Morgunblaðið - 20.05.2015, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Reykjavíkurborg - skrifstofa eigna og atvinnuþróunar ı Ráðhúsi Reykjavíkur - Tjarnargötu 11 ı www.reykjavik.is/sea ı s. 411 11 11
Reykjavíkurborg óskar eftir samstarfi við
byggingarfélög, sjálfseignarstofnanir,
húsnæðissamvinnufélög og leigufélög,
sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða og
hafa að markmiði byggingu íbúða fyrir
félagsmenn sína.
Þetta verkefni varðar tvö byggingarsvæði:
Í Vesturbugt er áformað að reisa allt að
80 íbúðir á grundvelli þessa samstarfs og
á lóðum Reykjavíkurborgar við Kirkjusand
um 100 íbúðir. Þegar fjöldi og samsetning
samstarfsaðila liggur fyrir er áformað að
bjóða lóðirnar út í almennu útboði.
Samstarfið er liður í þróunarverkefni sem
kallast „Nýju Reykjavíkurhúsin“. Það byggir
á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010 - 2030
og nýrri húsnæðisstefnu borgarinnar,
Samstarf í húsnæðismálum - „Nýju Reykjavíkurhúsin“
„Nýju Reykjavíkurhúsin”
R
E
Y
K
J
A
V
ÍK
U
R
B
O
R
G
sem gera ráð fyrir auknu og fjölbreyttu
framboði húsnæðis fyrir ólíka félagshópa.
Þau félög sem vilja kynna sér nánar þetta
samstarf og uppbyggingarsvæði geta fengið
sérstaka kynningu hjá skrifstofu eigna og
atvinnuþróunar.
Félög sem hafa áhuga á samstarfi og uppfylla
framgreind viðmið skulu tilkynna um áhuga
sinn til skrifstofu eigna og atvinnuþróunar í
Ráðhúsi Reykjavíkur fyrir 29. maí 2015.
Netfang: sea@reykjavik.is
Nánari upplýsingar á vefsíðunni
reykjavik.is/lodir
Kirkjusandur - frumhugmynd að
deiliskipulagi
Vesturbugt - skipulagshugmynd
Vesturbugt
Kirkjusandur
Icelandair hóf í gær áætlunarflug til
Portland í Oregonríki í Bandaríkj-
unum. Farþegum á fyrsta fluginu
var boðið upp á sérbakaða og
skreytta tertu á Keflavíkurflugvelli,
eins og hefð er fyrir, og þeir Hlynur
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Keflavíkurflugvallar, og Birkir
Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri
Icelandair, klipptu á borða til að
fagna tímamótunum, að því er segir
í fréttatilkynningu.
Portland er 14. áfangastaður fé-
lagsins í Norður-Ameríku og þriðja
borgin sem Icelandair flýgur til á því
svæði sem gjarnan er kallað Pacific
Northwest eða „Kyrrahafs-
norðvestrið“.
Hinar borgirnar eru Seattle og
Vancouver. Íbúafjöldi á Portland-
svæðinu nemur um 2,3 milljónum en
Icelandair segir að sem ferða-
mannaborg sé hún einkum þekkt
fyrir náttúrufegurð og mikinn fjölda
sjálfstæðra bjórgerðarhúsa.
Flogið verður til Portland tvisvar
í viku, á þriðjudögum og fimmtudög-
um, til 20 október nk. Alls flýgur Ice-
landair í ár til 14 áfangastaða í
Norður-Ameríku og 25 í Evrópu.
Auk Portland er Birmingham í Eng-
landi nýr áfangastaður á þessu ári.
Ljósmynd/Icelandair
Borðaklipping Birkir Hólm Guðnason frá Icelandair og Hlynur Sigurðsson
frá Keflavíkurflugvelli klippa á borða í Leifsstöð í gærmorgun.
Fyrsta flug Ice-
landair til Portland
14. áfangastaðurinn í N-Ameríku
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Stjórnarskrárvarin réttindi ákærðu í
stóra markaðsmisnotkunarmáli
Kaupþings voru virt að vettugi með
því að takmarka aðgang ákærðu og
verjanda þeirra að gögnum í málinu.
Þar hafi þeir aðeins haft aðgang að
þeim gögnum sem ákæruvaldið valdi
meðan mikilvægt sé að aðilar beggja
hliða málsins hafi jafnan aðgang að
gögnunum. Þetta kom fram í máli
Harðar Felix Harðarsonar, verjanda
Hreiðars Más Sigurðssonar, fv. for-
stjóra Kaupþings, í málflutningi
hans í gær.
