Morgunblaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2015 „Auðvitað er frábært að fá svona viðurkenningu og ég vona svo sannarlega að þetta sé verðskuldað. En þessi viðurkenning fer líka til þeirra sem hafa fylgt í kjölfarið,“ segir Einar Örn Benediktsson tónlistarmaður, einn stofnenda Smekkleysu SM og meðlimur í Sykurmolunum. „Við stofnuðum Smekkleysu á sínum tíma til að gefa út úrgang félagsmanna eins og sagt er í stefnuskrá Smekk- leysu. Smekkleysa hafði að leið- arljósi orð Pablo Picasso sem sagði eitthvað á þá leið að góður smekk- ur dræpi alla sköpun. Við vorum því alltaf að velta fyrir okkur hvað vondur smekkur væri miðað við góðan smekk. Okkur tókst að slá á alla minnimáttarkennd þegar við sýndum fram á að listamenn frá eyju langt norður í Atlantshafi gætu samt náð augum og eyrum íbúa annarra landa. Sú braut sem við ruddum var að sýna að þetta væri alveg hægt og síðan er það undir hverjum og einum komið hvernig hann vinnur úr því.“ Sykurmolarnir voru mjólkurkýr Að sögn Einars Arnar fjármögn- uðu Sykurmolarnir útgáfu Smekk- leysu á öðrum listamönnum. „Mjólkurkýrin okkar var Syk- urmolarnir sem fóðraði útgáfuna. Í jafnlitlu landi og Ísland er þarf oft á tíðum að aðstoða við að gefa út menningu og listir – og við vorum að því. Það er seinna tíma túlkun að við höfum orðið menningarfyrir- bæri, en það var ekki ætlunin upp- haflega. Markmið okkar var bara að hafa gaman af því sem við vor- um að gera og uppfylla stefnuskrá Smekkleysu um útgáfu úrgangs félagsmanna,“ segir Einar Örn og leggur áherslu á að listamenn verði alltaf að standa við eigin hug- myndir og langanir. „Væntingastjórnun er mjög mik- ilvæg. Mottó okkar var heims- yfirráð eða dauði. Við sættum okk- ur við hvort tveggja og var í raun alveg sama á hvorn veginn þetta færi. Það að vera alveg sama er þó ekki það sama og vera kærulaus heldur að vinna að því sem hug- urinn segir.“ silja@mbl.is Tókst að slá á minni- máttarkenndina  Listamenn standi við eigin hugmyndir og langanir Morgunblaðið/Ómar Sykurmolar Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra afhenti heiðursverðlaun. Morgunblaðið/Ómar Þakklát Hanna Dóra Sturludóttir þakkaði fyrir sig af auðmýkt en hún var valin söngkona ársins í flokknum sígild- og samtímatónlist. Skálmöld Hlaut verðlaun sem tónlistarflytjandi ársins í popp og rokkflokki, fyrir tónlistarviðburð ársins með Sinfó og textahöfundur árs- ins var Snæbjörn í Skálmöld. POPP OG ROKK Rokkplata ársins In the Eye of the Storm með Mono Town Poppplatan Sorrí með Prins Póló Rokklag ársins Peacemaker með Mono Town Popplag ársins Color Decay eftir Unn- ar Gísla Sigurmundsson sem er betur þekktur sem Júníus Meyvant Söngvari Valdimar Guðmundsson Söngkona Salka Sól Eyfeld í AmabA- damA Tónlistarflytjandi Skálmöld Tónlistarviðburður Skálmöld og Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg Textahöfundur Snæbjörn Ragnarsson í Skálmöld Lagahöfundur Svavar Pétur Eysteins- son, einnig þekktur sem Prins Póló Nýliðaplata ársins n°1 með Young Karin Bjartasta vonin Júníus Meyvant DJASS OG BLÚS Bjartasta vonin Anna Gréta Sigurðar- dóttir píanóleikari og lagasmiður Tónverk ársins Sveðjan eftir ADHD af plötunni ADHD5 Plata ársins Íslendingur í Alhambrahöll með Stórsveit Reykjavíkur Tónhöfundur ársins Stefán S. Stef- ánsson fyrir verkin á plötunni Íslend- ingur í Alhambrahöll Tónlistarflytjandi ársins Sigurður Flosason Tónlistarviðburður ársins Jazzhátíð Reykjavíkur SÍGILD OG SAMTÍMATÓNLIST Tónlistarviðburður ársins Sumar- tónleikar Skálholtskirkju Söngvari ársins Elmar Gilbertsson Söngkona ársins Hanna Dóra Sturlu- dóttir Plata ársins Fantasíur fyrir einleiksfiðlu eftir G.P. Telemann í flutningi Elfu Rúnar Kristinsdóttur Tónverk ársins Ek ken di nag eftir Daníel Bjarnason Tónhöfundur ársins Daníel Bjarnason fyrir verkin Blow Bright og Ek ken di nag Tónlistarflytjandi ársins Víkingur Heiðar Ólafsson Bjartasta vonin Oddur Arnþór Jóns- son OPINN FLOKKUR Plötuumslag ársins Kippi Kanínus fyrir Temperaments. Hönnuðir: Ingi- björg Birgisdóttir og Orri Jónsson Myndband ársins Úlfur Úlfur fyrir Tar- antúlur. Leikstjóri: Magnús Leifsson Útflutningsverðlaun Samaris Upptökustjóri ársins Jóhann Jó- hannsson fyrir The Theory of Every- thing Plata ársins í opnum flokki The Theory of Everything eftir Jóhann Jóhannsson HEIÐURSVERÐLAUN Sykurmolarnir 2 VIKUR Á TOPPNUM! VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG www.laugarasbio.isSími: 553-2075 SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS - bara lúxus

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.