Morgunblaðið - 20.05.2015, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Eiginfjárstyrking íslenskra heimila
á undanförnum misserum vegna
hækkandi raunverðs fasteigna gæti
gengið til baka vegna verðbólgu-
skots á næstu misserum. Koma þar
til hugsanleg verðbólguáhrif kjara-
samninga og mögulegt verðbólgu-
skot við afnám gjaldeyrishafta.
Magnús Árni Skúlason, sérfræð-
ingur hjá Reykjavik Economics,
gerði grein fyrir þessum áhættu-
þáttum í fyrirlestri hjá Íslands-
banka, er hann kynnti rannsókn á
íbúðamarkaði sem hann vann fyrir
bankann.
Magnús Árni rifjaði þar upp að
vegna gengisfalls og verðbólguskots
í kjölfar efnahagshrunsins 2008 hafi
skuldir heimila
hækkað verulega
og orðið hæstar
126% af vergri
landsframleiðslu
(VLF) í byrjun
árs 2009.
Samkvæmt ný-
legri úttekt fjár-
málaráðuneytis-
ins nemi skuldir
heimila nú 90,5%
af VLF og höfðu lækkað um 10% á
árinu 2014.
Gæti dregið úr greiðsluvilja
„Í síðustu skýrslu Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins (AGS) um Ísland sem
var gefin út í mars sl. er ágætis
umfjöllun um þá óvissu sem er í
kringum losun gjaldeyrishafta. Mis-
stígi stjórnvöld sig við losun hafta
geta afleiðingarnar orðið mjög al-
varlegar … Samkvæmt úttekt AGS
voru verðtryggð lán um 81% af
VLF í árslok 2013 en verðbólguskot
í kjölfar gengisfalls gæti haft veru-
leg áhrif á fjármál heimila og ef
laun hækkuðu ekki til samræmis
gæti greiðsluvilja verið stofnað í
hættu sem hefði þá áhrif á efna-
hagsreikning fjármálakerfisins,“
skrifar Magnús Árni.
Spurður hvort allar líkur séu á
því að skeið lágra vaxta og sögu-
lega lágrar verðbólgu sé senn að
baki segir Magnús Árni meiri líkur
en minni á að verðbólga og vextir
muni hækka á næstu misserum.
Hann bendir á að margir fyrstu
kaupendur taki nú 40 ára verð-
tryggð jafngreiðslulán til að stand-
ast greiðslumat. Verðbólguskot geti
þurrkað upp eignamyndun þessa
hóps á markaði sem sé nú erfiður
fyrir hann vegna lítils framboðs.
Mesti fjöldi samninga frá 2007
Fram kemur í skýrslunni að
fjöldi þinglýstra kaupsamninga í
mars var 713 og að þeir hafi ekki
verið fleiri síðan í nóvember 2007.
Vegna verkfalls hjá BHM hefur
samningum ekki verið þinglýst frá
1. apríl.
Til samanburðar hafi verið byrj-
að á 570 íbúðum í fyrra sem sé
langt undir langtímameðaltali.
Þannig hafi að jafnaði verið byrjað
á 1.182 íbúðum ár hvert tímabilið
1983-2014. Lítið framboð einkenni
markaðinn sem ætti að þrýsta á
hækkun.
Gæti skert eigið fé heimila
Sérfræðingur segir verðbólguhorfur ógna eiginfjármyndun heimila í húsnæði
Styrking síðustu ára geti horfið Nýbyggingar langt undir langtímameðaltali
Magnús Árni
Skúlason
Í sumar mega íbúar Reykjavíkur
búast við að grasið verði oftar sleg-
ið en síðasta sumar. Reykjavík-
urborg hefur fest kaup á fleiri
garðsláttutækjum og stefnt er að
því að grasið verði slegið einni um-
ferð oftar en í votviðrinu í fyrra-
sumar.
„Munurinn frá því í fyrra er að
við fjölgum um eina umferð við
þjóðvegi í þéttbýli í fjórar umferðir
í staðinn fyrir þrjár. Annars staðar,
eins og t.d. í íbúðahverfunum,
reiknum við með að ná helst þrem-
ur umferðum í stað tveggja eins og
var í fyrra.
Helstu útivistarsvæði, t.d. Hljóm-
skálagarðurinn, Laugardalurinn,
o.fl., verða slegin vikulega eins og
verið hefur,“ segir Björn Ingvars-
son, deildarstjóri þjónustu-
miðstöðvar borgarlands Reykjavík-
urborgar, um áætlun um grasslátt
sumarið 2015.
