Tímarit Máls og menningar - 01.03.1991, Blaðsíða 110
skyrtu til handarhalds fyrir vinstri hönd. Hýddi hann Denna nú við óhemjulegan fyrirgang
og lengi vel, með svo miklum öskrum beggja, að hljóðin vom sem í fílum, þótt þeir væru
teknir nokkuð að hæsast. Sló pabbinn svo gríðarlega á rass syni sínunt að:
1. Hann fór sjálfan að svíða í ört roðnandi lófa.
2. Hann fór að finna verki í framvöðva upphandleggjar (á útlensku: biceps),
3. í afturvöðva upphandleggjar (triceps),
4. í vöðvum axlargrindar (kringum viðbein og herðablað),
5. bólgur mynduðust í sinafestunni þar sem hægri brjóstvöðvi (pectoralis) festist út á
upphandleggsbeinið.
6. Hann tók að mæðast.
7. Hann fékk brjóstverk sem leiddi í vinstri handlegg og upp í háls.
Lét hann þá af hýðingum og varð Denni því feginn, en þakkaði þó engum. Hann
grenjaði enn um sinn. Af hverju mannskrattinn gat ekki notað leðurólar til áhrifaauka, er
mér hulið. En heilbrigðisráðunautur staðarins (ósami og leikið hafði á pabbann í brenni-
vínsmálinu) varð að gefa honum bæði morfínsprautu og sprautur sem losa vatn úr
lungunum og hafa hann hjá sér á spýtuhalanum í sex vikur áður batnaði.
Móðir Denna sagði þá: Ansi var nú þetta.
Var síðan ekki talað um það meir, en svona atvikaðist það, að Denni frændi minn var
hýddur þrem sinnum sama daginn. Systir mín sagði mér þessa sögu í síma og trúi ég henni
vel.
Svona vom bömin alin upp þegar við frændur vorum litlir. Samkvæmt sænskum staðli
hefði faðirinn átt að biðja Denna kurteislega að vera góður, gera ekki þau óvirki sem hann
gerði og fara þess loks á leit við hann að hann bæði alla fjölskylduna kurteislega afsökunar.
En Denni var bara þriggja ára árið 1963 og þá var ekki búið að markaðssetja sænsku
kenninguna.
Denni var hins vegar ekki algerlega vondur, eins og halda mætti af lesningunni.
Stundum var hann vænn og viðkvæmur drengur sem kom hlaupandi heim til mömmu af
fjögurbíó eftir orrustumyndir og sagði: „Það voru læti.“ Þá fékk hann kakó og tertu og
spillti engu.
Bæta má því við, sakir heimildagildis, að pabbi strákanna fékk þrisvar sinnum sams
konar áföll og hýðingadaginn áðumefndan, fyrir brjóstið, en þar er hjartað fyrir innan,
eftir vísustu manna leiðbeiningum. í miðskiptið var hann á skrifstofu síldarverksmiðj-
unnar, má vera að skraufaþurr sjókort hafi þá valdið nokkm um andþyngslin. í síðasta
skiptið, árið 1974, rak hann upp langt gaul og var þegar dauður.
Hin seinni ár er Benedikt bróðir Denna á sjó jafnan og gerir ekki flugu mein. Er hann
úr þessari sögu.
100
TMM 1991:1