Morgunblaðið - 20.05.2015, Page 74
74 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Ólöf er lyfjafræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri og er fædd oguppalin á Akureyri. Hún vinnur einnig í Akureyrarapóteki einahelgi í mánuði. „Það er mjög skemmtilegt og fín tilbreyting frá
sjúkrahúsinu. Þarna hittir maður kúnnana og er í nánari tengslum við
viðskiptavinina.“
Áhugamál Ólafar eru fjölskyldan, útivist, eldamennska og garðrækt,
einnig finnst henni gaman að fara út að hjóla. „Ég er ágætlega dugleg í
garðinum og er með græna fingur í orðsins fyllstu merkingu. Var að
eignast nýjan garð og á eftir að slá í gegn með hann. Er að byrja að
ganga á fjöll og vona því að ég fái útivistarvörur í afmælisgjöf. Ég er að
fara til Týról í sumar með Bændaferðum. Ferðin kallast Trítlað um Tý-
ról sem hljómar rosalega vel fyrir byrjendur þannig að ég hlýt að ráða
við þetta. Seinnipartur ævinnar verður helgaður útivist og ferðalögum
nú þegar ég held að ég sé komin úr barneignum.“
Börn Ólafar eru Petra, f. 1991, Ásgeir, f. 1993, Birgir Valur, f. 2003
og Helga Vala, f. 2006. „Ég á engin barnabörn ennþá enda er það bara
ágætt þar sem yngsta barnið mitt er átta ára.
Á afmælisdaginn ætla ég út að borða í hádeginu með fjölskyldunni og
síðan í nudd og dekur til að undirbúa mig fyrir átökin á laugardag. Þá
ætla ég að halda grillveislu með ættingjum og vinum og fylgjast með
Eurovision. Ég var búin að panta hrikalega gott veður á Akureyri um
helgina en miðað við spána þá er ég ekki viss um að beiðnin hafi verið
móttekin. Þessi mánuður hefur verið slæmur fyrir norðan og snjórinn
var að hverfa úr garðinum hjá mér.“
Afmælisbarnið Ólöf Stefánsdóttir í útilegu sumarið 2013.
Seinniparturinn
helgaður útivist
Ólöf Stefánsdóttir er fimmtug í dag
R
agnar Atli fæddist í
Reykjavík 20.5. 1955:
„Ég man fyrst eftir
mér á Grænási á
svæði ameríska hers-
ins á Keflavíkurflugvelli en pabbi
var þar flugumferðarstjóri. Ég
átti það til að fara mínar eigin
leiðir, fyrstu árin. Eitt sinn eftir
víðtæka leit um nágrennið fann
Hanna Kristín, systir mín, mig
sofandi í steypuröri. Ég hafði náð
að príla upp á það og ofan í en
komst ekki upp úr því aftur.
Við fluttum síðan til Reykjavík-
ur þar sem við bjuggum í Steina-
gerði og í Hvassaleiti eða þar til
ég kynntist eiginkonunni og við
hófum búskap í Breiðholtinu.“
Ragnar Atli fór fimm ára í tíma-
kennslu í Ásuskóla í Hlíðunum,
var síðan í Hlíðaskóla, lauk lands-
prófi frá Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar, stúdentsprófi frá MH og
prófi í viðskiptafræði við HÍ.
Á sumrin var Ragnar Atli af-
leysingamaður hjá Stálveri við að
aka vörubílum og við járnsmíði
hjá Landsvirkjun, bar út dagblöð,
tíndi áðnamaðka fyrir veiðimenn
og seldi auglýsingar í tímarit. Á
Ragnar Atli Guðmundsson framkvæmdastjóri – 60 ára
Á ferð um Breiðafjörðinn Ragnar Atli og Guðrún Soffía með dótturdótturina, Evu Silfá, á flóabátnum Baldri.
Glaðvær dugnaðarforkur
Í framkvæmdahug Ragnar Atli ásamt samstarfsfélögum í Vilnius í Litháen.
Elísa Margret Mar-
teinsdóttir og Agnes
Ósk Atladóttir héldu
tombólu við verslun-
ina Albínu á Patreks-
firði og söfnuðu 2.015
krónum fyrir Rauða
krossinn.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Ármúla 24 • S: 585 2800Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16. – www.rafkaup.is
Cloudy loftljós frá
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is