Reykjalundur - 01.06.1950, Síða 23

Reykjalundur - 01.06.1950, Síða 23
Þingslitaræða Jónasar Þorbergssonar jorsela 7. þings Sambands islenzkra berklasjúklinga 20. ágúst 1950. Heimspekingur einn og mannvinur, Robert Ingersoll að nafni, sem uppi var í Bandaríkjunum á næstliðinni öld, liefur á einum stað í fyrirlestrum sínum mælt á þessa leið: If you want to give a dollar — and be it perhaps your last dollar — tlien give it as if it were a withered leaf and as you were the owner of boundless forests. Snúið á íslenzku mætti þetta hljóða svona: Ef þig langar til að gefa krónu — og sé það máske síðasta krónan þín, þá gefðu liana — og gefðu liana eins og væri hún visið lauf, en þú værir eigandi óþrotlegra skóga. Þessi orð, þessi djúpsetti boðskapur mannkærleikans og fórnfýsinnar hefur kom- ið mér í hug nokkrum sinnum á lífsleiðinni, er ég hef orðið vottur að ótvíræðu fórnar- starfi. Og hvergi liefur mér virzt kenning þessara orða koma fram ótvíræðlegar og á efalausari hátt en í baráttu íslendinga við berklaveikina. Mér koma sjúklingarnir fyrst í hug. Um nálega hálfrar aldar skeið hafa íslenzkir berklasjúklingar gefið ár sín, blómaskeið ævi sinnar og allt of margir lít sitt í sjúkrafangelsi, til þess að öðrum mætti verða bjargað. Einangruð sjúkravist á blómaskeiði ævinnar með óvissuna fram- Jónas Þorbergsson lítvarpsstjóri undan er mikil þroskaraun. Og ég hef kynnzt mörgum berklasjúklingum, sem hafa fært fórn sína með því háleita hugar- fari, sem tjáð er í orðum Roberts Ingersoll: Eins og líf þeirra væri aðeins visið lauf, en þeir væru eigendur óþrotlegra skóga. Ég veit ekki hversu margir af þeim, sem fallið hafa í fremstu víglínunni, hafa getað til- einkað sér með óbifanlegri vissu orð Jón- asar Hallgrímssonar, sem hann mælir til horfins vinar síns: „Krjúptu að fótum frið- arbogans, fljúgðu á vængjum morgunroð- ans. Meira að starfa guðs um geim.“ Ég vildi geta gefið ykkur, sem mál mitt hevr- ið og öllum berklasjúklingum mína vissu, mína óbifanlegu vissu studda af reynslu, sem ekki verður véfengd um það, að þetta okkar jarðneska líf, þótt fagurt og háleitt geti það verið, er aðeins stutt skeið í áfram- haldandi lífi miklu fegurra og háleitara fyrir alla þá, sem eru gæddir hugarfari og hjartalagi fórnfýsinnar og mannkærleik- ans, — að það er aðeins sem eitt lauf, en við erum eigendur óþrotlegra skóga. Reykjalundur 21

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.