Morgunblaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 43
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2015
Seinna, eftir að ég kom heim frá
námi, fluttu ég og fjölskyldan á
Kirkjuteig 11 og þar eru börnin mín
alin upp. Faðir minn gekk í Laugar-
nesskóla, síðan við systkinin og loks
börnin mín. Fyrir mér varð þetta því
hverfi fjölskyldunnar.
Mér er því afskaplega hlýtt til
Teiganna sem hafa lítið breyst frá því
ég man fyrst eftir mér. Mér er tamt
að líta svo á að Teigahverfið sé svolít-
ið sér á parti í borgarmyndinni, svona
eins og lítill bær í borg. Þarna hefur
alltaf verið til staðar öll sú þjónusta
sem fólk þarf oftast á að halda, versl-
anir, fiskbúð, apótek, kirkjan og skól-
inn, Laugardalurinn og fjaran fyrir
okkur krakkana. Auk þess voru
KFUM og KFUK með blómlegt
æskulýðs- og unglingastarf í hverfinu
sem ég tók mikinn þátt í frá níu ára
aldri.
Ekki má svo gleyma sundlauginni
sem gegndi stóru hlutverki á mínum
uppvaxtarárunum. Ég varð synd
mjög ung og sótti mikið í laugina
enda voru foreldrar okkar alltaf dug-
leg að fara með okkur í sund, hvort
heldur í Laugardalslaugina eða hinar
ýmsu laugar á landsbyggðinni þegar
við vorum á ferðalögum.
Nú er ég hins vegar nýflutt í Litla-
gerði sem er skammt frá Bústaða-
kirkju. Ég hef því lengst af búið í ná-
grenni við fallegar kirkjur og er mjög
sátt við það.“
Auður starfaði í rúm sautján ár í
grunnskóla en samtímis að hluta í
Kennaraháskóla Íslands.
Árið 2006 hóf Auður fullt starf við
Kennaraháskóla Íslands sem síðar
sameinaðist HÍ og er nú Mennta-
vísindasvið HÍ.
Frístundir sínar hefur Auður fyrst
og fremst helgað fjölskyldunni, kristi-
legu æskulýðsstarfi, handavinnu og
útivist í nærumhverfinu. Sem stelpa
tók hún þátt í KFUK í Laugarnesinu,
síðan unglingastarfi Laugarneskirkju
og KFUM og KFUK. Á mennta-
skóla- og háskólaárum vann hún í
sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi og
seinna í sumarbúðum félagsins í Öl-
veri, Vindáshlíð og Hólavatni sem
forstöðukona. Hún var einnig virk í
starfi KSS, Kristilegra skólasamtaka,
á menntaskólaárunum. Þá hefur hún
setið í stjórn KFUM og KFUK á Ís-
landi um nokkurra ára bil og síðust ár
gegnt starfi formanns stjórnar fé-
lagsins.
Fjölskylda
Auður giftist 23.1. 2010, Ingólfi Ás-
geiri Jóhannessyni, f. 1.4. 1954, pró-
fessor við Menntavísindasvið HÍ.
Foreldrar hans: Gerður Benediks-
dóttir, f. 20.1. 1920, húsfreyja að
Skútustöðum III í Mývatnssveit, og
Jóhannes Kristjánsson, f. 9.11. 1901,
d. 13.6. 1956, pípulagningameistari á
Akureyri.
Fyrri maður Auðar er Þórarinn
Jón Jóhannsson, f. 21.8. 1963, land-
fræðingur hjá Reykjavíkurborg.
Börn Auðar og Þórarins eru Páll
Ágúst Þórarinsson, f. 29.1. 1995, nemi
við MR; Bjargey Þóra Þórarinsdóttir,
f. 7.10. 1998, nemi við MR.
Systkini Auðar eru Guðmundur
Pálsson, f. 25.5. 1963, upplýsinga-
fræðingur, búsettur í Reykjavík;
Guðbjörg Pálsdóttir, f. 6.1. 1966,
hjúkrunarfræðingur, búsett í Reykja-
vík.
Foreldrar Auðar: Hrafnhildur
Magnúsdóttir, f. 18.2. 1938, banka-
maður, og Páll Guðmundsson, f. 13.8.
1934, d. 13.4. 2001, innanhúsarkitekt.
