Reykjalundur - 01.06.1968, Síða 6

Reykjalundur - 01.06.1968, Síða 6
ODDUR ÓLAFSSON: LÆKN AMIÐSTÖD Aðsetur héraðslœknis Álafosshéraðs flytzt að Reykjalundi Friðrik Sveinsson Stuttu eftir að Reykjalundur tók ril starfa, var allmikið um það rætt að læknir héraðs okkar fengi starfsaðstöðu hér. Mörg rök hnigu að því, að slík staðsetning væri heppileg. Reykjalundur er staðsettur í þéttbýliskjarna héraðsins, marg- vísleg tæki þar og önnur aðstaða, sem ekki var fyrir hendi, ef héraðslæknirinn ynni einn og út af fyrir sig. Af ýmsum óstæðum varð þó ekki úr þessu og fyrir 4 árum var hafin bygging læknisbústaðar fyrir héraðið að Varmá. Er Friðrik Sveinsson var skipaður héraðslækn- ir Álafosshéraðs á árinu 1966, stóðu málin þann- ig, að héraðslæknisbústaðurinn var ekki tilbúinn og aðstaða læknisins öll hin erfiðasta. Þá hófu forráðamenn læknishéraðsins máls á því við stjórn Reykj alundar, að læknirinn fengi síarfsaðstöðu hér, en skyldi búa að minnsta kosti íyrst um sinn annars staðar. Samningar tókust, og í ágúst 1966 hóf hér- aðslæknirinn starfsemi sína hér og skömmu síð- ar vorum við svo lánssamir að starfsmannahús losnaði, svo að hann gat flutt til okkar með fjölskyldu sína. Nýlega hefir S.Í.B.S. fallizt á að láta læknis- héraðinu i té lóð undir læknisbústað úr landi Reykjalundar. Þar með má segja að þessi skipan mála sé endanlega ákveðin sem varanlegt fyrir- komulag. Á síðastliðnu hausti, þegar læknadeild Reykja- lundar var flutt í nýtt húsnæði, var héraðslækn- inum fengið þar til afnota sérstakt og viðunandi húsrými. Frá því að Friðrik Sveinsson kom hér til starfa í ágúst 1966, hefir hann unnið með okkur sem þriðji læknir Reykjalundar, við sem fvrir vorum aftur á móti sinnt sjúklingum úr héraðinu, hafi hann verið að störfum annars staðar og all- ir höfum við skipt með okkur kvöld-, nætur- og helgidagavöktum. Þannig hefir skapazt ákjósan- Ieg og náin samvinna, að okkar áliti, öllum til ánægju, léttis og hagsbóta. Héraðsbúar njóta nú þess öryggis, að þeir geta náð til læknis hvenær sem á liggur, enda þótt héraðslæknirinn kunni að vera bundinn við störf annars staðar í héraðinu. Þeir eiga kost á því að njóta allrar þeirrar þjónustu, sem stofn- un eins og Reykjalundur getur veitt. Við höfum aftur á móti fengið aukinn starfskraft og fjöl- breyttari viðfangsefni. 4 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.