Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Side 122
RITDÓMAR
unni sé fjarverandi? Býr ekki Jakob í
sama húsi og faðirinn fram yfir miðja
bók og er hann ekki óvenjunálægur í
textanum í ljósi þess að fimm kaflar (af
þrjátíu og fjórum) fjalla beinlínis um
hann og samskipti þeirra Jakobs? Hver er
faðirinn?
Faðir Jakobs er dæmigerður þorps-
búi. Hann hefur hætt námi eftir grunn-
skóla, unnið að mörgum ólíkum störf-
um og oft verið rekinn af því að
yfirmenn hans „þoldu ekki að hann var
„hæfari en þeir“.“ (22) En hann fær alltaf
vinnu aftur og hefur engar áhyggjur
hvorki af framtíð sinni né barnanna.
„„Ég nenni ekld að stressa mig á svoleið-
is“ var hann vanur að svara þegar fólk
spurði hvað hann héldi að yrði úr mér og
systur minni. „Það er fyrir mestu að þau
fái sæmilegt starf og séu við góða heilsu.
I þá daga gátu menn látið svonalagað út
úr sér. Þetta var áður en öll sæmilegu
störfin hurfu.“ (24-25) Á bókartíma er
faðir Jakobs með fasta vinnu. Hann er
hættur að rífast við yfirmenn sína vegna
þess að hann hefur orðið fyrir áfalli,
misst kjarkinn og byrjað að hafa áhyggj-
ur af ffamtíðinni. Faðir Finns hefur verið
rekinn úr öllum störfum sem hann hefur
ráðið sig í og er atvinnulaus. Faðir kær-
ustu Jakobs hefur unnið í öllum lands-
hlutum en er alltaf „óheppinn með
vinnu“ og flytur á tveggja ára fresti á
nýjan stað með fjölskylduna. Feðurnir
rífast í börnunum um gildi menntunar
eða vinnu, ábyrgð og samviskusemi en
þeir eru tæpast fyrirmyndir hvað varðar
stöðugleika og ábyrgð.
I stöðugu samfélagi er faðirinn ekki
aðeins lykill sonarins að samfélaginu og
Sögunni heldur er hann fulltrúi Lag-
anna, þeirra viðteknu boða og banna
sem sonurinn verður að beygja sig undir
ef honum á vel að farnast. Hann er fyrir-
mynd sonarins í því hvaða gildi skal hafa
í heiðri og hann kennir eða sýnir synin-
um í hverju karlmennska felst.
Þegar Jakob er lítill virðist faðir hans
taka hann með sér hvert sem hann fer -
í veiðitúra, í ökutúra og á barinn. I veiði-
túrunum með föður sínum og föður
Finns á fljótinu eru þeir þrír í karl-
mannaheimi. Það eru sagðar sögur, rifist
og bölvað, jafhvel slegist og drengurinn
er sendur í tilgangslausar ferðir til að
leita að gæsaeggjum út í mýrar með dýj-
um og drullu á meðan feðurnir fýlgjast
með óförum hans í kíki (93-94). Þetta
eru manndómsvígslur og drengurinn
sækir í túrana á fljótinu með föðurnum
um leið og honum leiðist þar og langar
mest heim affur. Hann fylgist hlýðinn
með skotæfingum föðurins sem útskýrir
ekld tilburði sína fýrir honum. „Ég bar
fýrir hann byssurnar. Það kom fýrir að ég
lá tímunum saman í gömlum vatnsfar-
vegi á meðan hann æfði sig í að miða á
ímynduð skotmörk út á flæðilöndunum.
Þessar æfingar voru svo asnalegar að ég
hefði skellt upp úr, hefði ég verið að fýlgj-
ast með ókunnum manni, en ég var að
horfa á föður minn og því sat ég á botni
gryfjunnar eins og hlýðnum syni ber og
fýlgdist með honum, þögull og alvarleg-
ur.“ (117) í veiði- og ökutúrunum með
föðurnum hlustar Jakob á sögur hans af
einkennilegum atburðum og rosalegum
svaðilförum en þegar hann spyr: Hvers
vegna ertu að segja mér þetta? svarar
faðirinn engu.
Einn kaflinn heitir „Faðir minn gætir
mín fýrir ólcnyttadrengjum, fýllibyttum
og listamönnum“ (115) og víst er að Jak-
ob dáist að pabba sínum að einhverju
leyti, beygir sig undir vald hans og treyst-
ir honum fýrir lífi sínu. Jakob er þess
vegna lilýðinn sonur, góður áhorfandi og
áheyrandi og faðirinn þarfnast hans.
Hann getur hins vegar ekki miðlað hon-
um neinni þekkingu á náttúrunni eða
kennt honum að umgangast hana,þaðan
af síður að brjóta hana undir sig af því að
hann kann það ekki sjálfur. Hann er eng-
inn veiðimaður og nógu firrtur frá nátt-
úrunni til að álpast fullur út á ísinn á
fljótinu á nýársnótt, villist og er næstum
orðinn úti. í það skipti horfist faðirinn
raunverulega í augu við dauðann og
112
TMM 1998:1