Þó svo að tækjakosturinn hafi
verið aukinn mun mannaflinn verða
sá sami sem sinnir grasslætti.
Góð spretta komin 26. maí
Björn tekur þó fram að sláttur-
inn fari alltaf eftir sprettunni.
„Þetta byrjar nú ekki vel í þess-
ari viku, bara rigning í kortunum,
en það er aðeins komið grænt. Ég
geri alltaf ráð fyrir að gras sé farið
að spretta fyrir alvöru í Reykjavík
26. maí en þá reiknum við með því
að hefja slátt,“ segir Björn.
thorunn@mbl.is
Grasið oftar slegið í borg-
inni í sumar en í fyrra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sumarið 2014 Minni órækt verður
í borginni í sumar en síðasta sumar.
Keyptu fleiri
sláttuvélar
Alþingismenn
minntust Hall-
dórs Ásgríms-
sonar, fyrrver-
andi forsætis-
ráðherra, í gær.
Einar K. Guð-
finnsson, forseti
Alþingis, sagði þá
meðal annars að
við hið óvænta og
ótímabæra fráfall
Halldórs ætti þjóðin á bak að sjá ein-
um helsta stjórnmálaforingja sínum
um áratugaskeið.
Við upphaf þingfundar fór Einar
yfir lífshlaup Halldórs. Þingmenn
risu að því loknu úr sætum sínum og
vottuðu minningu hans virðingu.
Halldór var fyrst kjörinn á Al-
þingi árið 1974. Fram kom í máli
Einars, að Halldór hefði setið á 37
löggjafarþingum og verið ráðherra í
rösk 19 ár. Hann hefði aflað sér þeg-
ar á fyrstu þingmannsárum sínum
mikils trausts, ekki aðeins meðal
flokksmanna sinna, heldur langt út
fyrir raðir þeirra. Hefði Halldór ver-
ið með yngstu mönnum kjörinn til
þingsetu og yngstur þingmanna
Framsóknarflokksins í mörg kjör-
tímabil, eins og hann sagði oft sjálf-
ur í gamni. En þegar hafi orðið ljóst
að þar fór framtíðarforingjaefni
flokksins.
Stefnufastur stjórnmálamaður
„Hann hafði yfirgripsmikla þekk-
ingu á efnahags- og atvinnumálum
og þótti stefnufastur stjórn-
málamaður og var stundum líkt við
klett í hafi,“ sagði Einar. „Í dagfari
sínu var hann hægur og yfirvegaður
og fór vel með sitt mikla skap og
kappsemi. Hann var hlýr í viðmóti,
drenglundaður og vinur vina sinna.
Þótt alvörugefinn væri var jafnan
stutt í glensið og hann hafði gaman
af því að gleðjast með mönnum þeg-
ar honum þótti það við eiga. Það ein-
kenndi störf Halldórs mest á farsæl-
um ferli hans í stjórnmálum að hann
var afkastamaður og ósérhlífinn, en
var jafnframt óvenjulega glögg-
skyggn og sanngjarn. Sem foringi
var hann óvílinn og tók af skarið þótt
mál væru umdeild. Þeir sem þekktu
og unnu með Halldóri Ásgrímssyni
hér á Alþingi og í ríkisstjórn sakna
nú góðs vinar og öflugs samstarfs-
manns sem alltaf var hægt að
treysta,“ sagði Einar K. Guðfinns-
son. gummi@mbl.is
Minntust
Halldórs
á Alþingi
Halldór
Ásgrímsson
Sat alls á 37
löggjafarþingum
Firstrain regnkápa
2 litir/St. XS–XL
Austurveri, Háaleitisbraut 68 • sími 568 4240
Opið: mán.–fös. 10–18, lau. 10–16
Nýtt frá
Náttúrulegt gúmmí
Stærðir
36–41
Miss Juliette Bot
Nýr litur:
Bambou/Souris
Miss Julie
Litur: Noir
Nú þegar sól hækkar á lofti með degi hverjum
sjást fleiri verktakar að störfum úti við, hvort
sem það er stígagerð, malbikun eða húsasmíði. Á
plani einu í Laugarneshverfinu er verið að mal-
bika og þar ræddust við tveir starfsmenn verk-
takans. Vegfarendur gengu hjá og einn hundur.
Glaðnar yfir verktökum við hækkandi sól
Morgunblaðið/Golli