Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 109

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 109
vegu. Annars vegar er fjallað beint um tóm hins gefna veruleika, gjaman með líkingamáli og í óreglulegri hrynjandi, sbr. kvæðin „Morgunn", „Hádegi“ og „Síðdegi". Þar kemur „nútímalegt formið" (eins og einu sinni hefði verið sagt) efninu sérlega vel til skila: Þegar morgunninn ræsir vél vindsins og höfuð sólguðsins gægist upp milli tveggja hnjúka, göngum við út (14) Hins vegar eru sams konar viðfangsefni tekin til athugunar gegnum ýmis fom minni og þá með hefðbundnum hætti, einkum og sér í lagi í sonnettuformi. Stundum dagsins ert.d. brugðið aftur upp í sonnettunni „Tomba Medici“, um höggmyndir eftir Michelangelo, markmiðinu sem virðist gufa upp á annarlegan hátt er lýst í sonnettunni „Leda og svanurinn", og firring þess raunveruleika sem við okkur blasir er sett fram í sonnettunni „Hellislíf4, sem snýst um hellislíkingu Platons í Ríkinu. Síðastnefnda kvæðið endar á þessum kröftugu orðum sem rímið magnar upp (en fjölmargt annað mætti nefna): ... við emm fangar, fjötraðir þungum hlekkjum, og hljótum um síðir að venja okkur af þeim ósið í hellisins myrkri að láta okkur dreyma um Ijósið. (24) Sömu stef eru dregin saman í ýmsum öðrum sonnettum, ekki síst í „Óróa“ og „Undir óson- lagi“, sem er e.k. lokaniðurstaða. Ekki er víst að lesendur veiti því athygli í fljótu bragði hvernig þessar tvær ólíku raðir kvæða kallast á og auðga og dýpka viðfangs- efnin með því að setja þau fram frá ólíkum sjónarhornum og í mismunandi tímakerfum, ef svo mætti segja. Seinni hluti frumortu kvæðanna er svo sonn- ettuflokkur sem nefnist „þrettán þankabrot um lífið“. í þessum samstæðu fjórtánhendum erenn fjallað um svipuð viðfangsefni og áður: um tómleika tilverunnar og lífið, sem er óskilj- anlegur draumur þar sem menn berjast aðeins við eigin skugga og verða fómarlömb gabbs, að nokkru leyti fyrir eigin tilverknað. En ef lífið er skóli verður niðurstaðan sú, að Við fáum að lokum enga brottfarareinkunn og aldrei mun neinn fá að vita hvað fyrir var sett. (33) Samt er eins og hér örli á einhverri lausn, og hún er sú að verða einhvers konar Robinson í til- verunni og horfa á hana úr fjarlægð með kald- ranalegu raunsæi. Svo hyllir jafnvel að lokum undir fyrirheit trúarbragða en þau eru eins óljós og margbreytni þeirragefurtil kynna: fjallstind- ur Dantes, hin pýþagórsku fræði eða „grein hjá Jóhannesi" guðspjallamanni. Þessi viðhorf undirstrikar formið glögglega: hinn fomi brag- arháttur sonnettunnar, sem skáldið beitir af mikilli íþrótt (sbr. það hvemig setningamar teygjast gjarnan milli ljóðlína eða úreinu erindi í annað í árekstri við skipan formsins) hefur hér sams konar skopstælingarhlutverk og hefð- bundið form hefur gjaman í nútímaskáldskap, eða öllu heldur: hefðinni er beitt til að skapa ákveðna íróníska fjarlægingu, sem gerir kleift að skoða viðfangsefnið með háðsku hlutleysi. Hægt er að grípa niður hvar sem er: Að lífið sé skógur lásum við hjá Dante og leiðin viðsjál sem sé um hann gengin. Við þrömmum samt, þótt okkur Virgil vanti og vegarskilti finnist hérna engin ... (41) Ljóðabók Kristjáns Ámasonar er því mikils- verður áfangi: vonandi er hún merki um að landinn sé nokkum veginn læknaður af árátt- unni í rímölvun sem slíka og því sé ekki lengur þörf á að fela vímugjafann heldur megi auðga skáldskapinn með því að bera hann að hlustar munnum. En burtséð frá því öllu em þessi ljóð holl lesning á þeim tímum þegar fátt á betur við en dálítið kaldranalegt raunsæi. Einar Már Jónsson TMM 1991:3 107
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.