Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Blaðsíða 102
eða sex ára gömul og situr á bekk í Lúx-
embúrgargarðinum, horfir á blómin, hlustar
á fuglana. Á þessu augnabiiki fyllist hún
djúpri sælukennd, sem hana langar mest til
að líkja við vitrun; henni finnst eins og
heimurinn sé að renna inn í hana, að hún sé
að flæða út í heiminn.
Það hefði mátt þýða þennan stutta kafla
og birta hann hér, en áþekkri reynslu er lýst
í ljóði eftir íslenskt skáld — ekki Stein
Steinar eins og vitnað hefur verið í undir rós
hér framar14 — heldur eftir Snorra Hjartar-
son. Hann er einnig að fjalla um lífið í
augnablikinu í þessu ljóði. Það er í bókinni
Hauströkkrið yfir mér15 og heitir — varla
er það tilviljun — „Minning“:
Heiður haustdagur
ég sit undir hlöðugafli
ungur drengur
og tálga mér hest
úr fjalarbút
sólskin og kyrrð
yfir öllu sem ég ann
grænu túni
bliknaðri mýri
fjöllunum í kring
klettum og húsum
ég einn í þessu ljósi
og friði og dýrð
einn
og samur því öllu.
Helstu verk höfundanna þriggja
Nathalie Sarraute:
Tropismes, 1939.
Portrait d'un inconnu, 1948
Martereau, 1953
Le Planétarium, 1959
Les Fruits d' or, 1963
Entre la vie et la mort, 1968
Vous les entendez? 1972
Disent les imbéciles, 1976
L’Usage de la parole, 1980
Enfance, 1983
Tu ne t’aimes pas, 1989.
Sarraute hefur einnig gefið út ritgerðir og þó nokkur
leikrit. Öll verk Sarraute nema Tropismes, hafa verið
gefin út af Gallimard forlaginu og mörg þeirra hafa
verið þýdd á fjölmargar þjóðtungur.
Marguerite Duras :
Les Impudents, 1943
La Vie tranquille, 1944
Un Barrage contre le Pacifique, 1950
Le Square, 1955
Le Ravissement de Lol V. Stein, 1964
Le Vice-Consul, 1965
Détruire, dit-elle, 1969
L’Amour, 1971
L’Homme assis dans le couloir, 1980
L’Amant, 1984
La Douleur, 1985
La Pute de la cote normande, 1986
La Pluie d'été, 1990.
Duras er einnig höfundur leikrita og fjölmargra kvik-
mynda.
Alain Robbe-Grillet:
Un Régicide, 1949
LesGommes, 1953
Le Voyeur, 1955
La Jalousie, 1957
Dans le labyrinthe, 1959
La Maison de rendez-vous, 1965
Projet pour une révolution á New York, 1970
Topologie d’une cité fantðme, 1976
Souvenirs du triangle d’or, 1978
Djinn, 1981
Le Miroir qui revient, 1984
Angélique ou l’enchantement, 1988.
92
TMM 1991:1