Reykjalundur - 01.06.1950, Blaðsíða 33

Reykjalundur - 01.06.1950, Blaðsíða 33
neytt til að auka söluna og hafa þegar ver- ið lögð drög að mörgum þeirra. Seldir miðar fyrir 4. flokk eru rösklega 24 þús. að tölu og hefur fækkað urn tæp 2 þús. frá 1. flokki. Sú fækkun kom aðallega fram við endurnýjun til 2. flokks. Ekki þarf að gera ráð fyrir að margir miðar falli úr endurnýjun hér eftir og ber margt til þess; fyrst og fremst vinsældir S.Í.B.S. svo og það að viðskiptamenn eru nú orðnir kunnugir reglum happdrættisins, muna eftir dráttardögum og liagnaðarvonin, sem bundin er við síðari drættina, mun einnig gjöra sitt til að viðhalda viðskiptunum. Hagnaður af happdrættinu, miðað við 25 þús. miða jafnaðarsölu fyrir hvern drátt er áætlaður ca. 500 þús. krónur á ári og er því happdrættið sú tekjulind sem S.Í.B.S. treyst- ir mest á um fjárveitingu til framkvæmda að Revkjalundi, á næstu árum. S.Í.B.S. er annt um það, að umboðsmenn happdrættisins geri sér ljóst, að það er und- ir atorku þeirra komið, að miklu leyti, hversu fljótt tekst að byggja Reykjalund svo að til fyrirmyndar megi verða öllum þjóðum og landi voru og lýð til ómælan- legrar blessunar. Happdrættið á að bera megin þunga af því átaki og vonandi mun það valda honum með sóma. Þ. B. Hejur þú heyrt um manninn, sem kom inn í Kronbúð og spurði, hvort herra Kron væri við. sem varð að fara út til að geispa, af því að það var svo lágt undir loft í svefnherberginu hans? eða bindindismanninn, sem auglýsti eftir herbergi, sem slagaði ekki — og þingmanninn, sem auglýsti eft- ir rakalausu herbergi yfir þingtímann? — Bara, að ég væri svo ríknr, að ég gæti keypt mér bíll — Guð almáttugur I Hvað ætlarðu að gera með bíl? — Hver hefur sagt, að ég ætli að kaupa bíl? Þing D.N.T.C. Björn Guðmundsson Við Árni Einarsson fórum sem fulltrúar fyrir S.Í.B.S. á þing D.N.T.C., sem að þessu sinni var haldið í Þrándheimi dagana 18. og 19. júní. En landsþing norsku samtak- anna. „T.H.O.,s 3. ordinære landsmöte", var haldið þar á sama stað dagana 17.—20. júní. Þing D.N.T.C. sátu tveir fulltrúar frá hverju hinna fimm Norðurlanda. Sigfrid Jonsson og Einar Hiller frá Svíþjóð, Karl Hammerstedt og Stein Vík frá Noregi. Ed- vard Pesonen og Veikko Niámi frá Finn- landi, Urban Hansen og SvenMalthasen frá Danmörku og við Árni frá íslandi. Á Þinginu var rætt um starfsemi samtak- anna í hverju þessara landa, samvinnu milli þeirra og kynningarstarfsemi. Rætt var um möguleika á öflun upplýsinga um hliðstæð samtök í öðrum löndum Evrópu og um mannaskipti milli landanna til að efla kynningu. Einnig var rætt um smithræðslu, sem er talsvert erfið viðureignar í sumum þessara landa, en er orðin nærri óþekkt fyrirbrigði hér hjá okkur, sem betur fer.. Á þinginu kom fram áhugi fyrir því að auka starfsemi sambandsins í framtíðinni. Næsta þing var ákveðið í Helsinki í júní næsta sumar. Björn Guðmundsson. Reykjalundur. 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.