Morgunblaðið - 20.05.2015, Page 67
MINNINGAR 67
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
✝ Rolf ThorsteinSmedvig fædd-
ist í Seattle 23.
september 1952.
Hann lést úr
hjartaáfalli á heim-
ili sínu í West
Stockbridge,
Massachusetts, 27.
apríl 2015.
Foreldrar hans
voru Kristín
Aurora Jónsson,
síðar Smedvig, fiðluleikari með
Sinfóníuhljómsveit Seattle f. í
San Francisco 1921, d. í Seattle
2004, og Egil Smedvig, tónlist-
arkennari og tónskáld, frá Stav-
anger í Noregi, f. 1922, d. 2012.
Faðir Kristínar var Þorbjörn
(Thorbjörn) Jónsson, f. á Geld-
ingaá í Leirársveit, 1877. Hann
lést í Seattle, 27. apríl 1947,
þannig að lát hans og dóttur-
sonar hans, Rolfs heitins, bar
upp á sama dag. Móðir Krist-
ínar var Brynhildur Erlends-
Rolf var alinn upp á tónlistar-
heimili foreldra og systkina í
Seattle. Rolf og trompetinn
urðu því sjaldan viðskila, allt
frá barnæsku. Hann kom fram
með Sinfóníusveit Seattle, að-
eins 13 ára gamall og varð ein-
leikari á trompet með Sinfóníu-
hljómsveit Bostonborgar, 1972,
19 ára að aldri. Hann var orðinn
fyrsti trompetleikari hljóm-
sveitarinnar árið 1980, þegar
hann ákvað að helga sig ein-
leiksferli, ásamt blásaraflokkn-
um, sem hann stofnaði, árið
1972, sem hann nefndi Empire
Brass. Rolf var einleikari í
trompetkonsert Haydns með
Sinfóníuhljómsveit Íslands 1985,
og hélt tónleika hérlendis með
Empire Brass 1988. Ótrúlegasta
flutning Rolfs á trompetinn er
að finna á youtube, í verki
Bachs „Badinerie,“ þar sem
snerpan, fegurðin og hraðinn er
undraverður, en að auki skilur
Rolf eftir sig gríðarlegt magn
fallega leikinnar tónlistar með
Empire Brass allt frá 1972 og á
sólóferli sínum allt frá 1981.
Útför Rolfs fór fram frá
Trinity Episcopal Church í
Lennox, Massachusetts 9. maí
2015.
dóttir, f. í Mörk í
Laxárdal, í Húna-
þingi, 1893, d. í
Seattle, 1961. Auk
Kristínar eignuðust
þau Þorbjörn og
Brynhildur dóttur-
ina Elínu, f. 1925,
og soninn Jón Mar-
vin, f. 1928, sem er
kunnur Íslands-
vinur og ræðis-
maður Íslands í
Seattle í meira en hálfa öld.
Rolf var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var Caroline Hessberg.
Þau skildu. Síðari kona Rolfs og
barnsmóðir hans er Kelly Smed-
vig, f. Holub, kennari og þekkt
fyrirsæta, og eru börn þeirra:
Sören, Sophia, Annika og
Aurora. Eftirlifandi systur
Rolfs eru Jodene Smedvig, f.
1951, tónlistarkennari í Seattle,
og Sirí Smedvig, f. 1959, fiðlu-
leikari í Concord, Massachus-
etts.
Í tón hans greindist snerpan slík
að snilldin varð oss ljós.
Lögin ljúf – af fegurð rík
hans lifir orðstír, hrós.“
Þetta kveðjuljóð mitt, til Rolfs
Smedvig, frænda míns, af Deild-
artunguætt, lýsir þeirri hrifn-
ingu, sem ég ætíð fann fyrir, í ná-
vist hans og þeirra fögru hljóma,
sem hann gat kallað fram í
trompetleik sínum, en hann var
án efa í röð fremstu trompetleik-
ara heims, eins og sannast við að
hlýða á tónlist hans. Ég hitti Rolf
í fyrsta sinn árið 1970, þegar ég
dvaldi sumarlangt hjá móður-
bróður hans, Jóni Marvin Jóns-
syni, í Seattle. Rolf var þá ný-
kominn úr fríi á Hawai, sólbrúnn,
hress og glaðlegur. Hann var
ekki aðeins gæddur ríkum hæfi-
leikum á tónlistarsviðinu, heldur
var hann einnig vel á sig kominn
líkamlega enda sundmaður góð-
ur og glæsimenni, eins og Kjart-
an Ólafsson, forðum.
Samverustundir með Rolf
voru og eru ógleymanlegar,
hvort sem það var að fylgjast
með honum að leika á trompet-
inn við upptökur og æfingar, eða
þá að fylgja honum til vina og
kunningja, þar sem fagrar meyj-
ar gátu verið skammt undan!
