Morgunblaðið - 20.05.2015, Page 53

Morgunblaðið - 20.05.2015, Page 53
UMRÆÐAN 53 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015 Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 10.00 - 15.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Klausturbleikja Heitur matur í hádeginuStór nýr humar Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Glæný lúða Efnahvörf í vatni eru almennt háð hitastigi, magni hvarfefna og sýrustigi. Lífefnahvörf líkamans eiga sér stað við stöðugt hitastig með hjálp lífhvata. Efnaskiptin eru í há- marki við ákveðið sýrustig umhverfisins en líkaminn gerir allt sem hann getur til að halda stöðugu sýrustigi fyrir hin ýmsu lífefnahvörf í frumum líffær- anna. Magn hvarfefna kemur úr fæðunni við meltingu hennar. Sé ekki neytt nægra steinefna og víta- mína fyrir bæði stöðugt sýrustigs- jafnvægi og næga hvata dugar lítt gnótt hvarfefna. Frávik á sýrustig- um hefur því áhrif á alla líkams- starfsemina. Aðeins eru þó fimm efni í lykilhlutverki hér: prótín og fosfór sem eru sýrumyndandi í lík- amanum og svo basarnir kalíum, kalsíum og magnesíum. Það eru nákvæmlega 100 ár síðan óvart var gerð stór og merkileg „manneldistilraun“. Þetta var í fyrri heimsstyrjöldinni og þýska her- skipið Krónprins Vilhjálmur hafði verið samfleytt til sjós í 255 daga og hafði tekið mat og kol úr 14 enskum og frönskum flutningaskipum sem síðan var sökkt. Maturinn var m.a. ferskt nautakjöt, brauð úr hvítu hveiti, sætt kex og kökur, sykur, soðnar kartöflur, niðursoðið græn- meti og oleumsmjörlíki. Yfirmenn fengu það litla sem fannst af fersku græn- meti. Er skipið neydd- ist til að leita lands í Virginíu í BNA voru 110 sjóliðar af 500 rúm- fastir en aðrir stóðu varla undir sjálfum sér vegna þróttleysis. Bæði læknar og aðrir veltu þessu síðan fyrir sér en komust að engri vitrænni niðurstöðu lengi vel. Þótti und- arlegt að kalk hafði fallið út í liðamótum og þau bólgnað svo að menn gátu að lokum ekki staðið á fótunum auk fleiri einkenna. Það var þó næringarfræðingur sem kom öllum til heilsu á mislöngum tíma með því að gefa þeim aðallega ávaxta- og grænmetissafa, þ.e. nóg af vítamínum og steinefnum sem þeir höfðu farið á mis við og útiloka dýraprótín. Í dag vitum við að öll áhöfnin varð ofsýrð af mat sínum sem hafði breytt sýrustigum líffær- anna vegna skorts á bösum í matn- um. Beinin höfðu farið að leysast upp og afleiðingarnar komu fljótt fram. Það sem er merkilegt við þetta er hvað þrótturinn var fljótur að þverra hjá ungum dátum á besta aldri á þessu sýrumyndandi fæði sem á þeim tíma þótti þó herra- mannsmatur enda yfrið nóg af hita- einingum. Það var eimitt kjötið (prótínið og fosfórinn ) sem eyddi basamyndandi steinefnum og rúst- aði sýru- og basajafnvægi líkama þeirra. Þetta gerist enn hjá okkur í dag en þar sem við neytum líka ávaxta og grænmetis gerist þetta á löngum tíma. Síðan þetta gerðist hefur mönnum tekist að finna leið til að reikna út frá fimm jónuðum efn- um úr mat nokkurn veginn það magn sem ákveðin matvæli mynda af sýrum eða bösum í líkamanum mælt í rafeiningunni meq og gera töflur fyrir meq í 100 g matvöru til að auðvelda að setja saman matseðil með jafnt af sýru og bösum. Form- úlan sem notuð er til að reikna þetta er svonefnt PRAL-gildi: grömm prótín x 0,49 + milligrömm (mg) fos- fór x 0,037 – mg kalíum x 0,021 – mg kalsíum x 0,013 – mg magnesíum x 0,26 og er útkoman fjöldi meq úr 100 g matvöru. Þetta eru einmitt aðal- efnin í hverri frumu í okkur og mynda sýru- og basajafnvægi í henni en flest lífefnahvörfin eiga sér stað í frumunum. Sé útkoma PRAL-formúlunnar neikvæð er var- an basamyndandi en jákvæð sýru- myndandi. Af þessu sést að eitt prót- íngramm sem myndar 0,49 meq af sýru og fosfórinn 0.037 meq hvert mg hafa mest áhrif á að sýra líf- færin. Basarnir eru þrír og er kal- íum með 0,021, kalsíum með 0,013 og svo magnesíum með 0,026 meq milli- grammið. Fullorðnir þurfa daglega í fæðu 1,6 g kalíum, 280-350 g magn- esíum og 800 g af kalsíum og jafnt af fosfór. Því reiknast mér til að 50 g prótíns á dag ætti að vera nægjan- legt fyrir flesta. Prótínríkar mat- vörur eins og egg, ostar, kjöt- og fiskvörur eru því með yfirgnæfandi sýrumyndandi prótín og svo fosfór. Það eru aftur á móti ávextir og grænmeti sem eru basísk. Olíur og feiti eru yfirleitt hlutlaus en korn- meti og þar með brauð er sýrumynd- andi. Í fæðunni er brennisteinn, fos- fór, klór og joð sem öll mynda sýrur sem eru eitur ein og sér og leysa upp vefina að lokum ef líkaminn fórnaði ekki bösum til að gera sýrurnar óvirkar og skola þeim síðan út í þvagi og með svita. Og það er mjög auðvelt fyrir alla að fylgjast með sýrustigi þvagsins með pH-litar- strimlum yfir sólarhringinn en normalt sýrustig getur þó sveiflast milli 5,5 til 7,5, lægst að nóttu til. Önnur sýrugildi benda til ójafnvægis og oftast ofsýringar vegna ofáts prótíns (kjöt, fiskur, egg og brauð). Það vantar þá augljóslega meira af basamyndandi matvöru í fæðið sem yrði besta forvörnin til betri heilsu. Að lokum vil ég benda á ágæta „handbók“ um sýru- og basa- jafnvægið sem selst hefur í 300.000 eintökum eftir dr. med. Eva-Maria Kraske og heitir á þýsku: Saeure- Basen-Balance, Schluessel zu mehr Wohlbefinden. Þá eru pH-Fix 4.5- 10.0 litarstrimlar frá Macherey- Nagel með 100 stk. í pakka ágætir til mælinga vilji menn prófa. Hvort tveggja kostaði um 20 evrur í lyfja- búð í München. Sýru- og basabúskapurinn og varasama prótínið Eftir Pálma Stefánsson »Er hér komin aðal- ástæðan fyrir heilsu- vandamálum okkar: Ofát prótínríkrar mat- vöru? Pálmi Stefánsson Höfundur er efnaverkfræðingur. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgun- blaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgun- blaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felli- gluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendi- kerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að við- komandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.