Húnavaka - 01.05.1964, Page 43
GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON frd Bergsstöðum:
Rœoa
flutt á nfmœli Knrlakúrs Bólstaðarhliðarhrepps.
CTÓðir télagar og gestir!
Ég býð ykkur (311 hjartanlega velkomin til þessa fagnaðar og óska
þess, að stundin megi verða okkur til ánægju.
Það þótti hlýða á þessum tímamótum Karlakórs Bólstaðarhlíðar-
hrepps, að gera sér nokkurn dagamun, endurnýja gömul kynni og
bjóða til þessa liófs gömlum félögum og öðrum góðum velunnur-
um og styrktarmönnum.
Það verður auðvitað alltaf mikið álitamál fyrir félagsskap sem
þennan, sem víða hefur farið og margs notið lyrir annarra atbeina,
hvar mörkin skuli draga á milli velunnara og óviðkomandi. Má vera,
að okkur hafi sézt yfir að bjóða einhverjum, sent heyrðu undir þá
neglu, sem við settum okkur þar um, en viljandi er það ekki gert.
Mér verður hugsað til hinna mörgu, sem gengið hafa í verkin okk-
ar í sambandi við æfingar og söngferðir, og þannig bætt á sínar
lierðar auknu erfiði, að gaman hefði verið að hala allt það fólk á
meðal okkar hér í kvöld. Sumt af því er hér mætt, en því miður
allt of fátt. Hinu, sem heima situr, eða er l'arið eitthvað út í ver-
öldina, sendum við þakkir og hlýjar kveðjur í huganum.
Mér verður einnig lnigsað til hinna mörgu, sem komið hala á
söngskemmtanir okkar víðs vegar, fagnað okkur vel og eflaust bet-
ur en við áttum skilið. Það leikur ekki á tveini tungum, að í slík-
um undirtektum er falin viss hvatning og þess ber einnig að minn-
ast og þakka.
Og mikið hefði nú verið ánægjulegt, að liafa efni og aðstæður
til að bjóða þeim stóra og óþekkta hóp á einn stað, veita honum