Morgunblaðið - 20.05.2015, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Breyting-arnar í vet-ur á ferða-
þjónustu fatlaðra
eru svartur blett-
ur á borgaryfir-
völdum. Við inn-
leiðingu breytinganna voru
gerð yfirgengileg mistök, sem
leiddu til þess að notendur
þjónustunnar voru stranda-
glópar um allan bæ. Allt
klúðraðist sem klúðrast gat og
gott betur. Dag eftir dag var
birtust dapurlegar fréttir af
þjónustu sem fram að því
hafði vart sést í fréttum. Á
þessu gekk svo vikum skipti.
Nú er komin skýrsla innri
endurskoðunar um málið og er
hún ekki fögur lesning.
„Stjórnun breytinganna á
ferðaþjónustu fatlaðs fólks
eftir að hin raunverulega inn-
leiðing átti að hefjast misfórst
í stórum atriðum,“ segir í
skýrslunni. „Engum var falið
að hafa yfirumsjón með breyt-
ingunum og samræma alla
fleti breytinganna, bæði þá
sem sneru að notendum ferða-
þjónustunnar, starfsmönnum
ferðaþjónustu fatlaðs fólks,
starfsmönnum velferðarsviða
sveitarfélaganna og starfsemi
Strætó bs.“
Í skýrslunni er farið yfir
marga þá þætti, sem fjallað
hefur verið rækilega um í
fréttum. Meðferðin á því
starfsfólki, sem sagt var upp,
er sérstaklega tekin fyrir.
„Starfsfólki var ætlað að
gegna störfum sínum í meira
en ár eftir að þeim var til-
kynnt að þeim yrði sagt upp.
Algjört skilningsleysi á að-
stæðum starfsfólksins virðist
hafa ríkt hjá stjórnendum
Strætó og er raunar kald-
hæðnislegt að fólkið sem sagt
var upp skuli vera hluti af not-
endahópnum,“ segir í skýrsl-
unni.
Fyrir breytinguna virðist
góður andi hafa ríkt í ferða-
þjónustunni eins og fram kem-
ur í skýrslunni: „Við ferða-
þjónustu fatlaðs fólks hjá
Strætó bs. störfuðu á milli 20
og 30 manns áður en breyting-
arnar voru gerðar, 8 manns í
þjónustuverinu og 14-15 bíl-
stjórar. Sumir starfsmanna
þjónustuversins voru fatlaðir
og í hjólastól. Þeir áttu ekki
möguleika á því fötlunar sinn-
ar vegna að gegna 100% starfi
og voru því í hlutastarfi. Að
sögn þeirra var þetta góður
vinnustaður, enda mátti þar
finna fólk með allt upp í 30 ára
starfsreynslu. Deildin var
nokkuð út af fyrir sig og ein-
göngu hluti af Strætó bs. að
forminu til. Þessi hópur bjó
yfir mikilli þekkingu á not-
endum ferðaþjónustunnar og
sérþörfum einstaklinganna
auk þess sem þau
höfðu skilning á
aðstæðum þeirra,
enda sjálf í sömu
eða svipaðri stöðu.
Þessi þekking og
reynsla var hvergi
skráð en kom vissulega að
góðum notum í starfi þeirra.“
Það er óskiljanlegt að þann-
ig hafi verið staðið að málum
að losa sig við þá, sem best
þekktu til.
Í skýrslunni er einnig gagn-
rýnt að ekki skyldi hlustað á
þá, sem bentu á að best væri
að gera breytingarnar í júlí
þegar minnst væri að gera í
ferðaþjónustunni. Þess í stað
var innleiðingin hafin þegar
álagið í þjónustunni er sem
mest.
Í skýrslunni er komist að
þeirri niðurstöðu að eftirlit
velferðarráða og velferðar-
sviða sveitarfélaganna á inn-
leiðingartímanum hafi brugð-
ist. Stjórnmálamennirnir
sleppa ekki heldur: „Kjörnir
fulltrúar stóðu ekki vaktina
með spurningum á vettvangi
fagráðanna um framgang
verkefnisins.“
Einnig er fundið að upplýs-
ingagjöf í veigamiklum atrið-
um. Svo virðist sem nauðsyn-
legar upplýsingar hafi
einfaldlega ekki skilað sér.
Sérstaklega bendir innri end-
urskoðun á að upplýsinga-
miðlun til notenda þjónust-
unnar hafi engin verið fyrr en
rétt í þann mund að breyting-
arnar voru að ganga í garð og
þeir, sem hafi átt að veita
þjónustuna, hafi ekki verið
með nægilega traustar og góð-
ar upplýsingar um notend-
urna.
Athygli vekur að í kynningu
á skýrslunni á heimasíðu
Reykjavíkurborgar er hlut-
laus fyrirsögn um útkomu
hennar. „Margt til fyrir-
myndar í ákvarðanatöku,“
segir síðan í millifyrirsögn.
Neðst segir síðan „Stjórnun
breytinga misfórst“ líkt og
það sé eitthvert aukaatriði.
Þessi framsetning ber því
vitni að hjá borginni sé skort-
ur á skilningi á alvöru málsins.
