Morgunblaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 75
ÍSLENDINGAR 75
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Fullkominn árangur með stýringum frá
TORMEK
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
Opið virka daga
frá 9-18
lau frá 10-16
SE-76:
Stýring fyrir hefiltennur og sporjárn
Verð 7.330
SVX-150:
Skærastýring
Verð 6.450
SVD-185:
Stýring fyrir tréskurðar- og rennijárn
Verð 11.765
SVM-140:
Hnífastýring
Verð 6.280
SVM-00:
Stýring fyrir tálguhnífa
Verð 4.175
DBS-22:
Stýring fyrir stálbora
Verð 39.600
Hér sjást aðeins 6 af 13 stýringum
sem allar eru til eru á lager
háskólaárunum var hann svo að-
stoðarmaður hjá flugumferðar-
stjórn.
Að loknu háskólanámi varð
Ragnar forstöðumaður á hag- og
áætlunarsviði Hampiðjunnar og
átti miklu láni að fagna að starfa
með Magnúsi Gústafssyni sem
reyndist honum góður lærimeist-
ari og vinur.
Ragnar Atli varð síðan fram-
kvæmdastjóri fasteigna í þróun
Kringlunnar á vegum Hagkaups
og síðar framkvæmdastjóri
Kringlunnar: „Það voru mikil for-
réttindi að vinna náið með Pálma
Jónssyni, Sigurði Gísla Pálmasyni
og stjórnendum og starfsfólki
Hagkaups.“
Eftir að framkvæmdum við
Kringluna lauk var hann fram-
kvæmdastjóri og frumkvöðull fast-
eignafélaga, m.a. Þyrpingar, Eign-
arhaldsfélags Kringlunnar,
Fasteignar og Klasa. Á meðal
verkefna hans voru Kringlan og
stækkun hennar, Skuggahverfi,
Norðurbakki í Hafnarfirði, Hótel
Centrum Reykjavík, Kauptún í
Garðabæ, fjöldi grunnskóla, sund-
lauga og opinberra bygginga, þró-
un og uppbygging á miðbæ Garða-
bæjar, Hljómahöllin og endurgerð
gamla Stapans í Reykjanesbæ.
Stækkun og endurgerð Kringl-
unnar vakti athygli og fékk verð-
laun sem best heppnaða verkefnið
í Evrópu árið 1999 af ICC, al-
þjóðasamtökum verslunarmið-
stöðva.
Ragnar Atli stofnaði Þróun og
ráðgjöf, eða ÞOR, árið 2006.
Fyrirtækið hefur einkum unnið að
fasteignaþróunarverkefnum er-
lendis undanfarin ár. Má þar m.a.
nefna IKEA í Vilnius og versl-
unarmiðstöð þar. Hér heima vinn-
ur fyrirtækið m.a. að uppbyggingu
og endurgerð eldri verslunar-
miðstöðva eins og Glerártorgi á
Akureyri.
Áhugamál Ragnars og fjölskyld-
unnar í heild snúast um veiði,
gönguskíði og útiveru í íslenskri
náttúru, en á hverju sumri er
ferðast um landið með frábærum
vinahópi og fjölskyldunni: „Mark-
miðið í ár er að afastelpurnar, Eva
Silfá og Elísa Saga, nái að veiða
fisk á bleiku veiðistangirnar
sínar.“
Fjölskylda
Eiginkona Ragnars Atla er Guð-
rún Soffía Jónasdóttir, f. 22.10.
1957, skólastjóri Vatnsendaskóla í
Kópavogi. Foreldrar hennar eru
Jónas Hólmsteinsson, f. 8.7. 1934,
fyrrv. aðalbókari hjá Innkaupa-
stofnun ríkisins, og Rannveig
Edda Kjartansdóttir, f. 29.10.
1936, fyrrv. verslunarmaður. Þau
eru búsett í Reykjavík.
Dóttir Ragnars Atla og Guð-
rúnar Soffíu er Edda Rún Ragn-
arsdóttir, f. 17.8. 1975, innanhúss-
arkitekt ERR design og
verkefnisstjóri hjá Þróun og ráð-
gjöf, en maður hennar er Jón
Andri Sigurðarson, fram-
kvæmdastjóri Stokks, og eru
barnabörnin Elvar Örn Jónsson, f.
12.6. 1995, Eva Silfá Jónsdóttir, f.
7.5. 2009 og Elísa Saga Jónsdóttir,
f. 19.3. 2012.
Hálfsystir Ragnars Atla, sam-
feðra, er Elín Eyfjörð Guðmunds-
dóttir, f. 20.6. 1945, fyrrv. bókari,
búsett í Hafnarfirði.
Alsystkini Ragnars Atla eru
Hanna Kristín Guðmundsdóttir, f.
