Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Síða 56

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Síða 56
Pétur hafi fundið sjónarhom sitt innan tungumálsins, með því að teygja það og toga, snúa út úr því og sjá hið óvænta tekst honum að ná sögumannslegri fjarlægð frá þeirri veröld vanans sem hann er annars að lýsa. í þessari fjarlægð fæðist fyndni Péturs (og mætti hugleiða hvort þetta eigi ekki líka að einhverju leyti við um verk Þórarins Eldjáms). Einsog Pétur hefur sjálfur sagt um sögur sínar: Þær gerast í orðunum. En Andra saga er jafnframt þroskasaga, og meira að segja þroskasaga listamanns, tilbrigði við þann „Kúnstlerroman" sem Þjóðverjar fundu upp á 19. öld. Lýst er leit að sjálfsvitund, og leitin liggur um bækur annarra höfunda — enn rekumst við á skil- rúm tilbúinna mynda. Enda hefur Pétur ávallt verið upptekinn af „persónum og leikendum“, ein bókin í Andra-bálknum heitir það, og í Hversdagshölliimi er minn- isstæður kafli þar sem sögumaður sér fjöl- skyldu sína fyrir sér sem amerískar kvikmyndastjörnur. Þroskasaga Andra fékk óvæntan endi með Sögunni allri. Aðalpersónan sýnist allt í einu orðin persóna í sögu annars manns, sagnfræðingsins Guðmundar Andra, sem allt vill skrá af því hann man ekkert. Meg- inhugðarefni Guðmundar er að fylgjast með uppvexti bams síns, sem er í senn að uppgötva heiminn og orðin. Mér finnst þessi óvænti viðsnúningur sögunnar kasta tragískum blæ á bálkinn allan. Hann reynist þá ekki vera saga um leið persónu til þroska, eða alltént til þeirrar hreinsunar sem felst í að glata tálsýnum. Þegar hetjan hefur öðlast þroskann sem hún sóttist eftir er spumingin vakin hvort hún væri ekki betur komin án hans. Sjálft hugtakið þroski er haldlaust. Andra bálkur virðist sýna að það að reyna að þroska sig til að verða listamaður er vísasta leiðin frá þeirri sýn sem er skilyrði sköpunar og þar með listar, þ.e. sýn bamsins. Heimurinn er aðeins nýr áður en reynslan hefur saurgað hann, og þó getum við ekki án hennar verið. Hin tragíska vídd í bálki Péturs fínnst mér of lítið hafa verið skoðuð, kannski vegna þess að það er ekki hægt að koma auga á hana nema gegnum húmorinn. Mér finnst þessi óvænti við- snúningur sögunnar kasta tragískum blœ á bálkinn all- an. Hann reynist þá ekki vera saga um leið persónu til þroska (...) Þessir höfundar og fleiri hafa átt sér Reykjavík að helsta sögusviði, og kannski var kominn tími til að hverfa aftur til sveit- arinnar og skoða hana á sínum eigin for- sendum, en ekki bara með hliðsjón af ósigri hennar fyrir borgarmenningunni. Gyrðir Elíasson hefur farið þá leið í sínum verkum, svið sagna hans er með fáum undantekn- ingum myndbreytt íslensk þorp (Sauðár- krókur og Borgarfjörður eystri) sem hann lýsir oft af smásmugulegri nákvæmni. Hann notar minni úr þjóðsögum og ævin- týrum og tengir það við að öðru leyti mjög jarðbundna veruleikasýn. Á þessari spennu lifir prósi hans, sbr. upphafsorð sögunnar „Vængmaður“ ú/' Bréjhátarígningunni: „í rauninni er ég fremur jarðbundinn maður, en ég á tvo árganga af Populœr Mekanik, sem ég skoða oft í einverunni á kvöldin og rakst þar á þessa bráðsnjöllu teikningu af vængjum sem ég svo smíðaði úr naumum 54 TMM 1991:3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.