Reykjalundur - 01.06.1950, Blaðsíða 18

Reykjalundur - 01.06.1950, Blaðsíða 18
ÁRNI ÚR EYJUM: HOTEL NORD----- Þetta var ljóta andskotans torfið. Haldi einhver ,að það sé skemmtilegt að vera vonarpeningur og mínusmaður í stærð- fræði í fimmta bekk, ætti sá hinn sami að leita nánari upplýsinga hjá mér. Ég rauk upp í vonzku og henti stærðfræðinni — eft- ir einhvern danskan mannhatara — undir rúm. Þá skellti ég á grammófóninn aríunni úr Svítu númer þrjú í d-dúr eftir Bacli gamla — en ekkert dugði: mér leiddist. Ég rauk framí stofu að flyglinum hennar Tótu systur og lamdi úr honum ástarvelluna úr Bláa englinum: Ich bin von Kopf bis Fuss auf Liebe eingestellt---og sló yfir í marz- urka eftir Chopin, en skellti honum svo aft- ur, bálvondur. Jæja, einn lítinn af spavi- wiskíinu hans pabba og brældi svo frá hon- um eina Abdúlla 16 — þetta var fyrir tutt- ugu árum — en hélt áfram að vera fúll. Helvíti. Kannske ég labbi út. Ég var fljótur að bretta kraganum uppí háls, þegar ég kom út, þvíað það var ill- yrmislega kalt, frost og snjór og norðan blástur. Þrátt fyrir kuldan rölti ég niður að höfn, þvíað einhvernveginn finnst mér æf- inlega lífvænlegast þar í þessari blessaðri borg. Þarna var Lyra að leggjast að bakk- anum — hún var að koma frá Noregi. Megi Guðsblessun ávallt vera með stað þess- um og öllum íbúum hans, — öllum störf- um sem hér eru unnin, öllu starfi samtaka vorra hvar sem þau eru unnin, — með þjóð vorri allri og fósturjörð. í guðs friði. 16 Nokkrir einkabílar renndu niður á bakk- ann — og það brá fyrir frúm í loðkápum. Karlarnir á eyrinni voru kuldalegir, með gallana hneppta uppí háls og sixpensarana teygða niðurfyrir eyru. Annars voru fáir á bakkanum — og ég veit ekki eftir liverju ég var að norpa þarna, enda var ég í þann veg- inn að snúa heimleiðis, þegar ég kom auga á mann, sem vakti athygli mína. Þetta var hávaxinn, grannur piltur í snjáðum frakka, með liatt á höfði og hélt á ferðatösku í ann- arri hendi. Hann kom mér kunnuglega fyrir sjónir, en einhvernveginn gat ég ekki- kornið því fyrir mig, hver hann var. Ég tók ekkert eftir, hvaðan hann kom, en sá hann tvístíga stundarkorn við skipshliðina. Svo keyrði hann hattinn niðurí augu og liélt uppfrá skipinu. Um leið og hann fór fram- hjá mér, virti ég hann betur fyrir mér, og sá brátt, hvaðan ég þekkti hann. Þetta var piltur utanaf landi og var í þriðja bekk. Ég hafði oft séð hann í skólanum, en vissi ekki, hvað hann hét. Ég hafði vissulega séð hann í skólanum þennan dag og skildi því ekkert í, hvað hann vildi með ferðatösku niðurvið skip. Hélt ég í humátt á eftir hon- um og dró hann brátt uppi. — Sæll vertu, segi ég, hann er kaldur. — Ha, — sæll, já, fjandi. — Hefur þú verið að ferðast? spyr ég og lít á töskuna, sem ég sé nú, að er snotur, brún leðurtaska, öll útlímd í hótelmiðum frá Englandi, Frakklandi, Ítalíu, Sviss og ég veit ekki hvað. — Ferðast, það er nú kannske fullmikið Reykjalundur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.