Undirbúningstíminn skiptir
engu máli ef liðið tapar öllum
leikjunum.
Ferðaþjónusta fatlaðra er
gríðarlega mikilvæg og snar
þáttur í tilveru margra þeirra,
sem á hana treysta. Í klúðr-
inu, sem fylgdi breytingunum,
var tilveru þeirra snúið á
hvolf. Það grátlega er að
hörmungarnar voru full-
komlega fyrirsjáanlegar og
hefði að miklu leyti mátt af-
stýra ef betur hefði verið stað-
ið að breytingunum og hlustað
á ábendingar. Klúðrið bitnaði
á þeim sem síst skyldi.
Skýrslan um breyt-
ingarnar á ferða-
þjónustu fatlaðra er
ófögur lesning}
Blettur á borginni
Þ
eir sem stunda útihlaup að ein-
hverju marki vita hversu
harðsnúinn mótvindurinn getur
orðið. Sá sem hleypur á eigin for-
sendum en ekki á keppnisbraut
getur hins vegar snúið vindinum sér í hag með
því einu að snúa sér við. Þegar það er gert,
uppgötva hlauparar eitt merkilegasta lögmál
íþróttarinnar. Eins og það er erfitt að hlaupa
upp í vindinn, þá virðist meðvindurinn lítið
hjálpa til og oftast nær upplifa hlauparar með-
vindinn sem logn. Á hlaupum er því aðeins ein
átt, sú sem er í móti. Annars er bara logn.
Þessi upplifun hlauparans minnir í nokkru á
ástandið í íslensku samfélagi í dag. Hann var
sannarlega krappur og napur mótvindurinn
sem beljaði mót þjóðinni í árslok 2008 og
næstu árin þar á eftir. Það er ótrúlegt hve
margir stóðu keikir þrátt fyrir ofviðrið sem gekk yfir
heimili og fyrirtæki. Tjónið varð mikið og margt lét und-
an en það er með aðdáun sem maður horfir til þess æðru-
leysis sem margir sýndu í þessum þrautum.
Nú hefur vindáttin hins vegar snúist svo um munar.
Ólíkt hlaupurunum hafði þjóðin ekki val, hún þurfti að
snúa sér upp í vindinn og vinna sig í gegnum það sem á
móti blés. Þjóðin sýndi mikla þrautseigju, m.a. í Icesave-
deilunni, þar sem reynt var að beygja okkur undir
drápsklyfjar hinna hrundu banka. Happafeng hefur rek-
ið á fjörur okkar, má þar m.a. nefna fjölgun ferðamanna
og blessaðan makrílinn.
Og nú erum við í meðvindi. Kaupmáttur
ráðstöfunartekna hefur aukist, verðbólga
hefur haldist ótrúlega lág síðustu misserin,
fyrirtækin ganga vel, skapa störf og skila arði
til þeirra sem lagt hafa áhættufé til uppbygg-
ingar þeirra. Stór hluti þess arðs rennur
beint í sameiginlega sjóði, jafnt í formi skatt-
fjár og einnig vegna þess að lífeyrissjóðir
landsmanna eiga mörg stærstu og fengsæl-
ustu fyrirtækin. Meðvindurinn á sér einnig
birtingarmynd í þeirri mikilvægu staðreynd
að atvinnuleysi hefur farið hratt minnkandi
að undanförnu og er að komast nær því
ástandi sem við viljum sjá. Lítið samfélag þol-
ir það illa til lengdar að fjöldinn allur af
vinnufúsum einstaklingum stiki göturnar og
því er mikilvægt að skapa aðstæður, og ekki
síður viðhalda þeim, þar sem fáir og helst
engir eru án vinnu sem á annað borð vilja vinna.
En nú bregður svo við að þjóðin er hvött til að snúa sér
við á hlaupunum. Meðvindurinn sem þjóðin upplifir sem
logn virðist ekki nægja og í því skjóli skáka ýmsir for-
ingjar þessi dægrin og véla fólk út í það að snúa sér við.
Þeir segja að lognið sé mótvindur, alltént að aðrir séu í
slíkum meðvindi að ekki gangi að þeir einir njóti. Vand-
inn er sá að þegar fólkið hefur snúið sér við mun það
jafnharðan átta sig á að það finnur ekki meðvindinn sem
því var lofað, heldur einmitt vindinn sem það nú hefur í
bakið. Þá breytist meðvindur í mótvind eins og hendi sé
veifað. ses@mbl.is
Stefán Einar
Stefánsson
Pistill
Með vindinn í fangið, eða hvað?
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Bandaríska alríkislögreglan,FBI, kannar nú hvort sér-fræðingur í tölvuöryggiflugvéla hafi með aðstoð
afþreyingarkerfis, IFE, sem nú er í
flestum farþegaþotum, brotist með
hjálp Vortex-hugbúnaðar inn net-
kerfi farþegaþotu á flugi og breytt
stefnunni í nokkrar sekúndur. Hann
hafi notað búnaðinn til að fylgjast
með netumferð frá stjórnklefanum,
segir FBI. Maðurinn, Chris Ro-
berts, neitar þessu en í tvitterfærslu
hreykti hann sér af því að geta tekið
yfir stjórn farþegaþotu.