Úr frændgarði Auðar Pálsdóttur
Auður Pálsdóttir
Páll Guðmundsson
íshússtj. í Hnífsdal
Guðrún Sólborg Jensdóttir
húsfr. í Hnífsdal
Guðmundur Jón Pálsson
húsgagnasmiður í Rvík
Auður Pálsdóttir
húsfr. í Rvík
Páll Guðmundsson
húsgagnasmíðameistari
og innanhússarkitekt í Rvík
Páll Árnason
lögreglum. í Rvík
Kristín Árnadóttir
húsfr. í Rvík
Pálmi Erlendsson
b. í A-Húnavatnssýslu,
síðar í Rvík
Jórunn Sveinsdóttir
húsfr. í A-Húnavatnssýslu, síðar
í Rvík
Magnús Pálmason
bankaritari í Rvík
Guðbjörg Erlendsdóttir
húsfr. í Rvík
Hrafnhildur Magnúsdóttir
bankam. í Rvík
Erlendur Erlendsson
bóndi, síðast á Hnausum
Sigurbjörg Þorseinsdóttir
húsfr. á Blöndudalshólum og Hnausum í A-Húnavatnss.
Á Þingvöllum Auður og Ingólfur.
Hjörtur fæddist í Reykjavík21.2. 1922. Foreldrar hansvoru Pjetur Þórhalli Júlíus
Gunnarsson, stórkaupmaður og end-
urskoðandi í Reykjavík, og Svan-
fríður Hjartardóttir húsfreyja.
Bróðir Pjeturs var Steindór í
Steindórsprenti.
Pjetur var sonur Gunnars Björns-
son, skósmiðs í Reykjavík, og k.h.,
Þorbjargar Pétursdóttur húsfreyju,
en Svanfríður var dóttir Hjartar
Hjartarsonar, trésmíðameistara í
Reykjavík, og k.h., Sigríðar Guð-
finnu Hafliðadóttur húsfreyju.
Eftirlifandi eiginkona Hjartar er
Laura Frederikke Eggertsdóttir
Claessen húsfreyja en börn þeirra
eru Soffía Kristín sem er látin, bók-
ari; Hjörtur Hannes Reynir, starfs-
maður hjá Garðheimum; Halla,
starfsmaður hjá Icelandair, Jean
Eggert, rafvirki, slökkviliðsmaður
og hestabóndi, og Laura, húsfreyja í
Þýskalandi.
Hjörtur lauk stúdentsprófum frá
MR 1941, prófi í viðskiptafræði frá
HÍ 1945, stundaði nám hjá Redovis-
ningstekniska Byrån í Stokkhólmi,
lauk löggildingarprófi í endurskoðun
1950 og prófi í kerfisfræði og for-
ritun bókhaldsvéla við Burrough́s
College í Detroit í Bandaríkjunum
1953.
Hjörtur starfrækti eigin endur-
skoðunarskrifstofu í Reykjavík frá
1946 og til æviloka. Auk þess var
hann sérfræðingur við Seðlabanka
Íslands 1975-89, fyrst í lánadeild en
síðar í rekstrardeild, og átti sæti í
gjaldmiðilsnefndinni sem undirbjó
gjaldmiðilsbreytinguna 1981.
Hjörtur var formaður Félags við-
skiptafræðinga, einn af stofnendum
Lionsklúbbsins Fjölnis og formaður
hans um skeið, félagi í Oddfellow,
sat í stjórn Asma- og ofnæmisfélags-
ins og var formaður þess og fulltrúi
á sambandsþingum SÍBS.
Hjörtur var góður píanóleikari og
lék töluvert á dansleikjum í Reykja-
vík á sínum yngri árum, m.a. með
Poul Bernburg og hljómsveit. Hann
var alla tíð mikill áhugamaður um
garðrækt og hugsaði vel um eigin
garð í Skerjafirðinum.
Hjörtur lést 29.12. 1993.
Merkir Íslendingar
Hjörtur
Pjetursson
Laugardagur
101 ára
Hólm Kr. Dýrfjörð
90 ára
Ingólfur Guðnason
Ingunn Björnsdóttir
Kristín Stefánsdóttir
85 ára
Garðar Guðmundsson
Ólöf Sigríður Sigurðardóttir
Unnur Konráðsdóttir
80 ára
Aðalbjörg Pálsdóttir
Emil Jónasson
Kolbrún Karlsdóttir
75 ára
Dagný Jóna Jóhannsdóttir
Geirþrúður Johannesen
Jóhanna Guðmundsdóttir
Kristín Kjartansdóttir
Ólafur Magnússon
Ólöf Ester Karlsdóttir Celin
Sturlaugur Grétar
Filippusson
70 ára
Kristín Gunnlaugsdóttir
Kristján Jóhannesson
Már B. Gunnarsson
Sylvía Þórunn
Hallsteinsdóttir
60 ára
Freysteinn Guðmundur
Jónsson
Gréta Björg Jósefsdóttir
Guðbjörg Vallaðsdóttir
Haraldur Örn Haraldsson
Inga Stefánsdóttir
Ingimundur Bernharðsson
Margrét G. Sigurbjörns-
dóttir
Ósk Ólöf Sigurðardóttir
50 ára
Aelita Jurkevica
Ásta Björg Ásgeirsdóttir
Björg Guðjónsdóttir
Brynjólfur T. Benediktsson
Guðný Sigurjónsdóttir
Haraldur Guðmundsson
Hörður Magnússon
Katrín Björg Jónasdóttir
Kristinn Guðmundsson
Lára Svansdóttir
Loftur Þór Ingason
Pála Gísladóttir
Ragnar Pálsson
Roman Michal Grzeda
Sigvaldi Óskar Jónsson
40 ára
Atta Mohamd Sufy
Ásta Lilja Ásgeirsdóttir
Hrafnhildur B.