Ekki má þó gleyma yndislegum
foreldrum hans, Kristínu og Eg-
il, sem bæði eru látin, og systr-
unum Jodene og Sirí, sem lifa
bróður sinn. Öll fjölskyldan var
tónlistarfólk, og þrátt fyrir krefj-
andi æfingar fjölskyldumeðlima
var nóg af hlýju og nærveru til að
miðla til gesta og frændfólks eins
og mín.
Rolf flutti til Boston, þar sem
hann varð trompetleikari með
Bostonsinfóníunni, árið 1972.
Sama ár stofnaði hann Empire
Brass-kvintetinn, þar sem hann
var aðaltrompetleikari, en í sveit-
inni var leikið á tvo trompeta,
franskt horn, trombón og túbu,
eins og Íslendingar gátu kynnst
á tónleikum Empire Brass í Há-
skólabíói 1988, en þrem árum áð-
ur lék Rolf einleik í trompetkons-
ert Haydns með
Sinfóníuhljómsveit Íslands, á
sama stað.
Rolf var framsækinn og metn-
aðargjarn einstaklingshyggju-
maður, sem dugði ekki að vera
orðinn aðaltrompetleikari Bost-
onsinfóníunnar frá 1980, heldur
hóf hann árið eftir einleiksferil,
allt til dauðadags, ásamt að leika
með Empire Brass um víða ver-
öld. Rolf var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Caroline Hess-
berg, sem síðar giftist hinum
heimsþekkta söngvara og laga-
smið James Taylor. Rolf giftist
eftirlifandi eiginkonu sinni,
Kelly, f. Holub, 1992, og lifir hún
mann sin ásamt fjórum börnum
þeirra hjóna: Sören, Sophiu, An-
niku og Auroru, sem eru á aldr-
inum 8-14 ára. Ég var svo lán-
samur að hitta Rolf, glæsikonu
hans, Kelly, börnin fjögur og Eg-
il, föður Rolfs, sumarið 2009. Þá
dvaldi ég aftur í Seattle, eins og
39 árum fyrr, ásamt syni mínum
og unnustu, hjá Jóni Marvin,
móðurbróður Rolfs, og ræðis-
manni Íslands í Seattle, og konu
hans, Joanne, sem nú er látin.
Það er sárt til þess að hugsa, að
þarna sá ég Rolf í síðasta sinn,
hamingjusaman fjölskylduföður,
með yndisfagurri konu og fjögur
börn, sem þá voru á aldrinum 3-9
ára.
Hann hafði eignast nýtt líf,
eftir sáran persónulegan harm,
sem hann varð fyrir, ásamt fyrri
konu sinni.
Enginn má sköpum renna. Út-
för Rolfs fór fram 9. maí sl. og
var hún sannkallaður tónlistar-
viðburður þar sem margir heiðr-
uðu hinn látna snilling. Kelly,
ekkju Rolfs, í West Stockbridge,
og börnunum, eru sendar sam-
úðarkveðjur og systrum Rolfs,
og vinkonum mínum til 45 ára,
Jodene í Seattle og Sirí í Con-
cord, Massachusetts. Megi sá ís-
lenski hlynur lifa, sem þau Þor-
björn Jónsson frá Geldingaá og
Brynhildur Erlendsdóttir frá
Mörk gróðursettu í bandaríska
mold, á liðinni öld.
Ólafur F. Magnússon.
Rolf Thorstein
Smedvig
Þegar ég kom til
Reykjavíkur í árs-
byrjun 1972 þeirra
erinda að læra
húsasmíði hjá
frænda mínum, Þórði Jasonar-
syni byggingameistara, var ég
settur til verka niðri í Skeifu þar
sem verið var að byggja skemm-
urnar í Iðngörðum sem nú eru
Myllan, Hagkaup og fleiri slíkar.
Eins og tíðkast með lærlinga
var ég fyrst settur í ýmis verk
óskyld smíðinni eins og að mála
Þórir Bent
Sigurðsson
✝ Þórir Bent Sig-urðsson fædd-
ist 2. febrúar 1934.
Hann lést 3. maí
2015. Útför hans
fór fram 13. maí
2015.
timbur, taka til og
aðstoða gröfustjór-
ann á staðnum. Ég
kom beint úr sveit-
inni og var flestu
ókunnugur í höfuð-
staðnum. Þessi
gröfustjóri tók mig
undir sinn verndar-
væng og leiðbeindi
mér. Þetta var ljúf-
lingurinn Þórir
Bent Sigurðsson.
