Reykjalundur - 01.06.1968, Side 59

Reykjalundur - 01.06.1968, Side 59
6. dagur. Sunnudagur 30/9. Dagur í ró og næði. Reiknum og kalkulerum til þess að geta staðið klárir við samningsgerð við Rhodin. Gengum snemma til náða. Vissum að framundan var erfið vika. 7. dagur. Mánudagur 1/10. Fyrir hádegi gengið á fund Hansens hjá Sam- einaða. Hann var gramur yfir áróðri okkar við skipstjórann. Kvartar yfir því að hafa ekkert heyrt frá Rhodin. Heimtar enn á ný nákvæmar skriflegar upplýsingar um góssið, allt smátt og stórt, vegið og mælt og er smámunalegur og sér- vitur úr hófi fram. „Maður ætti ekki að taka í mál að flytja öll þessi óargadýr í farþegaskipi og hafa þau á dekkinu til að hræða farþegana“, sagði hann. - Við segjum honum að á morgun ætlum við að fara á fund hjá Rhodin og lofum að koma með fullnægjandi skýrslu. Áreið- anlega verðið þið að borga í d. kr. fyrir fólkið. Þessu bætti hann við til að hrella okkur. Fórum á fund Jóns Guðbrandssonar hjá Eim- skip til að fregna um hugsanlegan flutning cirk- usins frá Reykjavík til Kaupmannahafnar. Taldi hann líkur fyrir því hverfandi litlar, enda væri allt óráðið um vetrarferðir m. s. Gullfoss. Litum líka í sömu erindum inn í Skrifstofu S. í. S. Þar var enga úrlausn að fá. Þá undum við okkur til S. A. S., ef ske kynni að loftflutningur væri hugsanlegur. Stóð stuggur af þeirri tilhugsun að sitja uppi með cirkusinn í Reykjavík lengur en hagkvæmt reyndist. S. A. S. lofar svari á mið- vikudaginn. Fengum neikvætt svar á tilteknum tíma. 8. dagur. Þriðjudagur 2/10. Fórum til Malmö á ferjunni kl. 10.45. Þaðan í strætisvagni til Mariedal. Rhodin, sem tiltekið hafði stað og stund til mótsins lét sér sæma að vera fjarverandi. Hafði brugðið sér til Stock- hólms snemma morguns. Engan var í Mariedal að finna, sem umboð hafði til að semja né láta aðrar upplýsingar í té. Þó vildi svo vel til að tjaldmeistarinn var viðstaddur og gátum við með aðstoð hans mælt allt hafurtaskið utan dýrabúrin, sem geymd voru í Trelleborg. Nú komu þau skila- boð frá Rhodin að hann muni koma með lestinni til Malmö kl. 21.45. Við fórum þangað og ætluð- tnn að grípa hann glóðvolgan á brautarpallinum. Oðru hverju hringdum við til Mariedal, ef ske kynni að Rhodin væri kominn heim um aðra vegi og það var einmitt það, sem hann gerði. Kl. 20.00 upplýsir Mariedal að hann hafi litið þar inn, en farið samstundis til Trelleborgar. Nú vorum við Árni orðlausir af undrun og gremju og vorum þó orðnir ýmsu vanir. Fórum með næstu ferju til Hafnar. 9. dagur. Miðvikudagur 2/10. Kl. 7.30 hringir Rhodin frá Trelleborg og bið- ur afsökunar á fjarveru sinni í gær og setur okk- ur nýtt stefnumót í Mariedal kl. 13.30. Áður en við yfirgáfum hótelið, hringdum við í Hansen og sögðum honum hvernig farið hafði um för okk- ar til Mariedal í gær, en í dag værum við vissir um að hitta Rhodin og umbeðin gögn skyldi hann fá í hendur í fyrramálið. Hann var van- trúaður og ekki gátum við láð honum það. Og enn er siglt yfir sundið til Malmö og þaðan beina leið með strætisvagni til Mariedal, svo nákunnug- ir sem við vorum nú í þessum landshluta. Trolle tók á móti okkur brosandi og allur elskulegur. Furðu létt var að fyrirgefa þeim manni. Hófst nú samningafundur í viðurvist Rhodins-fjölskyld- unnar. Bar þar mest á móður Trolle og leyndi sér ekki að hann var móður sinni háður og að hún var hinn raunverulegi forstjóri. Þetta var hörkukerling og erfiður aðili í samningum. Seinna komumst við að því, að hún var lítt vin- sæl meðal starfsfólksins og Trolle var bara auga- steinn hennar, fallegi drengurinn hennar. Fyrsta innlegg í málið af hálfu fjölskyldunnar var krafa um að báðar ferðir skyldu vera cirk- usnum að kostnaðarlausu, en önnur atriði samn- ingsins óbreytt. Þetta var veigamikið atriði og átti að knýja það fram á þeirri forsendu að Rhod- in var ekki viðlíka skuldbundinn sem við. Hann var búinn að segja upp öllum artistunum og ráð- stafa dýragarðinum. Framundan var vetrarfrí hans og móðirin hrædd við þá áhættu, sem hana UEYKJALUNDUR 57

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.