Roberts gæti hafnað í fangelsi
fyrir „framtak“ sitt en ef til vill er
FBI að notfæra sér málið, blása það
upp til að vara aðra hakkara við.
Fullyrt er að framleiðendur leiti nú í
örvæntingu að hugsanlegum örygg-
isglufum í vöru sinni. Umrædd IFE-
kerfi eru framleidd hjá Panasonic og
Thales en fá að sjálfsögðu blessun
sína hjá flugvélaverksmiðjunum.
Roberts lýsti tilraunum og
rannsóknum sínum á netöryggisráð-
stefnum 2010 og 2012 og segir full-
trúa FBI hafa rætt við sig tvisvar í
Denver í febrúar sl. Hann segist að-
eins vilja vekja athygli á örygg-
isgöllum í netkerfum margra flug-
véla. Hann hefur rannsakað
netöryggi flugvéla í sex ár og notað
til þess leiðarvísa sem voru öllum að-
gengilegir. Þar kom fram að í sum-
um Boeing- og Airbus-vélum væru
tengingar milli afþreyingarkerfisins
og gervihnattasíma farþega og því
hægt að grípa inn í sum stýrikerfi í
klefa flugmannanna.
Boeing fullyrðir að IFE-kerfin í
vélum þeirra séu „einangruð frá
flug- og leiðsögukerfum“ en í frétt-
um BBC og fleiri miðla er vitnað í
sérfræðinga á þessu sviði sem
greinilega eru ekki alveg vissir.
„Þitt flug“ og áfram...
Friðrik Skúlason tölvufræð-
ingur segir að tölvukerfin séu mis-
munandi og jafnvel ekki eins í flug-
vélum af sömu gerð. „Og kerfin sem
farþegar hafa aðgang að eru ekki
endilega alveg aðskilin frá öðrum
tölvukerfum í vélinni. Á skjánum á
bakinu fyrir framan mann getur
maður farið í „Þitt flug“ þar sem
maður fær alls konar upplýsingar.
Þú færð að vita hvar þú ert, flughæð
og vindstyrk. Þessar upplýsingar
koma ekki úr IFE-kerfinu heldur úr
öðrum tölvukerfum vélarinnar. Það
er augljóslega tenging þarna á milli.
Spurningin er hvort farþeginn
getur einhvern veginn brotist út úr
sandkassanum sem hann er í og
komist inn í hin tölvukerfin. Og ef
hann getur það hvort hann hafi
möguleika á að gera þar eitthvað.“
Það sé alls ekki sjálfsagt, IFE-
kerfið sé ekki endilega sama tölvan,
sami örgjörvinn, sama stýrikerfið.
Öllu skipti hvernig þessi kerfi séu
sett upp, t.d. hvaða útgáfa af hug-
búnaði stjórni þeim. Hægt sé að
brjótast út úr IFE-kerfinu en óljóst
hvort menn séu þá enn inni á leik-
vellinum, komist ekki lengra.
Skilja megi alveg á milli tölvu-
kerfa, nota búnað sem jafngildi ljós-
leiðaratengingu milli tölva. En í
venjulegri nettengingu séu vírar og
þeir geti brunnið yfir. Frá sæti far-
þegans sé því hægt að valda viljandi
skemmdum á tölvukerfum vél-
arinnar. „Þú þarft ekki annað en
hræódýrt tæki sem sendir há-
spennupúls inn á réttan vír. Hvað
gerist þá? Brennur þá bara yfir
skjárinn sem þú notar eða brennur
yfir eitthvað í IFE-kerfinu þannig
að allir farþegar missa út bíómynd-
irnar sínar? Eða hefur þetta einhver
áhrif á öll önnur tölvukerfi vél-
arinnar? Það er stóra spurningin,“
segir Friðrik Skúlason.
Skjánum á sætisbak-
inu breytt í flugstýri?
Hátækni Hægt er að nota farsíma í farþegaþotum og IFE, afþreyingarkerfi
farþeganna, býður upp á kvikmyndir. Og fleira ef marka má suma hakkara.
Frásögnum alríkislögreglunnar
FBI og Chris Roberts ber ekki
saman. Sjálfur segist hann að-
eins hafa sagt þeim að ásamt
félaga sínum hefði hann í meira
en 10 flugferðum notað fartölv-
ur sem þeir tengdu við afþrey-
ingarkerfi vélanna. Þeir gátu þá
skoðað netgögn í stjórnkerfum
flugvélanna.
Þ.e. þeir brutust ekki inn,
segir hann. Þeir hefðu í til-
raunum sínum brotist inn í
gögn flugherma en aldrei inn í
raunverulegan stjórnklefa. En
FBI segir að í flugi með United
Airlines í apríl hafi Roberts e.t.v.
gripið beinlínis inn í aðgerðir
flugmanna – sem væri lögbrot
og myndi varða fangelsi.
Bara í flug-
hermi eða...
GÖGNIN SKOÐUÐ