Guðmundsdóttir
Inga Lilja Lárusdóttir
Jóna Kolbrún Árnadóttir
Kolbrún Kristín Karlsdóttir
Kristbjörg H.
Sigurgísladóttir
Mari Johanna Hyyrynen
Pétur Ingi Grétarsson
Ragnheiður Hulda
Friðriksdóttir
Snædís Hjartardóttir
Þorsteinn Mar
Sigurvinsson
Þórdís Bjarney
Guðmundsdóttir
Þórdís Sigfúsdóttir
30 ára
Arnar Magnússon
Bjarki Ragnarsson
Björn Jónsson
Jana Jurecková
Lina Visbergiene
Ragnar Helgi Borgþórsson
Sandra Björk Jónsdóttir
Sigurður Oddsson
Sonja Brödsgaard
Guðnadóttir
Sorakan Naewsoong
Sólveig Kanthi
Engilbertsdóttir
Tomasz Dabrowski
Sunnudagur
90 ára
Halldór Aðalsteinsson
85 ára
Sjöfn Guðjónsdóttir
Þuríður Unnur Björnsdóttir
80 ára
Herdís Gunnlaugsdóttir
Jón Þórðarson
Magnús Jónsson
Sverrir Garðarsson
75 ára
Gunnar Bjartmarsson
Gunndór Sigurðsson
Kristín Ólöf
Hermannsdóttir
Sigurður I. Ólafsson
Sigurjón Jónasson
Þórður Garðarsson
70 ára
Ala Dzmitryieva
Ásta J. Claessen
Hallgerður Ásta V.
Guðjónsdóttir
Svala Jónsdóttir
60 ára
Einar Guðlaugsson
Eiríkur Sturla Jóhannesson
Elín Anna Antonsdóttir
Friðrik Ari Þrastarson
Guðrún Sigurbjörg
Júlíusdóttir
Gunnar Jóhannsson
Halldór Árni Sveinsson
Halldór Leifsson
Haraldur Tryggvason
Hjördís Harðardóttir
Jónína Óskarsdóttir
Ólafur Kjartansson
Ragnheiður Guðnadóttir
Sesilía Helga Magnúsdóttir
Sóldís Elfa A. Loftsdóttir
Vigdís B. Esradóttir
Þórhallur Pálsson
50 ára
Baldur Jörgen Daníelsson
Björn Guðmundsson
Guðný Reynisdóttir
Hólmfríður J.
Þorvaldsdóttir
Hrönn Reynisdóttir
Jóhann Kristinn
Hjálmarsson
Jóhann Sigurþórsson
Kristín Ólöf Jansen
Kristjana Schmidt
Kristján Bjarnason
Ragnhildur Helga
Ingólfsdóttir
Rögnvaldur Ottósson
Sigríður Kristín Ólafsdóttir
Sigurgrímur Ingi Árnason
Steinunn Björg Jónsdóttir
40 ára
Andreas Macrander
Davíð Þór Bragason
Eric Eduard Heinen
Gunnlaug Guðmundsdóttir
Hrafnhildur F. Kristinsdóttir
Hrafnhildur
Guðmundsdóttir
Ingibjörg Áskelsdóttir
Loftur Sveinn Magnússon
Unnur E. Hafstað
Ármannsdóttir
Þór Jóhannesson
30 ára
Magdalena Malgorzata
Wenta
Magdalena Zimny
Ólafur Sigurgeirsson
Siriporn Wattanaset
Tómas Árni Ómarsson
Vignir Arnar Svafarsson
Til hamingju með daginn
Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033
Flottir
í fötum
Ný sending af Bertoni jakkafötum
fyrir töffara á öllum aldri