Morgunblaðið - 20.05.2015, Síða 64

Morgunblaðið - 20.05.2015, Síða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015 Jón Agnar Ólasosn jonagnar@mbl.is „Ég hef meira að segja farið til út- landa með vinkonunum til að horfa á Eurovision,“ segir Berglind þegar hún er innt nánar eftir því hversu al- varlega hún tekur áhugann. Þegar Hera Björk keppti fyrir hönd Ís- lands í Noregi árið 2010 með lagið Je ne sais quoi fóru Berglind og vinkon- urnar til Óslóar til að taka þátt í stemningunni og hún segir það hafa verið ógleymanlegt. „Við fórum sem- sagt á generalprufuna og vissum ekkert við hverju var að búast en þetta var algerlega magnað. Svo horfðum við aftur á allt prógrammið í keppninni um kvöldið. Þegar mað- ur hafði fengið að upplifa þetta allt saman í þessari nálægð skildi maður loks hvað fólk er að tala um; þetta er bara ólýsanlegt. Alveg meiriháttar.“ Heilög stund á hverju ári Berglind er svo lánsöm að hafa vinkvennahóp í kringum sig sem deilir áhuganum á Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og hefur svo verið um árabil. „Við vorum allar saman í grunnskóla og þetta er heil- ög stund á hverju ári hjá okkur, þeg- ar við hittumst yfir Eurovision. Við hittumst alltaf með börnin til að horfa á keppnina yfir góðum mat. Stemningin er bara svo skemmtileg í kringum keppnina. Þetta er eigin- lega okkar HM,“ bætir Berglind við og hlær. Aðspurð segir Berglind að viðhorf hennar gagnvart íslenska laginu gangi gegnum ákveðið ferli á hverju ári. „Fyrst í stað heilla íslensku lögin mig heldur takmarkað og þá er ég yfirleitt handviss um að öll okkar þátttaka í keppninni fari fjandans til. Svo hlustar maður aftur, og aftur, og þá fer þetta heldur að skána. Loks eru svo nokkur lög sem manni þykja flott og skemmtileg. Íslenska lagið sem valið er til keppninnar vinnur svo sífellt á þangað til á lokakvöld- inu, þá er ég orðin handviss um að við vinnum,“ segir Berglind og hlær dátt. „Þannig gengur þetta alltaf. Þjóðarstoltið segir alltaf til sín og stemningin nær um leið yfirhönd- inni.“ Þegar talið berst svo að þátttöku Íslands í ár, í flutningi Maríu Ólafs- dóttur, leynir sér ekki að Berglind hefur talsvert dálæti á söngkonunni ungu. „Mér finnst María alveg dásamleg. Þegar haft er í huga hvað hún er ung þá finnst mér hún alveg ótrúlega örugg og glæsileg. Frábær söngkona.“ Berglind hefur hinsvegar svolítinn fyrirvara á laginu sjálfu. „Já, ég veit það ekki – en hún ger- ir þetta svo vel að ég hlakka mikið til að sjá hana á sviði. Kjóllinn er líka svo fallegur og gaman að sjá hana berfætta á sviði.“ Á María þá ekki eftir að syngja okkur yfir í úrslitin? „Jú, það held ég. Hún tekur þetta á tásunum! Ég spái laginu okkar svo 10. sæti á lokakvöldinu en vona auð- vitað að hún lendi jafnvel enn ofar.