Morgunblaðið - 20.05.2015, Síða 44

Morgunblaðið - 20.05.2015, Síða 44
44 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015 Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288                                     !  "# ##$ $$" #! %%  % "!" %"! &'()* (+(    ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 "#  %!  "! #" $!" "!# %!  #$# "%" %$$#     "" #"!# $$ # %    "!  %"  !%#! Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Upplýsingafyrirtækið Já hefur gert samning við eigendur Gallup um kaup á öllum hlutabréfum í fyrirtækinu. Heild- arvelta Já eftir kaupin verður um 1,7 milljarðar króna og fjöldi starfsmanna um eitt hundrað. Í tilkynningu frá Já kemur fram að fyrirtækið hefur undan- farin ár lagt áherslu á upplýsinga- þjónustu sem auðveldar viðskipti og samskipti og að Gallup hafi verið í for- ystu á sviði markaðs-, starfsmanna- og viðhorfsrannsókna. „Bæði fyrirtækin eru upplýsingafyrirtæki þó þau starfi á ólíkum mörkuðum, kaupin auka fjöl- breytni í rekstri Já og gera starfsum- hverfið áhugaverðara og fjölbreyttara,“ er haft eftir Sigríði Margréti Odds- dóttur, forstjóra Já, af þessu tilefni. Já hefur keypt Gallup ● Icelandair Group hefur gengið frá samningi um lánalínu við Íslandsbanka til fimm ára upp á 70 milljónir dollara, eða sem jafngildir um 9,3 milljörðum króna. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að Icelandair hyggst draga á línuna eftir þörfum til að jafna árs- tíðasveiflur í rekstri félagsins, styðja við áframhaldandi vöxt og fjármagna að hluta væntanlegar fjárfestingar í flug- vélum sem tilkynntar hafa verið. Íslandsbanki veitir Icelandair lánalínu STUTTAR FRÉTTIR ... BAKSVIÐ Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is Alls verða 20.956 flugsæti í boði frá Íslandi í viku hverri til 13 borga í Norður-Ameríku með íslensku flug- félögunum Icelandair og WOW air í sumar. Brottfarirnar eru 295 samtals á viku. Icelandair er með 284 ferðir frá Keflavík til Norður-Ameríku og WOW air er með 11 ferðir í hverri viku. Norrænu flugfélögin SAS og Norwegian fljúga til mun færri borga í Norður-Ameríku. SAS flýgur til 5 borga, New York, San Francisco, Chicago, Houston og Washington. Norwegian flýgur til 4 borga núna sem eru New York, Orlando, Miami og Fort Lauderdale en í haust bætist Las Vegas við sem áfangastaður. Norðurlandabúar geta því komist til 19 borga alls í Norður-Ameríku með þessum fjórum flugfélögum. Fleiri borgir að bætast við Á vefsíðunni Check-In kemur fram að Icelandair sé stærra en Norwegian og SAS þegar kemur að sætaframboði í flugi til Norður-Am- eríku í sumar og sé því orðið alvöru keppinautur í samkeppninni. Tiltekið er að Boston sé vinsælasti áfanga- staðurinn hjá Icelandair en þangað sé flogið þrisvar á dag auk þess sem flug til New York sé einnig þrisvar á dag þar sem tvær flugferðir eru farnar á JFK-flugvöllinn og ein flugferð á Newark. SAS og Norwegian bjóða samanlagt tæplega 47 þúsund sæti vikulega í 186 brottförum fram og til baka til átta borga. Icelandair ætlar að bæta við fleiri áfangastöðum í Norður-Ameríku en nú þegar eru 18.756 sæti í boði viku- lega frá Keflavík. Í gær hófst flug til Portland og tilkynnt hefur verið að Chicago bætist við í mars á næsta ári. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, segir að vöxturinn í Ameríku-fluginu byggist á leiðakerfi Icelandair og tengiflugi milli Norður- Ameríku og Evrópu. „Með aukinni tíðni og fjölda áfangastaða styrkist starfið jafnt og þétt. Þetta gefur ís- lenskri ferðaþjónustu stóraukinn markaðsaðgang.