Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Side 41

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Side 41
grannt skoðað kemur í ljós að ofbeldið er hvarvetna til staðar í samtímamenningu okkar; það hefur tekið á sig sífellt fjöl- breytilegri myndir og lagt undir sig æ fleiri svið mannlegs lífs — opinskátt eða grímu- klætt. Segja má að það sé mótbragð við kennd veikleika; menn virðast ekki lengur hafa trú á mætti eigin hugsunar, gildi at- hafnar sinnar — öflugt frelsi hefur vikið fyrir kennd vanmáttar og ófrelsis. Þessi til- finning nær ekki aðeins til ytra umhverfis. Hún setur einnig mark sitt á kynferði manna og sálarlíf. Það er einkar glöggt í hryll- ingskvikmyndum samtímans sem snúast að miklu leyti um kynferðislegt öngþveiti: maðurinn skelfist óáreiðanleika sjálfs sín, það sem í sjálfi hans leynist, ófreskjuna í Öfreskja í vígahug í kvikmyndinni Alienirá 1979. Leikstjóri: Ridley Scott. eigin brjósti. Áður fyrr skar skrímslið sig úr fjöldanum — menn vissu hvað var á seyði og þekktu andstæðing sinn. Nú á tímum er voðinn alls staðar; jafnvel ættingjar og vinir geta breyst á svipstundu í nauðgara og morðingja. Það er eins og mörkin milli hins eðlilega og óeðlilega hafí með öllu rofnað. Segja má að Jack the Ripper hafi aldrei lifað fjölbreytilegra lífi en seinni árin. Ein- hvem veginn tákngerir hann betur ótta sam- tímans en hrollhetjur fyrri tíma — varúlf- urinn, blóðsugan og draugurinn. Áður fyrr var sálsýkin staðsett fyrir utan samfélagið. Hún hafði leikrænt og litsterkt yfirbragð: geðsjúklingurinn lifði í heimi sem var frá- brugðinn heimi venjulegs fólks, heimi öfl- ugri skynjana og stórfelldari hugsana. Oft á tíðum bjó hann í afskekktu húsi og var óhugnanlegur útlits, stundum líkari dýri en manni. Með því móti var áhorfendum sýnd geðveikin, hún var þeim óviðkomandi í sjálfu sér. f kvikmyndum samtímans er ann- að uppi á teningnum; brjálæðingurinn býr í sama rými og aðrir — sturlunin brýst út úr hversdagslífinu sjálfu. Geðveikin er hvorki afleiðing þekkingarþorsta né metnaðar, né heldur áfalls í æsku eða fötlunar; hún stafar öllu heldur af djúpsettri og óskýranlegri illfýsi, blindri eyðileggingarástríðu. Þessar kvikmyndir byggjast á því að mannlegt sjálf sé ófyrirsjáanlegt; fleygt er lyklum að sálarlífi annarra sem menningin hefur búið okkur í hendur. Sálsýkisþemað tók á sig framangreinda mynd með tveimur hrollvekjum, Psycho og Peeping Tom, en þær voru frumsýndar með fárra mánaða millibili árið 1960. Báðar þóttu einkar nýstárlegar á sínum tíma. Þannig er söguhetja Peeping Tom ósköp venjulegur piltur við fyrstu sýn, feiminn og óframfærinn þótt hann sé haldinn morð- TMM 1991:1 31
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.