Dagrenning - 01.08.1958, Page 16

Dagrenning - 01.08.1958, Page 16
f Bandaríkjamenn reyna að telja sér trú um, að það, sem nú hefur gerzt, með landgöngu bandarískra hersveita í Libanon, sé allt annars eðlis en afskipti Breta og Frakka af Súezdeilunni 1956. En það er hinn mesti mis- skilningur. Þá hafði brotizt út ófriður milli ísraels og Egyptalands og Nasser rofið alþjóðasamninga um Súezskurðinn, og samkvæmt þeim samn- ingum bar Bretum og Frökkum að blanda sér í málið. Þeir gerðu það og hefðu komið í veg fyrir mikil vandræði, ef Bandaríkin liefðu þá ekki met- ið meira ímyndaða hagsmuni olíufélaga sinna, en frelsi og velferð Vestur- Ianda. Og nú er þessi spurning á allra vörum: Fara Bandaríkin aftur frá Liba- non? Eisenhower hefur lýst því yfir, að þau muni gera það, þegar friður sé kominn á og „Sameinuðu þjóðimar" hafi þar nægilega öflugt lið til gæzlu. En fari Bandaríkin aftur frá Libanon, ívit en sundrað hefur verið yfiráðaáformum Nassers og Rússa þar eystra, hefði verið betra að þau hefðu aldrei þangað farið. Þá verður nákvæmlega sama skyssan gerð þar og gerð var við Súesskurðinn. Rússar vilja ekki styrjöld við Bandaríkin — þora ekki enn að leggja í þá áhættu. Þess vegna munu þeir nota hina að- ferðina, að reyna með fundahöldum og samningum, sem svo verða sviknir, að þvæla málin þar til allir gefast upp. Þeir munu ala á látlausum innanlands óeirðum og fjandskap, þar til Bandaríkin samþykkja að fara burtu með her sinn — og þá er markinu náð. — Þá gefast þeir upp, sem fylgja liinum vestræna málstað og verða drepnir eða verða að flýja land. Sennilega hefjast þá í Libanon hreinar ofsóknir á hendur kristna hlut- anum þar, því að örskammt er niður á trúarofstækið í slíku andrúmslofti sem nú er í löndunum við Miðjarðarhafsbotn. ENGINN GETUR TREYST VESTURLÖNDUM! Það er ein ömurlegasta staðreynd sögunnar, að hinum svokölluðu Vesturlöndum getur enginn treyst, sízt af öllu síðan Sameinuðu þjóðirn- ar komu til sögunnar. Með Vesturlöndum er fyrst og fremst átt við Bret- land, Bandaríkin og Frakkland, en í þeirra tölu eru einnig Norðurlönd og önnur vestræn ríki. Það er eins og það séu álög á þessum þjóðum, að þær þora aldrei að ganga hreint til verks. Þær eru alla tíð að semja og semja og fóma þá bæði ríkjum og einstaklingum, sem hafa treyst þeim og trúað. Við lok heimsstyrjaldarinnar síðari sviku Vesturveldin öll smáríkin í Austur- og Mið-Evrópu og skildu þau varnarlaus og magnlaus eftir undir járnliæl rússneskra kommúnista, þar á meðal Pólland, sem þau fóm í stríðið til „að bjarga“ að sjálfs sín sögn. Á hinn lúalegasta hátt, sem um v----------------------------------------------------------------------- 14 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.