Dagrenning - 01.08.1958, Blaðsíða 25

Dagrenning - 01.08.1958, Blaðsíða 25
r' uðu þjóðimar“, undir fomstu hins sovétsinnaða Dag Hammarskjölds, verða áfram aðaláróðurstæki Rússa, og stefna þeirra á alþjóðavettvangi, að svipta smáþjóðirnar frelsi sínu, mun koma betur og betur í ljós. Svo virðist, sem fyrir þeim vaki að „her sameinuðu þjóðanna“ „taki sér stöðu“ á landa- mærum smáríkjanna til þess að „vernda“ þau þar til Sovétblokkin er til- búin að gleypa þau fyrirhafnarlítið. Mjög er líklegt að næsta atlagan verði gerð að Persíu — fran —. Þar eru nú ýmsar þær blikukr á lofti, sem að óveðri geta orðið fyrr en varir. Vegur Bandaríkjanna þar í landi hefur minnkað mjög mikið — eins og víðast annars staðar — en vegur Rússa aukizt, og stuðningur við arabiska lýðveldið orðið almennari. Vegna skilnaðar konungs og drottningar í íran hefur risið upp mikill ágreiningur milli stórra og voldugra ættbálka, sem ekki er ólíklegt að Rússar notfæri sér til að steypa núverandi keisara af stóli og stjórn hans, með svipuðum hætti og gerðist í írak. Þegar svo er v-------------------------------------------------------------------------------. DAGRENNING 23

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.