarsamtökunum; sum land- anna, sem fyrirgreiðslu njóta, hljóta að nokkru lán frá bankanum og að nokkru innstæður hjá samtökunum, en önnur þeirra hljóta einvörðungu innstæður hjá sam- tökunum. ... Þótt Alþjóðlegu þróunarsam- tökin séu persóna að lögum með eigin fjárráð, eru þau nátengd bankanum. Aðild- arlönd að bæði bankanum og samtökunum hafa hina sömu stjórnarnefndarmenn í báð- um. Forseti bankans er ex ojficio forseti Alþjóðlegu þróunarsamtakanna og starfs- lið bankans vinnur jöfnum höndum sem starfslið samtakanna.“ (Bls. 4—5). Alþjóðlegu þróunarsamtökin hafa fylgt í fótspor bankans um lánveitingar. Um- sóknir um lán hafa þau metið á mælikvarða bankans. Og að hætti bankans hafa þau haft hönd í bagga um framkvæmdir, sem þau lána fé til. Samtökin krefjast einnig ríkisábyrgðar á lánum sínum. Hins vegar eru lánsskilmálar samtakanna vægari en bankans. Og þau geta hliðrar þeim til, eins og efni og ástæður lánatakenda segja til. Þá einskorða samtökin ekki lán sín við erlendan tilkostnað framkvæmda, heldur veita einnig lán til greiðslu á innlendum tilkostnaði þeirra. Alþjóðlegu þróunarsamtökin höfðu veitt alls 77 lán, að upphæð $ 1.088 milljónir, þegar liðið var fram á mitt ár 1965. Sam- tökin hafa að jafnaði veitt lán til 50 ára og með lágum vöxtum og að auki með 10 ára upphaflegum greiðslufresti. Sakir þess- ara vægu lánaskilmála hafa þau hvorki getað framselt skuldaviðurkenningar sínar né gefið út verðbréf, þótt þau hafi heimild til hvors tveggja. Þau urðu þess vegna að leita til auðugra aðila sinna árið 1963 um ný framlög, að upphæð $ 750 milljónir. Bankinn hefur einnig lagt samtökunum til tvö framlög, að upphæð $ 50 og $ 75 millj- ónir. xiii. Lánveitingar bankans 1951—1965 Fram til miðs árs 1965 námu lánveit- ingar Alþjóðlega bankans og dótturstofn- ana hans tveggja alls nálega $ 10 milljörð- um. Á eigin reikning hafði bankinn veitt 424 lán til 77 Ianda, að upphæð S 8.9 millj- 201
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.