Morgunblaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 41
Skjólvangur 8, 220 Hafnarf. - Auk-
aíbúð Fallegt 365 fm einbýlishús í Hafnarfirði
með vel hönnuðum garði. Gengið er inn á efri
hæð hússins sem skiptist í forstofu, tvöfaldan
bílskúr, eldhús, borðstofu, stofu, þrjú svefn-
herbergi, tvö baðherbergi og þvottahús. Neðri
hæð skiptist í sjónvarpshol, stofu, tvö svefn-
herbergi, geymslu og spa með gufu. Auk
þess er á neðri hæð tveggja herbergja íbúð
með sér inngangi. Húsið er laust við kaup-
samning. V. 69,5 m. 4051
Lyngrimi 9, 112 Reykjavík Vel stað-
sett og fallegt 242 fm einbýlishús á tveimur
hæðum, með innbyggðum bílskúr, við Lyngr-
ima í Reykjavík. Eignin er björt, með fallegri
gluggasetningu og staðsett efst í botnlanga-
götu. Neðri hæðin hefur verið öll nýlega end-
urnýjuð á smekklegan máta. Eignin er laus til
afhendingar. V. 56 m. 3575
Bergstaðastræti 86, 101 Reykjavík
Húsið er samtals 286,8 fm að stærð þar af er
bílskúr skráður 22 fm Húsið er tvær hæðir og
kjallari og er upprunalegt að miklu leyti það er
steinað og með harðviðar gluggum. Í kjallara
er tveggja herbergja búð, þvottahús og
geymslu. Á aðalhæð eru tvær stofur, eldhús,
herbergi og snyrting. Á efri hæð eru 3-4 her-
bergi og bað. Frábær staðsetning. Húsið er
laust nú þegar. Sölumenn sýna. V. 88,9 m.
8538
Fífuhjalli 21, 200 Kópavogi Glæsilegt
og vel staðsett 285 fm einbýlishús á einstök-
um stað neðst í Suðurhlíðum Kópavogs. Hús-
ið er staðsett fyrir neðan götu næst innst í
botnlanga við grænt opið útivistar svæði.
Glæsilegt útsýni, fallegur gróinn og skjólgóður
suður garður. V. 72 m. 4017
Lindarberg 72, 220 Hafnarfirði Par-
hús á útsýnisstað samt. 226,9 fm með innb.
30 fm bílskúr. 4 svefnherb. parket. Suðvest-
ursvalir með glæsilegu útsýni. Húsið er til afh.
við kaupsamning. V. 47,9 m. 8489
Reyrengi 49, 112 Reykjavík Fallegt
og vel skipulagt 159,5 fm parhús á tveimur
hæðum ásamt 29,3 fm bílskúr, alls 188,8 fm,
við Reyrengi í Grafarvogi með glæsilegu út-
sýni til norðurs. Húsið er mjög vel staðsett en
það stendur við botnlangagötu. Göngufæri í
Egilshöllina, Spöngina, skóla, leikskóla, golf-
völlinn og fl. V. 49,9 m. 8569
Álfkonuhvarf 21, 203 Kópavogi
Góð 128,5 fm 4ra herbergja enda íbúð ásamt
stæði í bílgeymslu. Sérinngangur er af svölum.
Þrjú svefnherbergi, stofa, borðstofa, forstofa,
eldhús, baðherbergi og þvottaherbergi innan
íbúðar. Laus við kaupsamning.. V. 35,9 m.
8427
Fífusel 37, 109 Reykjavík Ágæt 4-5
herbergja 143,3 fm íbúð við Fífusel í Reykja-
vík. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu og
aukaherbergi í sameign með aðgengi að bað-
herbergi. Íbúðin er laus til afhendingar. V. 26,5
m. 4249
Grettisgata 6, 101 Reykjavík. Ein-
stök 149,5 fm íbúð á 3. hæð í fallegu og
sögufrægu húsi að Grettisgötu 6. Eignin er
mjög vel hönnuð með tveimur svefnherbergj-
um, glæsilegu baðherbergi með hornbaðkari,
stórri stofu og fallegu eldhúsi í mjög snyrtilegu
húsi. V. 59 m. 8560
Stakkholt 2a, 105 Reykjavík Tvær
2ja herbergja 73 fm íbúð á 3. og 4. hæð
merkt 03.07 og 03.08 í nýju glæsilegu lyftu-
húsi við Stakkholt 2-4 í Reykjavík. Stæði í bíla-
geymslu fylgir íbúðunum. V. 33,9 og 34,9 m.
