Reykjalundur - 01.06.1968, Side 28

Reykjalundur - 01.06.1968, Side 28
HELGA FRÁ HÓLABAKI: Því gleymi ég aldrei Lerigi býr að fyrstu gerð Maltækið segir: Hvað ungur nemur, gamall temur. Ég vildi, að ég gæti tileinkað mér það í því tilviki, sem á eftir fer. En þar vantar mikið á. I sambandi við það liafa samt atburðir gerzt, sem verða mér síðgleymdir. Ég hef unnað íslenzkri tungu frá því að ég fór að geta stautað. Og lært hef ég svo mikið, að ég veit, að íslenzk tunga verður aldrei fulllærð. Og bækur voru mér valdar í æsku, sem hlúðu að þessu. Seinna gekk ég í gamla Kennaraskólann cg naut þar leiðsagnar tveggja af þeim mönnum, er mestu ástfóstri hafa tekið við íslenzka tungu. Það voru þeir sr. Magnús Helgason, skólastjóri og Freysteinn Gunnarsson, er þá kenndi íslenzku í skólanum og síðar varð skólastjóri. Á ég þeim gott upp að inna, því að um leið og þeir kenndu, innrætlu þeir nemendum sínum ást á íslenzkri tungu og þjóðerni. En kunni ég að nota nokk- urn veginn óbjagað íslenzkt mál, á ég það þó fyrst og fremst að þakka gömlum alþýðumanni, sem aldrei gekk í skóla, - ekki einu sinni barna- skóla. Sá maður var faðir minn, Jónas Björnsson, áður bóndi á Hólabaki í Austur-Húnavatnssýslu. Faðir minn var bókelskur mjög og bókvandur og gerði sér einnig far um að nota hreint mál og óbjagað. Ævinlega leit hann eftir hvaða bæk- ur við lásum í æsku, systurnar. Hugnaðist hon- Helga Jónasardóltir um lítt að sjá okkur með lélegar skáldsögur eða bækur á lélegu máli. Eins þær bækur, sem voru það ofvaxnar okkar skilningi, að við áttum á hættu að misskilja þær. Hélt hann slíku lestrar- efni frá okkur eftir föngum, en við reyndum auð- vitað að gleypa allt, ætt og óætt. Eitt sinn var ég sezt út á dyraþrep með bók Annie Besant, Lífsstigann. Var ég þá átta ára. Faðir minn kcm þar að og athugaði, hvað ég væri að lesa. Að því lcknu tók hann bókina af mér með þessum orðum: „Ég skal sannarlega ekki meina þér svona lagaðar bækur, þegar þú hefur fengið vit og þroska til að skilja þær. En hugsun þín hefir elcki öðlazt þann þroska ennþá, svo að þú skalt láta vera í bili. Annars kynnir þú að gera þér rangar hugmyndir um efni henn- ar“. Ég hlýddi, en nú er þetta ein af mínum eftir- lætisbókum - og hygg ég að faðir minn hefði ekkert á móti því. Heyrði faðir minn farið með málleysur og slettur, tók hann jafnhart á því, sérstaklega, ef við systurnar hlýddum á. Ekki þó með boði né banni, heldur ræddi hann um það við okkur á eftir og fór þá háðuglegum orðum um þá, sem ekki kynnu eða þættust of góðir til að nota sitt eigið móðurmál. Hafði þetta langtum meiri á- hrif en allt bann. Ég tala nú ekki um, ef hann 26 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.