Þessi öndvegismaður hélt í hönd-
ina á mér og kenndi mér á kerfið
þarna á vinnustaðnum. Hann var
svo ljómandi geðgóður og mikill
húmoristi að allir vildu vera
nærri honum og ég ekki síst.
Margar skemmtilegar sögur
sagði hann í kaffitímum og reyk-
pásum en ekki skorti Þóri dugn-
aðinn og hann var afburðaflinkur
með gröfuna sína.
Honum leiddist ekki að gera
smávegis sprell og eitt sinn þeg-
ar við vorum búnir að hreinsa
ýmislegt dót út úr einu húsinu
vegna breytinga var ráðslagað
um hvað ætti að gera við draslið.
Þórir taldi einfaldast að kveikja
bara í þessu og ég var fljótur að
bera eld að hrúgunni. Þá kom í
ljós að þarna var tjörupappi og
okkur brá í brún þegar kolsvart-
ur reykur huldi því sem næst allt
Álfheimahverfið og Vogana.
Slökkviliðið kom æðandi og
við áttum fótum fjör að launa.
Hlupum í gegnum skemmurnar
sitt á hvað og tókst að lokum að
stinga slökkviliðsmennina af sem
töldu réttilega að við ættum
þarna hlut að máli. Þá lentum við
í flasinu á lögreglunni sem var
komin til að rannsaka málið. Ég
gleymi aldrei sakleysissvipnum á
andliti Þóris þegar hann tjáði
þeim að einhver strákur hefði
kveikt í þessu. Það var auðvitað
rétt hjá honum og bæði hann og
strákurinn skrifuðu undir
skýrslu á staðnum hjá lögregl-
unni. Við skemmtum okkur kon-
unglega þegar þeir voru farnir
og alltaf þegar við hittumst
minntist Þórir á brunann í Skeif-
unni við mig: „Manstu Nonni,
þegar við kveiktum í Skeifunni?“
Og svo var hlegið hjartanlega.
Eins og gengur fórum við
hvor sína leið en stundum hitt-
umst við og þá voru góðar stund-
ir rifjaðar upp. Ég mun aldrei
gleyma hlýlegri og góðmannlegri
framkomu Þóris við mig þegar
ég var ungur maður að stíga mín
fyrstu skref í byggingabransan-
um. Ég sé líka alltaf glaðlega
brosið hans fyrir mér, þegar ég
minnist hans, og kankvíslegan
glampann í augunum. Það eru
slíkir menn sem bregða birtu á
leiðina sem maður gengur og
gera tilveruna að betri og
skemmtilegri stað. Ástvinum
hans votta ég samúð mína.
Blessuð sé minning Þóris Bents
Sigurðssonar.
Jón M. Ívarsson.
Mér hlýnar alltaf
um hjartarætur
þegar ég hugsa til
Ninnu enda var hún
einstök kona.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að fá að dveljast í Blöndu-
Svanhildur
Jóhanna Krist-
jánsdóttir (Ninna)
✝ Svanhildurfæddist 20. maí
1933. Hún lést 2.
maí 2015.
Svanhildur var
jarðsungin 9. maí
2015.
hlíð um lengri og
skemmri tíma frá
því ég var barn og
fram á unglingsár,
eftir að móðir okkar
systkina dó. Sveitin
mín í Blönduhlíð
samanstóð af yndis-
legu fólki. Gísli föð-
urbróðir og Ninna,
amma og afi, Kiddi,
Helga, Inga Jóna og
Unnar og svo
Maggi bróðir sem fór til þeirra
sex ára gamall. Og auðvitað
Bjössi Þórðar og reyndar var
heimilið alltaf fullt af ættmenn-
um, gestum og gangandi og mik-
ið líf og fjör og nóg pláss fyrir
alla.
Ég lærði allt um sveitastörfin
og hef búið að því síðan. Ég naut
góðs af því að Helga og Inga
Jóna voru aðeins eldri en ég og
fékk að fylgja þeim í einu og öllu,
þær voru mér sem systur. Oft
hugsa ég til samverustundanna
sem við áttum í fjósinu við mjalt-
ir en þá var allt handmjólkað og
mikið spjallað og hlegið. Hey-
skapurinn var alltaf skemmtileg-
ur og allir tóku þátt í honum.
Hestarnir voru vinsælir og ég
gæti endalaust talið upp ævin-
týri að vestan. Þó nú sé liðin hálf
öld er þetta jafnlifandi í huga
mér eins og gerst hefði í gær og
alltaf jafnmikið tilhlökkunarefni
að komast í sveitina á vorin.