Ekki fullkominn heimur
Sagði hann að ákæruvaldið hafa
haft aðgang að tugmilljónum tölvu-
pósta og símtölum. Þau gögn sem sí-
uð voru út, með hjálp tölvubúnaðar,
hafi ákærði geta fengið aðgang að en
ekki þeim sem eftir stóðu. Þau hefðu
mögulega varpaði annarri sýn á mál-
ið en þeirri sem ákæruvaldið bregð-
ur upp. „Jafnvel í fullkomnum heimi,
þá á ákærður maður samt rétt til að
aðgangs að gögnum í sínu máli,“
sagði hann og bætti við að hér væri
umhverfið síður en svo fullkomið.
Setti Hörður einnig út á meðferð
ákæruvaldsins með hlustuð símtöl,
en allar beiðnir sérstaks saksóknara
fyrir símahlerunum voru samþykkt-
ar. Benti Hörður á að með hlerunum
væri grafið undan friðhelgi einkalífs
fólks og þá væri þetta háa hlutfall
ekki til þess fallið að telja að með-
alhófs hefði verið gætt.
Hörður kom einnig inn á það í mál-
flutningi sínum að engin formleg
kæra hefði borist frá Fjármálaeftir-
litinu til embættis sérstaks saksókn-
ara vegna viðskipta félaganna De-
sulo og Holts, heldur væri aðeins um
að ræða bréf þar sem sagt var að
embættið myndi skoða önnur við-
skipti seinna. Vegna ákvæðis í lögum
um verðbréfaviðskipti þar sem fram
kemur að FME skuli kæra meint
brot til lögreglu segir Hörður að vísa
skuli þeim atriðum frá dómi, því eng-
in kæra hafi í raun komið fram.
Meinað að hitta verjanda sinn
Gestur Jónsson, verjandi Sigurðar
Einarssonar, fv. stjórnarformanns
Kaupþings, krafðist frávísunar á
þætti Sigurðar í málinu í gær, meðal
annars á þeim grundvelli að aðstaða
fyrir skjólstæðing sinn hefði ekki
verið boðleg sem hefði orsakað að
Sigurður gat ekki setið réttarhöldin
eins og honum væri heimilt. Þá hefðu
fangelsisyfirvöld komið í veg fyrir að
Sigurður og lögmaður hans gætu
fundað helgina fyrir yfirheyrslu
hans í málinu. Segir hann þetta
brjóta gegn ákvæðum mannrétt-
indasáttmála Sameinuðu þjóðanna
og lögum þar sem segir að sakborn-
ingur eigi að hafa nægan tíma og að-
stöðu til að undirbúa vörn sína.
Stjórnarskrárvarin
réttindi virt að vettugi
Málflutningur verjenda Hreiðars Más og Sigurðar hafinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frávísun Verjendur Hreiðars Más og Sigurðar lögðu báðir fram frávís-
unarkröfur fyrir héraðsdómi í gær þegar málflutningur þeirra hófst.
Hughrif
» Verjandi Hreiðars var harð-
orður út í framkvæmd spilana
á símtölum fyrir réttinum.
» Sagði hann ætlun ákæru-
valds vera að vekja upp hughrif
sem fengin væru með að
brjóta á rétti sakbornings til að
tjá sig ekki, en sá réttur væri
sterkur.
Samþykkt var í borgarstjórn í gær
að skora á mennta- og menningar-
málaráðherra að vinna að því að
önnur sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu taki þátt í rekstrarkostnaði
Sinfóníuhljómsveitar Íslands, eins
og heimilt er í lögum.
Takist það ekki er því einnig beint
til ráðherra að leggja fyrir Alþingi
að gera breytingar á lögum með það
fyrir augum að endurskoða ákvæði
um fjármögnun Sinfóníuhljómsveit-
arinnar, til að breikka hóp bakhjarla
hennar og renna þannig öflugri stoð-
um undir hljómsveitina. Þá segir að
starfsemi sveitarinnar og aðdáenda-
hópur sé ekki bundinn við borgar-
mörkin. Borgarstjóra var falið að
fylgja málinu eftir.
Tillagan var upphaflega lögð fram
af Júlíusi Vífli Ingvarssyni, borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, en var
samþykkt í breyttri mynd eftir um-
ræður í borgarstjórn.
Morgunblaðið/Þórður
Tónlist Borgin og ríkið eru bak-
hjarlar Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Fleiri sveit-
arfélög komi
að kostnaði
Sinfónían nær út
fyrir borgarmörk