Morgunblaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 1. F E B R Ú A R 2 0 1 5
Stofnað 1913 44. tölublað 103. árgangur
VEIT HVAÐ HÚN
VILL OG HVAÐ HÚN
ER AÐ GERA
FEÐGA DREYM-
IR DRAUMA
UM FRIÐ
FRIÐARHÁTÍÐ 10SASHA SIEM 47
Morgunblaðið/Kristinn
Verkefni Ingveldur Geirsdóttir
tekst á við verkefnið krabbamein.
Árið 2014 var viðburðaríkt hjá Ing-
veldi Geirsdóttur, blaðamanni á
Morgunblaðinu. Um sumarið flutti
hún úr Hlíðunum í Árbæinn ásamt
sex ára gömlum syni sínum, Ásgeiri
Skarphéðni Andrasyni. Um líkt leyti
áttaði hún sig á því að hún væri ólétt,
þá nýbyrjuð með kærastanum sín-
um, Kristni Þór Sigurjónssyni. Um
haustið greindist Ingveldur síðan
með brjóstakrabbamein. „Ég hef
verið að grínast með það við vini
mína að ég ætti að skrifa bók – Karl,
krakki og krabbi,“ segir hún hlæj-
andi.
Ingveldur fór strax í brjóstnám og
fljótlega eftir það hófst lyfjameðferð
sem gengið hefur vel og virðist ekki
ætla að skaða barnið. Ingveldur á að
eiga eftir fimm vikur og segir veik-
indin hafa haft minni áhrif á líf sitt en
hún bjóst við. Hún gerir sér þó fulla
grein fyrir því að verkefninu, eins og
hún kallar það, er hvergi nærri lokið.
Nánar er rætt við Ingveldi í Sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins.
Karl, krakki
og krabbi
Greindist með
brjóstakrabbamein
á meðgöngunni
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vísitala kaupmáttar launa í janúar
sló met og hefur hún ekki verið
jafnhá síðan hún var tekin upp 1989.
Haukur Eggertsson, sérfræðing-
ur á félagsmálasviði Hagstofu Ís-
lands, segir nýjan kjarasamning
lækna og 2% launahækkun hjá
grunn- og framhaldsskólakennurum
um áramótin eiga þátt í að launa-
vísitalan hækkaði í janúar. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
munu kjarasamningar flugmanna og
flugfreyja einnig hafa valdið hækk-
unum á almennum vinnumarkaði.
Til að fá út vísitölu kaupmáttar
launa er launavísitölunni deilt með
vísitölu neysluverðs til að leiðrétta
fyrir verðlagsþróun. Vísitalan er því
mælikvarði á greidd raunlaun, aðra
en tilfallandi yfirvinnu, á hverja
unna vinnustund. „Vísitala kaup-
máttar launa á hverja meðalklukku-
stund án tilfallandi yfirvinnu á Ís-
landi hefur aldrei verið hærri,“ segir
Haukur og tekur fram að yfirvinna
sé ekki tekin með í reikninginn.
Hækkar árslaun um 564 þúsund
Samkvæmt lauslegri áætlun út frá
þróun launavísitölunnar, sem vísi-
tala kaupmáttar launa byggist á, má
ætla að regluleg heildarlaun hafi
hækkað úr 526 þúsund krónum árið
2013 í 573 þúsund kr. í janúar, eða
um 47 þúsund kr. á mánuði. Það þýð-
ir 564 þús. kr. hækkun á árslaunum.
Forstöðumaður efnahagssviðs hjá
Samtökum atvinnulífsins segir litla
verðbólgu eiga þátt í þessari þróun.
MLítil verðbólga » 4
Vísitala kaupmáttar
launa aldrei jafnhá
Læknar, kennarar og flugmenn leiða hækkun í byrjun árs
Morgunblaðið/Ómar
Landspítalinn Hækkun launa hjá
læknum hefur áhrif á vísitöluna.
Hljómsveitin Sykurmolarnir hlaut heiðursverð-
laun Íslensku tónlistarverðlaunanna sem afhent
voru af Illuga Gunnarssyni, menntamálaráð-
herra, í Hörpu í gærkvöldi. „Hljómsveitin Sykur-
molarnir var fyrsta íslenska hljómsveitin sem
náði heimsfrægð og ruddi þannig braut sem
margar íslenskar hljómsveitir hafa fetað upp frá
því,“ sagði meðal annars í rökstuðningi dóm-
nefndar. »48-49
Sykurmolarnir fengu heiðursverðlaun
Morgunblaðið/Ómar
Unnið er að undirbúningi upp-
byggingar á náttúrulaugum við
Deildartunguhver. Stefnt er að því
að ferðafólk á leið um Borgarfjörð
geti á næsta ári baðað sig í vatni
úr vatnsmesta hver Evrópu.
Bræður frá Deildartungu II og
konur þeirra horfa til þess að
ferðafólki sem kemur að
Deildartunguhver fjölgar ár frá
ári og hefur svo verið frá því að
Deildartunguhver var virkjaður á
árinu 1981. »6
Laugar með vatni úr
vatnsmesta hvernum
Ástandið á Landspítalanum er ör-
yggisógn að sögn Páls Matthías-
sonar, forstjóra, en í forstjórapistli
sínum í gær greinir hann frá því
að síðustu vikur á spítalanum hafi
verið verulega þungar. Segir hann
það ráðast af árstíðabundnum
sveiflum tengdum hefðbundnum
umgangspestum svo sem inflú-
ensu.
Hann segir ástandið hafa verið
verst á bráðamóttökunni. „Oftar
en ekki reynist þungt og nánast
ómögulegt að leggja sjúklinga inn
vegna þrengsla og hafa sjúklingar
þurft að dvelja á bráðamóttökunni
of lengi,“ segir Páll í pistli sínum.
Hann segir að meðal annars sé
unnið að leiðum sem stytta inn-
lagningarferli sjúklinga frá bráða-
móttöku á deildir.
Ástandið
öryggisógn
Gríðarlegt álag
á Landspítalanum
1.390 kr.
ALLAR STÓRAR PIZZUR AF MATSEÐLI
EF ÞÚ SÆKIR
PÖNNUPIZZA: 1.590 KR.