Reykjalundur - 01.06.1950, Blaðsíða 14

Reykjalundur - 01.06.1950, Blaðsíða 14
býggingarnefnd fyrir samtökin og Sæ- mundur meðan heilsa hans leyfði, en við af honum tók Þorleifur Eggertsson, sem síðan hefur átt þar sæti. Þessa ágætu starfskrafta okkar erum við í mikilli þakkarskuld við, fyrir þeirra mikla og góða starf, og þá sömuleiðis gjaldkera sam- bandsins, sem verið liafa á þessu tímabili, eða síðan byggingar hófust, þá: Ólaf Björnsson og Björn Guðmundsson, sem liaft hafa mikið ónæði af þessum málum, og mikið á sig lagt eins og byggingarnefnd- in, og síðast en ekki sízt Þórð Benedikts- son sem borðið hefur hita og þunga fjársafn- ana á síðari árum, og aldrei verður þakkað sem skyldi. Byggingarframkvæmdir hefjast — stjórn kosin Það er svo 3. júlí 1944 að byggingin telst vera hafin, en þann dag fara miðstjórnar- menn ásamt fleirum sjálfboðaliðum hing- að og grafa fyrir einum húsgrunninum, sem liófst með því að þáverandi forseti sambandsins — Andrés heitinn Straum- land — stingur fyrstu skóflustunguna. Mikl- ir erfileikar voru þá, að fá faglærða bygg- ingamenn, einkum þó múrara, þó tókst að fá Aðalstein Sigurðsson og Svavar Bene- diktsson múrarameistara ásamt nokkrum félögum þeirra til að taka að sér allt múr- verk, senr þeir svo aðallega unnu um helg- ar og vannst vel. Verk þetta gekk svo vel, að þrátt fyrir margskonar erfiðleika, en jafnframt mikla hjálpsemi fjölda manna. um útvegun ýmiss konar efni o. fl. var það svo, að fimm fyrstu húsin voru tilbúin í desemberlok þetta ár, en önnur fimm að nokkrum mánuðum liðnum. En nú þurfti fleira að gera en hugsa um bvggingarnar sjálfar, þar á meðal standsetja nokkra hermannaskála, sem hér voru fyrir á land- inu, og sem sambandið hafði keypt, til að geta hafið starfrækslu. En í þeim þurfti að vera: eldliúsið, borðstofan, læknastofur og öll verkstæði. Þá þurfti og að semja reglu- gerð fyrir heimilið, ráða starfsfólk o. m. fl. Þann 12. nóvember kaus miðstjórnin 3 menn í stjórn fyrir vinnuheimilið þá: Árna Einarsson, Maríus Helgason og Ólaf Björnsson en ráðinn var sem yfirlæknir og framkvæmdarstjóri Oddur Ólafsson læknir og sem yfirhjúkrunarkona frk. Valgerður Helgadóttir. Síðar kaus svo félag vistmanna hér — Sjálfsvörn — 2 menn til viðbótar í vinnuheimilisstjórn þá Júlíus Baldvinsson og Sigurð Jónsson — en reglugerð lieimil- isins kvað svo á, að félag vistmanna skyldi þar eiga tvo fulltrúa. Stjórn þessi ásamt miðstjórninni — sem að vísu voru mest sömu mennirnir, gengu svo í það að semja reglugerðina, en við það vandasama verk naut luin mikillar og góðrar aðstoðar berklayfirlæknisins, landlæknis og lögfræð- ings sambandsins, hr. Sveinbjarnar Jóns- sonar lirm. Miðstjórnin samþykkti síðan reglugerð fyrir Vinnuheimilið 8. deseni- ber 1944 og 25. janúar 1945 var hún stað- fest af heilbrigðismálaráðlierra. Þá voru og samdar „heimilisreglur", ákvörðun tekin um kaupgreiðslur til vistmanna, sem var nokkuð vandasamt verk, þar sem engin slík stofnun sem þessi var til í landinu, og því ekkert að fara eftir. Þau Oddur og frk. Valgerður liafa ætíð síðan starfað hér, og álít ég það mikið happ fyrir samtökin að fá slíka ágæta starfskrafta, sem reynslan hefur sýnt, og vona ég að við fáum að njóta þeirra sem allra lengst. Síðan rann fyrsti febrúar 1945 upp, — dagur eins og aðrir dagar, senr þó bar á nokkurn skugga, en hann var sá að forseti sambandsins, Andrés Straumland lá í sjúkrahúsi mjög þungt haldinn, sem varð hans síðasta lega, og naut hann þess aldrei að sjá óskadraum sinn rætast. — Að sjá Vinnuheimili S.Í.B.S. komið upp, og tekið til starfa. 12 Reykjalundur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.