“ Hún lætur hér nokkrar girnilegar og gómsætar uppskriftir fylgja með sem myndu sóma sér í hvaða Euro- vision-partíi sem er. Rjómaostafylltur kjúklingur með jalapeno 8 stk. kjúklingalundir, flattar út og skorn- ar í tvennt 80 g rjómaostur, mjúkur 1 ferskur jalapeno-pipar (má líka nota úr krukku), fræhreinsaður og saxaður smátt 8 sneiðar beikon, skornar í tvennt. Látið ½ tsk. af rjómaosti á hvern kjúklingabita. Stráið ¼ tsk. af jala- peno yfir rjómaostinn. Rúllið kjúk- lingnum upp og vefjið beikoni utan um og festið með tannstöngli. Grillið eða eldið í ofnföstu móti við ca. 200°C þar til kjúklingurinn er full- eldaður. Ofnbakaðir partíborgarar með sesamgljáa Uppskrift að fyrirmynd www.kevin- andmanda.com 500 g nautahakk 1 rauðlaukur, skorinn smátt 3-4 hvítlauksrif, pressuð 1 tsk. salt 1 tsk. pipar 1 tsk. cumin (ath. ekki kúmen) ½-1 tsk. paprikuduft 1 dós saxaðir tómatar, vökvinn skilinn frá ostur í sneiðum, nóg af honum 6 meðalstór hamborgarabrauð Gljái 8 msk. smjör 2 msk. púðusykur 1 msk. worcestershire-sósa 1 msk. dijon-sinnep 1 msk. sesamfræ Setjið olíu á pönnu og hitið vel. Setjið nautahakkið á pönnuna og kryddið með salti, pipar, cumin og paprikukryddi. Bætið lauk og hvít- lauk saman við og hrærið reglulega í öllu þar til kjötið hefur brúnast. Hellið tómötunum út í og blandið vel saman. Raðið neðri hluta hamborgara- brauðanna í ofnfast mót. Skiptið nautahakkinu niður á brauðin og setjið síðan ríflegt magn af osta- sneiðum yfir nautahakkið. Látið efri hluta brauðsins yfir ostinn. Gerið gljáann með því að setja allt í pott og hita vel saman. Hellið gláanum yfir hamborgarana. Bakið við 175°C í um 25 mínútur. Kökudeigskúlur 75 g smjör, mjúkt 65 g púðursykur 2 tsk. vanilludropar 128 g hveiti 80 g súkkulaðidropar 100 g dökkur súkkulaðihjúpur sjávarsalt (má sleppa) Blandið smjöri, púðursykri og vanilludropum saman í skál. Bætið hveiti saman við og hrærið öllu sam- an. Að lokum eru súkkulaðidrop- arnir settir út í og öllu hnoðað sam- an. Gerið kúlur úr deiginu. Bræðið súkkulaðihjúpinn í skál í örbylgju- ofni eða yfir vatnsbaði. Setjið kúl- urnar eina í einu í hjúpinn, notið tvær skeiðar og veltið kúlunum í súkkulaðinu. Setjið kúlurnar á smjörpappír og leyfið þeim að harðna. Geymið í kæli eða frysti. Litríkt sumarsalsa með vatnsmelónu ½ vatnsmelóna ½ rauðlaukur, saxaður 1 rauð paprika, skorin smátt 1 appelsínugul paprika, skorin smátt 1 gul paprika, skorin smátt 2 fersk jalapenos (má nota úr krukku), fræhreinsuð og skorin smátt 1 búnt kóríander, saxað safi úr 1 límónu 1 msk. hunang eða agavesíróp ½ tsk. salt Blandið öllu saman í skál og berið fram með nachos-flögum, kexi eða baguette-brauði. Eurovision er okkar HM  Matarbloggarinn Berglind Guðmundsdóttir er mikil áhugamanneskja um Eurovision og vinkvennahópurinn hittist alltaf yfir góðum mat til að horfa á keppnina. Hún spáir Maríu áfram í úrslitin enda frábær söngkona. Bjartsýn Berglind Guðmundsdóttir spáir Maríu í 10. sætið í lokakeppni Eurovision, jafnvel ofar. „Hún tekur þetta á tásunum,“ segir Berglind. Litrík sumarsalsa með vatnsmelónu.Ofnbakaðir partýborgarar. Jalapeno-kjúlli. Kökudeigskúlur. Made by Lavor Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is GOTT Á PALLINN Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ • 160 bar Max • 8,5 lítrar/mín. • 2500W • Pallabursti • 8 metra slanga • Turbo stútur • Slanga fyrir stíflulosun • Þvottabursti Lavor háþrýstidæla STM 160 27.990 ODEN EÐAL OLÍA á palla. Hágæða Silikonalkyd efni. 3 l. 4.390 Mako penslasett 590 Bio Kleen pallahreinsir 895 5 lítrar kr. 3.295 Landora tréolía 2.690 Ítalskar snittur að hætti Jóa Fel Holtagarðar & Smáralind & Kringlan & Garðabær & Hringbraut
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.