Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Blaðsíða 28

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Blaðsíða 28
sem heitast brennur á okkur? Gildir þá ekki einu hver höfundurinn er? Hemingway er til dæmis einn þeirra höf- unda sem oft er orðaður við karlrembu. Og víst er karlmennskan í fyrirrúmi í verkum hans. En skiptir það máli? Ég get gjaman viðurkennt að hann er stundum nokkuð langdreginn í stríðs-, veiðiferða- og nauta- atslýsingum, en allt er þetta hluti af heim- inum, að ógleymdri karlmennskunni. Sem varð honum reyndar loks að falli. Eða var það óttinn við ellina? Hvað sem um það er, þá les ég Hemingway eins og önnur góð skáld, konur jafnt sem karla, af því þau birta aðra sýn á heiminn, víkka veröldina. Að konur nenni ekki að lesa „karlrembu“ eða karlar „kvennarugl", hvítir ekki svarta, svartir ekki hvíta, ungir ekki aldna o.s.frv. — ég ansa því ekki. Hvað á að lesa? „Rétt- trúnaðinn“? Það sem staðfestir okkar eigin mynd? Ég gef lítið fyrir svoleiðis. Raun- verulegur skáldskapur hefur sig alltaf yfir kreddur höfundarins. Öll þessi flokkun er ekki bara hundleiðin- leg heldur gerir hún svo lítið úr mann- eskjunni. Og af því að ég tel mig hafa sál, þá er mér ekki nokkur leið að sjá fyrir mér litlar kven- og karlsálir, hvítar eða svartar, ungar eða gamlar hoppandi um í himin- blámanum. Ég get það ekki hvemig sem ég reyni þrátt fyrir ímyndunaraílið eða kann- ski einmitt vegna þess. Skáldskapurinn er óútskýranlegur eins og sannleikurinn og verður ekki bundinn á klafa. Það er þó fjárinn hafi það hugsunin, innsæið, ímyndunaraflið sem á mestan þátt í sköpun skáldskapar. Mér eru minnisstæð orðin sem Göran Tunström leggur í munn Marcs Chagalls í Jólaóratoríunni. Þau hreyfðu verulega við mér. „Það er fyrst handan við ímyndunaraflið sem þú átt von á að geta fundið eitthvað sem er satt.“ Handan við ímyndunina er allt eitt, eitt allt, af einu runnið. Og þegarmaðurskynjar það undrast maður hversu einfalt það er. * Og af því að þú spurðir mig áðan um ný- raunsæið, fantasíuna og ofurraunsæið hefur mér líka gengið erfiðlega að ná í skottið á þeim kenningum. Einhverja nasasjón hafði ég þó af því að nýraunsæið væri afspyrnu- leiðinlegt, fantasían gasalega orgínal og of- urraunsæið afburðasnjallt. Og nú skilst mér að fólk í sögum sé annaðhvort í móðurlífi eða að reyna að slíta sig frá móðurbrjósti. Sem er ekki svo ótrúlegt, því hver er ekki að leita að skjóli í þessum lífsins táradal? En hvað heldurðu annars að fólk sem er að skrifa bækur geti verið að eltast við svona- lagað? Það eru bókmenntafræðingamir sem verða að eyða tíma sínum í að reyna að koma reglu á ruglið. Annars held ég að raunsæi sé ekki til í skáldskap, a.m.k. ekki ef við tökum þá skil- greiningu að skáldskapurinn sé speglun veruleikans. Vemleikinn er einfaldlega of stór. Ef skrifuð hefði verið bók sem endur- speglaði vemleikann í heild sinni væru skriftir gjörsamlega óþarfar Þær yrðu ein- faldlega aflagðar. Það sem gerist í skáldskap er að höf- undurinn reynir að finna ögn af sannleika, ögn af kjama einhvers sannleika, og reynir síðan að koma því broti áleiðis í skáld- verkinu. Stundum tekst það. Þegar ég fæ þannig skáldverk í hendurnar verð ég yfir mig glöð, og mig gildir einu hvar þau eru flokkuð. Er skítsama um það. Ég svíf. En 18 TMM 1991:1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.