Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Page 54

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Page 54
Tímarit Máls og menningar ljós, helzt sem hreyfast uppi í loftinu sem gera allt svo dularfullt og skrítið einhvernveginn, þar vildi ég vera. Hér er allt svo blátt áfram og ómýstískt, hér er allt svo afdráttarlaust. Það vantar þetta seiðandi og dularfulla. Svo ætti að vera annar salur með mörgum básum. Eða svona litlum her- bergjum í röð og bambusveggir á milli, kínverskir lampar og tælandi músík. Já, segir hún himinlifandi. Já já já. Og svo færðu ekki martröð árið eftir án þess að hafa endalausa röð af svona rauðum silkiblússum með silfurlitaða pjáturspennu á skón- um, hangandi utan í þér með þetta hjartakremjandi fiðluvæl upp í eyranu á þér og kvenskó upp úr öllum vösum og kampavín lekandi úr þeim svo þú getir drukknað í heilt ár á hverri nóttu. Maðurinn leikur eftir þessum sígaunum meðan hann talar einsog hann sé að stjórna hundaballett. Æ ég er búin að missa eitthvað úr sálinni á mér, segir hún þessi unga stúlka, og strýkur ljósan lokk yfir annað augað og einblínir á manninn með hinu: það sem ég sízt mátti missa. Svo leitar hún að einhverju til að spegla sig, svipinn á sér til að ganga úr skugga um hvort hann sé réttur, hvort hann hæfi þessari yfirlýsingu. Hún finnur ekkert nema teskeiðina. Og sér andlit sitt einsog litla afskræmda möndlu, og horfir lengi heilluð á þá spillingu fegurðarinnar sem hún vissi hún ætti, og naut þess að vita manninn sjá. . . . Eg er að hugsa um að fara að auglýsa í blaði eftir manni, segir hún og opnar glufu i hárinu til þess að geta sökkt hinu auganu líka í sál mannsins andspænis henni. Auglýstu þá eftir ryksugu líka, segir hann. Eg vildi ég ætti peninga líka, segir stúlkan: nóg af peningum. Til að geta keypt mér stórt hús við veginn sem liggur meðfram sjónum, og séð bátana koma inn. Og heyra vélarnar í frystihúsinu allan sólarhringinn. Kannski skip blása úti í þoku og kalla á lóðsinn. Og finar gardinur og mublur. Rúm með himni yfir. Og stól til að hafa við gluggann, og kaktusa. Nóga peninga. Það vildi ég. Og til að geta mútað Alþingi Islendinga, Sjálfstæðisflokknum og Alþýðuflokknum. Mútað þeim til að skera mann í sundur. í marga parta. Einn mann. Og hvíslar: einn mann. 300
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.