Dagrenning - 01.08.1958, Blaðsíða 20

Dagrenning - 01.08.1958, Blaðsíða 20
r Bandaríkjamönnum þéttar saman og eyðir e. t. v. tortryggninni, sem var að skapast milli þessara bræðraþjóða, sem tala sömu tungu. 1 ágætu brezku tímariti, Intelligence Digest, var í júnímánuði vikið að þessuin málum og segir þar m. a. á þessa leið: „Það er algjör misskilningur og hefur ávallt verið, að Nasser hyggðist taka upp vinsamlegri stefnu gagnvart Vesturlöndum. Hann er í mjög nán- um tengslum við Sovétríkin og ætlar sér, með hjálp Rússa að reyna eftir- farandi: 1. Að eyðileggja Ísraelsríki. 2. Að þurrka með öllu út vestræn áhrif í Arabalöndum. 3. Að koma á fót arabisku sambandsríki, sem nær frá Teheran tif Casablanca. Rússar telja víst, að sú ríkjasamsteypa yrði sér vinveitt og lienni yrði í rauninni stjórnað frá Moskvu. Vesturlönd gætu þá aðeins fengið olíu frá þessum löndum með skilmálum, sem Rússar settu. Meðal þeirra skilyrða yrði sameining Þýzkalands samkvæmt tillögum Rússa, niðurlagning her- stöðva NATO víðs vegar um heim og brottflutningur brezkra og banda- rískra hersveita úr Evrópulöndum. Rússland mundi einnig krefjast þess, að Kvpur yrði afhent Grikklandi og að Bretar yfirgæfu Aden og Möltu. A sama hátt mundu Kínverjar krefjast sameiningar Kóreu og setja sín skil- yrði þar um. Þeir mundu og lieimta að Bretar færu frá Hong Kong, að Formósa yrði afhent Kínverjum og öllum stuðningi við uppreisnarmenn í Indónesíu yrði liætt. Um leið og Rússland — með hjálp arabiskra þjóðernissinna — öðiast þá aðstöðu, að ná raunvemlegri yfimmsjón með olíusvæðunum í Mið- Austurlöndum yrði framkvæmd þessara skilyrða tiltölulega auðveid. Ef að slíkum skilmálum vrði gengið, þýddi það algjöra uppgjöf fyrir hinar vest- rænu þjóðir. Fyrir Bretland þýddi slíkt fullkomið fjárhagsöngþveiti, en fyrir Bandaríkin algjöra einangmn, með Suður-Ameríku fjandsamlega sér að sunnan, en hinar stórkostlegu árásarstöðvar Rússa ógnandi úr norðri frá lieimsskautssvæðinu. Slíkar eru þær ógnir, sem nú munu bráðlega fara að koma í ljós. Slíkar eru hinar óhjákvæmilegu afleiðingar af hinni örlagaríku stöðvun hern- aðaraðgerðanna við Súez, þar sem fórnað var síðasta tækifærinu til að stöðva þessa útþenslustefnu. Það er rétt, að Súezvandamálið var erfitt og óþægilegt, en samt sem áður hefðu þær aðgerðir — ef þær hefðu tekizt — ruglað allar áætlanir Rússa.“ Nú eru þessar spár að rætast. frak, það olíulandið, sem Vesturlönd eiga mest undir, er þegar fallið Rússum í hendur. Björninn fer sér að engu óðs- lega. Hrammur hans hefur nú slegið þetta fórnardýr, svo að það stendur V_______________________________________________________________________________■) 18 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.