Þarna átti ég bestu ár
bernsku minnar. Ninna átti ekki
hvað minnstan þátt í því að ég
upplifði mig sem eina af heim-
ilisfólkinu. Allur matur sem
Ninna eldaði var góður og alltaf
gott bakkelsi með kaffinu. Allt
virtist þetta vera henni svo
átakalaust og ásamt öllum inni-
verkum tók hún þátt í útistörf-
unum af mikilli elju, enda dýrin
og útiverkin henni hugleikin.
Þau Gísli voru svo aðdáunarlega
samhent og vinnusöm. Gísli féll
frá 1994, langt um aldur fram. Í
kjölfarið brá Ninna búi og flutti í
Borgarnes en reisti sér bústað í
sælureit í landi Blönduhlíðar og
naut þess að vera þar.
Kiddi, Helga, Inga Jóna, Unn-
ar, Maggi og fjölskyldur, guð
gefi ykkur styrk í sorginni.
Elsku Ninna, takk fyrir allt og
allt,
þín
Dýrfinna Kristjánsdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
MAGNÚS GUÐJÓNSSON,
Strikinu 4,
Garðabæ,
andaðist laugardaginn 16. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
.
Guðjón Magnússon,
Ólafur Magnússon, Tamara Suturina,
Jóhann Magnússon, Valgerður Andrésdóttir
og fjölskyldur.
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
HÓLMAR KRISTMUNDSSON
veitingamaður,
lést á heimili sínu 13. maí.
Útförin mun fara fram í kyrrþey.
.
Geir Hólmarsson, Lilja Þorkelsdóttir,
Kristín Hólm Geirsdóttir,
Finnur Salvar Geirsson.
Elskuleg eiginkona, móðir og amma,
INGIBJÖRG BJARNARDÓTTIR
lögmaður og sáttamaður,
Maríubaug 31,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu að morgni
mánudagsins 18. maí.
Útför verður tilkynnt síðar.
.
Geir Ólafsson,
Björn Geirsson,
Þórunn Geirsdóttir, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson,
Herdís Hlíf og Hafdís Hekla Þorvaldsdætur.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HREINN HEIÐMANN JÓSAVINSSON,
áður bóndi Auðnum Öxnadal,
lést á heimili sínu, Auðnum,
fimmtudaginn 14. maí.
Útförin auglýst síðar.
.
Margrét Helga Aðalsteinsdóttir,
Ragnheiður G. Hreinsdóttir, Leó V. Leósson,
Sigurlaug U. Hreinsdóttir, Páll V. Sigurðsson,
Hlíf S. Hreinsdóttir, Friðrik S. Pálmason,
Aðalsteinn H. Hreinsson, Sigríður Svavarsdóttir,
Ásdís H. Hreinsdóttir, Jón G. Snorrason,
Jósavin H. Hreinsson, Kristjana Gunnarsdóttir,
Hjördís A. Pétursdóttir, Björn Pálsson,
afa- og langafabörn.
Í dag er 75 ára af-
mælisdagurinn þinn
elsku mamma.
Ekki átti ég von á
því, fyrir rétt rúm-
um einum og hálfum mánuði, að
þú yrðir ekki hér með okkur á
þessum degi.
Söknuðurinn er mikill og sumir
dagar eru erfiðari en aðrir. En það
er gott að ylja sér við fallegar og
góðar minningar. Enn þann dag í
dag finnst mér að þú hafir bara
skroppið eitthvað og svo einn dag-
inn sitjir þú í stólnum þínum í stof-
unni eða í eldhúsinu þegar ég kem
í kaffi.
Ég er þakklát fyrir allan þann
tíma sem ég hafði með þér. Að ég
skyldi kíkja á Hlíðarveginn þrisv-
ar fjórum sinnum í viku og eiga
Róslaug Jónína
Agnarsdóttir
✝ Róslaug JónínaAgnarsdóttir
fæddist 19. maí
1940. Hún lést 1.
apríl 2015. Útför
Róslaugar fór fram
11. apríl 2015.
með þér góðar
stundir. Þær eru
mér afar dýrmætar í
dag.
Við áttum ýmis-
legt sameiginlegt og
eitt af því er að við
erum báðar miklir
hrakfallabálkar, t.d.
að reka okkur í eitt-
hvað, skera okkur á
hinum furðulegustu
hlutum, fá á okkur
brunasár o.fl. Og veistu, mér þykir
eiginlega bara vænt um þetta.
Þú varst mikl fjölskyldumann-
eskja, þér var mikið í mun að fjöl-
skyldan hittist við hin ýmsu tæki-
færi.
Í dag ætlum við fjölskyldan að
hittast og drekka saman kaffi eins
og við erum vön á afmælisdögum.
Ég trúi því að núna líði þér vel,
sért laus við allar þjáningar, gang-
ir um glöð og sátt.
Til hamingju með daginn þinn
elsku mamma mín.
Þín
Alma Björk.