Reykjalundur - 01.06.1950, Page 31

Reykjalundur - 01.06.1950, Page 31
Þegar lagt var a£ stað var vestangola, svo að sett var upp segl, en annars gekk bátur- inn sæmilega, eftir því sem þá gjörðist, Bjuggum við um okkur á lestarlúgunni, því að niður komum við aldrei í ferðinni, og ætluðum við að reyna að sofa þar, en það var ekki hægt fyrir kulda. Raunar fengum við annað um að hugsa, því að þegar við komum á móts við Vík í Mýrdal, stoppaði vélin. Kom brátt í Ijós, að það var svo mikið sót í hausnum, að hann sprengdi ekki. Jafnframt kom það í ljós, að báturinn lak svo mikið, að einn maður varð að dæla, meðan vélin var stopp. En til var varahaus og vélin komst í gang eftir lítinn tíma. Þá varð að setjast niður og meitla sót úr hausnum eða dæla bátinn, en annars dældi vélin, þegar hún var í gangi. Störf þessi lentu á okkur félögunum, vegna þess að við vorum alltaf uppi. Veðrið var mjög gott, því að næsta morgun um sólar- uppkomu vorum við komnir austur undir Ingólfshöfða, mjög grunnt, svo að við sá- um þar á sandinum fjóra togara, sem höfðu strandað þar árinu áður, og voru ýmist fram- eða afturendinn upp úr sandinum. Þar var einnig skonnorta. sem hafði strand- að þar um veturinn og var að sjá heil, gert utan að seglum, ems og hún lægi í höfn. Má geta þess, að haustið eftir, þegar við komum til Eyja, lá hún þar og var að taka fisk. Eftir að við komum fyrir Ingólfshöfða fór að kula, svo að við höfðum leiði það sem eftir var til Norðfjarðar, en þaðan var fólkið, sem unnið hafði í landi við bátinn um veturinn. Komum við þangað klukkan 9 um kvöldið, en til Mjóafjarðar um miðnætti, og vorum þá búnir að vera 44 tíma frá Eyjum. En nú var eftir að kom- ast frá Mjóafirði til Seyðisfjarðar, og ekki gott í efni: allt á kafi í snjó, og engin báts- ferð. En til þess að komast gangandi þang- að, verður að fara yfir há fjöll, sem eru þar á milli. Við höfðum ekki annað á fæturna en sjóstígvél eða stígvélaskó og getur það varla talizt heppilegt til að ganga á yfir brött fjöll. Þegar við vorum búnir að fá mat og kaffi var komin fótaferð í þorpinu og fór- um við að svipast um eftir hugsanlegum bátsferðum. Sjáum við brátt, að maður kémur róandi einn á bát og þekki ég strax, að þetta er Kristján ísfeld, en hann átti heima í Loðmundarfirði, Var auðsótt að fá hann til að setja okkur upp á Brimbergi, sem var yzti bær norðanmegin Seyðisfjarð- ár, en þar átti ég heima. Þótti okkur þetta heldur happ, að komast sjóveg, þó að við yrðum að róa, en syfjaðir vorum við, þeg- ar við rérum inn Seyðisfjörð í glaða sól- skini og hvítalogni. x Það urðu allir hissa heima, þegar ég kom í lendinguna á árabát. Runólfur átti svo eftir að komast inn í bæinn, en það varð úr að Kristján lét til leiðast að fara með hann inn eftir, en það er tveggja tíma róð- ur í logni. Var ég búinn að vaka hátt á þriðja sólar- hring og þóttist góður að vera nú kominn heim. Já, þá var gott að vera heima og sofa, eftir slíkt ferðalag. Svona voru nú aðstæðurnar þetta ár, og mörg ferðin þessu lík á þeim árum, en þá var algengt að fara með skipum, sem voru með mörg hundruð manns í lest, bæði aust- ur og suður, haust og vor. ★ Þess má geta, að báturinn, sem við kom- um með austur, fórst um haustið með allri áhöfn, og furðaði mig það ekki, eftir þeim kynnum, sem ég hafði haft af útbúnaði hans um vorið. Asgeir Guðmundsson. Reykjalundur 29

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.