Reykjalundur - 01.06.1950, Blaðsíða 30

Reykjalundur - 01.06.1950, Blaðsíða 30
og Reykjavíkur. Skipstjóri var Pétur Björnsson, sem nú er með „Goðafoss“. Báð- um við hann um far til Eyja og kvað hann það velkomið. En hann gat þess, að við mættum búazt við að vera lengi á leiðinni, þar sem taka ætti fisk á öllum höfnum til Stöðvarfjarðar. Við vorum þó ekki að setja slíka smámuni fyrir okkur, því að þá hafði maður gaman af smá ævintýrum. Var nú hafist handa um útvegun nestis og sængur- föt höfðum við með okkur. Þegar um borð kom, vorum við látnir fara í framlest, svo að nóg var plássið. Lagt var af stað frá Seyðisfirði á laugardagskvöldi, farið til Norðfjarðar og lagst þar úti á legu. Átti að byrja að skipa út fiskinum að morgni, þó að sunnudagur væri, en þá átti skipið að leggjast að bryggju. Morguninn eftir var kominn bylur og norð-austan stormur, svo að það' gat dregizt nokkra daga að við kæmumst þaðan. Þenn- an dag voru allir, sem á skipinu voru kall- aðir inn í stofu, sem var undir brúnni og var þar lesinn húslestur. Las skipstjóri sjálf- ur lesturinn en allir sungu bæði á undan og eftir. Næsta dag var komið það gott veður, að hægt var að skipa út fiskinum, og var farið þaðan um kvöldið. Gekk þetta svona næstu daga, að við fórum fjörð af firði og tókum fisk. Á fimmtudagsmorguninn var svo lagt af stað til Vestmannaeyja, þar sem taka átti mikið af fiski, og þangað var för okkar heitið. Þegar við vorum komnir af stað, komu skilaboð um það frá skipstjóra, hvort ekki væru einhverjir í lestinni það miklir smiðir, að þeir treystu sér til að „ganera“ lestina.Við vorum svo sem til í það. Gáf- um okkur fram fjórir, þó að enginn okkar hefði séð það gjört áður, en okkur var sagt, að timburmaðurinn myndi segja okkur til verka. Timbrið og striginn var hvort- tveggja við hendina í lestinni. Fengum við þau boð frá skipstjóra, að við ættum að fá miðdegismat frá skipinu, meðan á vinn- unni stæði. Þótti okkur það bezt af öllu, því við vorurn orðnir nestislitlir, enda ekki lystugt að borða kaldan mat dag eftir dag. Var svo byrjað að klæða innan lestina með borðvið og striga og gekk það ágætlega. Skipstjórinn var sjálfur að koma niður og tala við okkur og hæla verkinu. Á leiðinni til Eyja fengum við allar máltíðir og kaffi fi'á skipinu. Veður var gott í bugtunum og komum við til Eyja eftir viku ferð. „Borg“ var svo við Eyjar í liálfan mánuð eftir að við komum, og allan þann tíma var hún að berjast við að ná fiskinum. Við unnum fyrir farinu í þessari ferð og áttum afgangs 25 aura. Vorum við í Eyjum á vertíðinni eins og til stóð, en það er önnur saga. Vorum við lausir upp úr mánaðamótun- um apríl—maí, en engin ferð heim fvrr en 20. maí og alls ekki víst, að hún yrði á rétt- um tíma. Þótti okkur slæmt að komast ekki heini til að undirbúa sumarvertíðina lieima, sem byrjaði vanalega frá 20.—31. maí. Einn daginn vill þá svo til, að það kemur bátur til Eyja, af Mjóafirði. Hafði liann verið gerður út frá Sandgerði og liét „Alpa“, norskbyggður 10 smálesta bátur. Fórum við til fundar við formanninn, Da- víð Sigurðsson, son bátseigandans, Sigurð- ar frá Höfðabrekku í Mjóafirði, en við þekktum Davíð lítillega. Hann var þá með fullan lúkarinn af fólki, landmenn og ráðs konu, sem hjá lionum voru um veturinn. Þetta var því ekki efnilegt og neitaði hann okkur um far. En bæði vegna þess að veð- ur var mjög gott og við sóttum málið fast, fengum við að fljóta með, með þeim skil- yrðum, að við yrðum að vera á dekki og að við færum á eigin ábyrgð. Gerðum við okk- ur ánægðá með það og þóttumst góðir. Sá sem með mér var hét Runólfur Sigfússon og bjó hann lengi í Vestmannaeyjum síð- ar og var þar kunnur formaður. 28 Reykjalundur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.