Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Síða 38

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Síða 38
Tímarit Máls og menningar Hún gat ekki ímyndað sér að nokkur hefði fleygt þessu djásni. En hver hefur týnt honum? spurðum við öll undrandi með augunum. Við horfðum ráðþrota á hanskann. Ekki þurfti að leiða getum að því, að einhver grindvíkingur hefði týnt jafn dýrmætum hanska. Fólk týndi yfir höfuð aldrei neinu og fann þess vegna fátt. Við börnin fundum þó stöku dósir, reknar á fjöru frá fjarlægum löndum, og kannski stöku bindisnælu fyrir utan sjóbúð á annan í páskum. Þann dag höfðu sjómenn fyrir sið að drekka og berjast með báðum hnefum og brjóta kjaftana hver á öðrum. í slíkum slagsmálum datt oft af þeim bindisnælan og greiðan. Páskarnir voru löngu liðnir og komið fram á sumar. Fundni hanskinn var þess vegna hrein ráðgáta og annars konar ytri vandi en við áttum að venjast. A þessum árum lagði aldrei fint, hanskaklætt fólk leið sína til Grindavíkur, síst í austurhverfið til okkar. Þar lét aðkomufólk ekki sjá sig, að ótalinni konunni sem barði oft að dyrum i byrjun sumars. Hún kom þeirra erinda að selja fólki slitin föt af betri borgurum í Reykjavík, en þó einkum af sonum þeirra. Þeir voru allir við nám. Konan var heldur óvelkomin hjá okkur strákunum. Óvinsældirnar og jafnvel hatrið til hennar stöfuðu einkum af því að sportjakkafötum hinna menntuðu borgarabarna fylgdu oftast pokabuxur, buxur sem voru sambland af poka og pilsi. I þannig flík vildum við ekki fara, af ótta við að hinir eldri og reyndu færu að efast um kynferðið og kvelja okkur. Betri borgarar og börn þeirra komu kannski aldrei til Grindavíkur til að ganga um fjörur um helgar og tína skeljar af ótta við að sjá sína ytri fatagerð á auðsæilega gjörólíku líkamsformi, svo ekki sé minnst á hugs- unina. Kannski hefðu þeir ekki þolað að horfa upp á hvernig við breytt- um með tíð og tíma, barn eftir barn, hinum vönduðu flíkum í hreina garma en vel bætta. Utsendari þeirra hafði fyrir sið að opna fatapakkann sinn með virðuleik og lausu hjali. Pakkinn lá á eldhúsborðinu og konan dró varlega á handlegg sér hin nýburstuðu föt, dustaði ekkert af þeim en dustaði samt, með öfugri og fínni handbeitingu, puttunum sem fettust aftur, og lagði svo lófann ákveðin á fatabunkann og sagði: Þetta eru ekki aldeilis dónalegar flíkur, enda af. . . og síðan nefndi hún hátíðleg á svip hið göfuga nafn sem sjaldan endaði á son. Að svo búnu 284
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.