“ Spurður um sæta- nýtingu segir Guðjón að allt gangi samkvæmt áætlunum um þessar mundir. Stefnir í 90% sætanýtingu WOW air flýgur til tveggja borga í Norður-Ameríku, Boston og Wash- ington DC. Að sögn upplýsingafull- trúa félagsins, Svanhvítar Friðriks- dóttur, eru áform um að bæta við fleiri áfangastöðum á næsta ári. Flug- félagið flýgur núna 6 sinnum í viku til Boston og 5 sinnum í viku til Wash- ington. WOW air er með samtals 2.200 sæti vikulega frá Keflavík til Norður-Ameríku, 1.200 sæti eru í boði á viku til Boston og 1.000 sæti til Washington DC. „Þegar við hófum sölu á ferðum til Norður-Ameríku í október á síðasta ári ætluðum við ein- göngu að fljúga fjóra mánuði á ári og þrisvar í viku til Washington DC en áfangastaðurinn gekk mun betur en við héldum í fyrstu og var því ákveðið í janúar að fljúga þangað allan ársins hring og var bætt við einu flugi á viku.“ Svanhvít segir að í haust verði tilkynnt um nýja áfangastaði í Am- eríku sem verður byrjað að fljúga til á næsta ári. „Við reiknum með að meira en tvöfalda framboð okkar á næsta ári til Norður-Ameríku.“ Á þessu ári er gert ráð fyrir að 120 þúsund sæti verði í boði hjá WOW air til Norður- Ameríku og segir Svanhvít að stefni í 90% sætanýtingu í maí og í sumar. Bjóða 295 ferðir vikulega til 13 borga í Norður-Ameríku Morgunblaðið/Þórður Flug Tæplega 21.000 flugsæti eru í boði til Norður-Ameríku frá Keflavík.  Fleiri borgir og brottfarir hjá Icelandair og WOW air en SAS og Norwegian Áfangastaðir flugfélaganna í N-Ameríku Icelandair Norwegian San Francisco MinneapolisSeattle Toronto Vancouver Los Angeles Washington Anchorage Boston Chicago* Denver Edmonton Fort Lauderdale Miami Halifax Houston Las Vegas* New York Orlando Portland *Flug Icelandair til Chicago hefst í mars 2016 og flug Norwegian til Las Vegas hefst í október. WOW SAS Heimild: Heimasíður flugfélaganna Hlutfall hins opinbera í lífeyris- greiðslum er lægst á Íslandi af OECD-ríkjum, að því er fram kemur í markaðspunktum greiningardeild- ar Arion banka. Útgjöld lífeyris- greiðslna úr ríkissjóði eru innan við 5% af útgjöldum ríkissjóðs en meðal- tal OECD landa var 18% árið 2011. Ísland kemur einnig vel út í saman- burði við önnur OECD-lönd með til- liti til eigna lífeyrissjóða. Aðeins í Hollandi eru eignir lífeyrissjóða meiri sem hlutfall af landsfram- leiðslu. Hlutfallið var 150% á Íslandi árið 2013 en innan við 20% hjá meiri- hluta ríkja OECD. Þetta skýrist að stórum hluta af því að sjóðsöfnun hefur meira vægi á Íslandi heldur en víða innan OECD, þar sem gegnum- streymiskerfi er algengara. Þótt íslenska lífeyrissjóðakerfið standi vel í alþjóðlegum samanburði eru þó vísbendingar um að við þurf- um að gera enn betur, að mati Arion banka. Í fyrsta lagi var trygginga- fræðileg staða lífeyrissjóðanna, sem gefur til kynna hversu vel í stakk búnir þeir eru til að standa við lífeyr- isskuldbindingar sínar, neikvæð um 663 milljarða króna árið 2013. Þar af voru 595 milljarðar komnir til vegna sjóða með ábyrgð hins opinbera, líf- eyrisréttinda sem stofnað hefur ver- ið til án sjóðsöfnunar og eru því að óbreyttu byrði á skattgreiðendum framtíðarinnar. Í öðru lagi miða út- reikningar lífeyrisréttinda við lífslík- ur í fortíð. Ef ekki er tekið tillit til þess að lífslíkur fara batnandi telur Arion banki ljóst að raunveruleg líf- eyrisréttindi verða lægri í framtíð- inni en tryggingafræðileg bókhalds- staða lífeyrissjóða gefur til kynna. Morgunblaðið/Kristinn Lífeyrir Réttindi ættu að taka mið af batnandi lífslíkum í framtíðinni. Sterkt kerfi en úrbóta þó þörf  Hlutfall hins op- inbera í lífeyris- greiðslum lægst hér
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.