Reykjalundur - 01.06.1968, Qupperneq 44
ríkis og bæja, samkv. samningi gerðum 15. júlí.
Aður var hæðin samkomusalur með tilheyrandi
búnaði. Litlar tekjur reyndust af húsrými þessu.
Tilraun um leigu til skemmtana reyndist ekki
vel. Leigutaki bar allan kostnað af breytingu
og frágangi húsnæðisins. Þessi ráðstöfun gerð
af fj árhagsástæðum.
- o -
Til Múlalundar var keypt hálfsjálfvirk vélasam-
stæða til framleiðslu dömubinda. Tækin geta veitt
6 til 10 öryrkjum vinnu. Einnig keypt til sömu
stofnunar vél til framleiðslu á umbúðakössum
og plastþynnum og ný gyllingarvél. Kostnaður
af þessu um % milljón krónur.
- o -
Maí 28. Látinn í Reykjalundi Jón Benjamíns-
son, skipstjóri. Hann var um margra ára skeið
fulltrúi vistmanna í stjórn stofnunarinnar.
Júní 14. Látinn i Reykjalundi Einar M. Jóns-
son, rithöfundur. Kennari við Iðnskóla Reykja-
lundar og síðan skólastjóri 5 síðustu æviárin.
Júní 28. Látinn í Reykjalundi Hjörtur Krist-
jánsson, trésmíðameistari. Hann var meðal fyrstu
starfsmanna í Reykjalundi og alla tíð forstöðu-
maður og kennari við trésmíðaverkstæði staðar-
ins.
- o —
Allvíðtækar breytingar gerðar á innréttingu
vinnuskála Reykjalundar til hagræðis fyrir fram-
leiðsluna. Framhaldið viðgerð elztu bygginganna.
Sleitulaust unnið að byggingu gríðarlega mikils
geymsluhúss að baki vinnuskálanna, sambyggt
skálunum, en aðskilið með gangi. Húsið er 1500
ferm. að flatarmáli.
- o -
Jón Tómasson lét af starfi framkvæmdastj óra
Múlalundar. Við starfi hans tók 3. marz Sigurður
Hannesson, viðskiptafræðingur.
- o —
14. þing S. í. B. S. var haldið í Reykjalundi
dagana 4.-6. sept. 79 fulltrúar sátu þingið. 1.
42
forseti þingsins var kjörinn Jónas Þorbergsson.
Gestir við þingsetninguna voru meðal annarra
forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, Gunnar
Thoroddsen, fj ármálaráðherra og frú hans. Fjár-
málaráðherra flutti ávarp. Oddur Ólafsson flutti
erindi um berklaveiki á víðum grundvelli, um
ástand og horfur í baráttunni gegn henni um
víða veröld. Að venju fluttar skýrslur um rekstur
sambandsins og fyrirtækja þess. Einnig fluttu
deildarformennirnir skýrslur um starfsemi þeirra.
Þá voru reikningar allir lesnir og þeir útskýrðir.
Síðan samþykktir athugasemdalaust.
Samþykkt tillaga frá sambandsstjórninni þess
efnis, að samin verði ný reglugerð fyrir Reykja-
lund.
Fram var borin tillaga frá Sjálfsvörn Krist-
nesshælis, þar sem óskað var eftir að athugaðir
verði möguleikar á að byggja nýjar vinnustofur
í Kristnesi eða endurbæta þær, sem fyrir eru.
Sambandsstjórninni falin afgreiðsla málsins. Þá
var flutt ályktun milliþinganefndar um endur-
skoðun laga og skipulags sambandsins.
Endurkosnir voru til fjögurra ára í sambands-
stjórn þeir Þórður Benediktsson, formaður, Odd-
ur Ólafsson, Kjartan Guðnason og Guðmundur
Svavar Jónsson. í varastjórn til tveggja ára: Guð-
mundur Guðmundsson, Elín Jósefsdóttir, Harald-
ur Jóhannsson og Magnús Fjeldsted, öll endur-
urkjörin. í stjórn Reykjalundar var endurkjör-
inn Ástmundur Guðmundsson og í stjórn Múla-
lundar Sveinn Indriðason. í stjórn Vinnustofu
Kristnesshælis Jóhannes Hermundsson.
Þingslit fóru fram í Múlalundi. Þar ávarpaði
Steindór Steindórsson, yfirkennari, fulltrúana.
Síðan sleit 1. forseti, Jónas Þorbergsson, þinginu
með ræðu.
— o -
Okt. 7.: Kosið í embætti innan sambandsstj órn-
anna. Kjörnir voru: Oddur Ólafsson, varafor-
maður; Kjartan Guðnason, rilari og Júlíus Bald-
vinsson, gjaldkeri. Kosnir 2 menn í stjórn Reykja-
lundar: Höskuldur Ágústsson og Baldvin Jóns-
son. í stjórn Múlalundar: Guðmundur Guð-
REYKJALUNDUR