4075
Garðatorg 5, 210 Gbæ - Kjörið
fyrir veitingarekstur Húsið er tvílyft auk
kjallara samtals 643 fm og er í þjónustukjarna
í miðbæ Garðabæjar. Meðfram norðvestur-
og norðausturhliðum eru lokaðar göngugötur.
Í miðju húsinu er rúmgott og bjart stigahús en
þar er m.a. lyfta og sameiginleg snyrting.
Jarðhæðin skiptist í afgreiðslusal, 11 vinnu-
rými, snyrtingu og ræstiklefa. Þrátt fyrir núver-
andi skipulag gæti þessi eign einnig hentað
fyrir veitingarekstur, þá er tekið tillit til þess að
um jarðhæð er að ræða sem er vel staðsett í
þjónustukjarna í miðbæ Garðabæjar. Efri
hæðin skiptist í rúmgott móttökuherbergi,
fundarherbergi, fimm skrifstofuherbergi, opið
vinnurými, eldhús, ræstikompu, eldtrausta
geymslu o.fl. Efri hæðin er að hluta til í leigu í
dag. V. 149 m. 8587
Laugavegur 103, 101 Reykjavík Bil
0102 er rúmgott bjart atvinnuhúsnæði/verslun
/veitingahús. Mjög bjart og skemmtilegt hús-
næði á fínum stað. Stór salur, tvær snyrtingar,
kaffistofa. Góðir gluggar að Laugaveginum.
Sölumenn sýna eignina. V. 49,5 m. 8417
Samtún, mjög góð efri hæð. 125,7
fm efri hæð og ris í að sjá góðu tvíbýlishúsi
miðsvæðis í Reykjavík. Sérinngangur. 3.herb.
stofa og sjónvarpsst. Endurnýjað eldhús. Björt
og góð eign. Suðursvalir. Laus strax. V. 31,9
m. 3878
Reynimelur 28, 107 Rvk. Efri hæð
Stórglæsileg 198 fm eign í mikið endurnýjuðu
þríbýlishúsi á góðum stað við Reynimel í vest-
urbæ Reykjavíkur. Um er að ræða efri sérhæð
auk stæði í bílskúr. Að utan er búið að endur-
steina húsið og er lóðin falleg og snyrtileg.
Geymsluloft er yfir íbúðinni. Sameign er sér-
staklega snyrtileg. V. 67 m. 8412
Naustabryggja 14, 110 Reykjavík
Skemmtileg og björt 188,3 fm íbúð á 3. hæð,
á tveimur hæðum, við Naustabryggju, í
Reykjavík. Stæði í bílageymslu fylgir, tvennnar
suðvestur svalir og falleg stofa með mikilli loft-
hæð. Eignin er laus til afhendingar - lyklar á
skrifstofu. V. 39,9 m. 8421
Mánatún 7-17
90 vandaðar og vel hannaðar íbúðir í
Mánatúni 7-17 í fimm stigagöngum. Húsin eru
hönnuð af Kanon arkitektum og vekja athygli
fyrir gott skipulag og nútímalegt útlit. Allur
frágangur er sérlega vandaður.
• 2ja–4ja herb íbúðir á bilinu 90–186 fm.
• Allar íbúðir eru með sér stæði í bílageymslu.
• Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar í eldhúsi
og baðherbergi, fataskápar í forstofu og
svefnherbergjum.
• Íbúðirnar afhendast fullbúnar
án gólfefna, þó eru flísar á baðherbergi
og í þvottahúsi.
Sölusýning þriðjudaginn 24. febrúar milli kl. 17.00 og 18.00
N
óa
tú
n
Borg
artú
n
Sóltún
www.manatunid.is
Glæsilegar og nútímalegar íbúðir á góðum stað