24.4. 1948, hárgreiðslumeistari,
búsett í Reykjavík; Matthías
Hannes Guðmundsson, f. 6.5. 1958,
framkvæmdastjóri Reykjagarðs,
búsettur í Kópavogi; Margrét Rún
Guðmundsdóttir Kraus, f. 15.11.
1960, kvikmyndaleikstjóri, búsett í
München í Þýskalandi.
Foreldrar Ragnars Atla: Guð-
mundur Matthíasson, f. 27.10.
1926, d. 2.4. 2009, framkvæmda-
stjóri flugumferðarþjónustu, og
Ásta Sigríður Hannesdóttir, f.
10.3. 1929, fyrrv. snyrtisérfræð-
ingur í Reykjavík.
Úr frændgarði Ragnars Atla Guðmundssonar
Ragnar Atli
Guðmundsson
Margrét Hróbjartsdóttir
húsfr. í Hallgeirsey
Guðlaugur Nikulásson
b. í Hallgeirsey í A-Landeyjum
Vilborg Guðlaugsdóttir
húsfr. í Vestmannaeyjum
Hannes Hreinsson
fiskmatsmaður í Vest-
mannaeyjum og Rvík
Ásta Sigríður Hannesdóttir
snyrtifræðingur í Rvík
Þórunn Guðmundsdóttir
húsfreyja, síðar í Vestm.eyjum
Hreinn Skúlason
b. í Selshjáleigu og Bryggjum
Þórunn Jóhannesdóttir
húsfr. í Eyrarhúsum og að Vöglum
Kristján Kristjánsson
b. í Eyrarhúsum í Tálknafirði
og skógarvörður á Vöglum
Ragnheiður Kristín
Kristjánsdóttir
húsfr. og saumakona
í Rvík og á Akureyri
Einar Matthías Guðmundsson
lögregluvarðstj. og kennari í
Rvík og á Akureyri
Guðmundur Matthíasson
framkvæmdastj. Flugum-
ferðaþjónustu í Rvík
Sigríður Einarsdóttir
húsfr. í Vælugerði
Guðmundur Guðmundsson
b. í Vælugerði í Villingaholti
og kennari
90 ára
Ólafur Hilmar Ingólfsson
85 ára
Jóhann Sæmundsson
80 ára
Anna Sigurðardóttir
Haukur Benediktsson
75 ára
Ásta Ragnarsdóttir
Gunnar Örn Ólafsson
Kirstín G. Lárusdóttir
Kjartan K. Norðdahl
Kristín Hulda
Þórarinsdóttir
Stefán Lárus Pálsson
Tómas Guðmundsson
70 ára
Ingibjörg Unnur Holm
Matthildur
Sigursveinsdóttir
Sigrún Geirsdóttir
Særún Æsa Karlsdóttir
60 ára
Aldís Magnea Norðfjörð
Dóra Herbertsdóttir
Laufey Rós
Jóhannesdóttir
50 ára
Ari Bjarnason
Brynhildur Jónsdóttir
Egill Sigurgeirsson
Erna Bára Magnúsdóttir
Guðlaugur Örn Hjaltason
Kristín G. Hjálmarsdóttir
Kristján Ásgeirsson
Margrét Lillý Árnadóttir
Sigfús Gunnarsson
Slavka Stateczná
Valgerður Melstað
40 ára
Auður Elva Kjartansdóttir
Gitana Cicinskiené
Guðmundur Tómas
Axelsson
Guðrún Björg Lúðvíksdóttir
Halldóra Æsa Aradóttir
Rony Heval
Sheridan-Hewlett
Sigríður Ólafsdóttir
Svanfríður Tómasdóttir
30 ára
Adrian Lukasz Kania
Birna Dögg
Guðmundsdóttir
Bragi Reynisson
Bryndís Rán Magnúsdóttir
Elsa Rún Erlendsdóttir
Ingunn Valgerður
Henriksen
Jónas Ásmundsson
Margrét Ósk
Guðbergsdóttir
Philipp Scharf
Til hamingju með daginn
30 ára Aðalsteinn ólst
upp á Húsavík, býr í Hafn-
arfirði og rekur verktaka-
fyrirtækið Laufdal & Co.
Maki: Ísey Jökulsdóttir, f.
1992, verslunarmaður.
Sonur: Nóel Laufdal, f.
2012.
Foreldrar: Guðlaugur
Laufdal Aðalsteinsson, f.
1960, verktaki og bílstjóri,
búsettur í Hveragerði, og
Ásta Sigurðardóttir, f.
1962, þroskaþjálfi á Húsa-
vík.
Aðalsteinn A.
Guðlaugsson
30 ára Sigurlín ólst upp í
Reykjavík, er búsett þar,
lauk prófum sem við-
urkenndur bókari og rek-
ur eigin fyrirtæki á því
sviði.
Synir: Elishay Máni Har-
paz, f. 2007, og Andrés
Arnon Harpaz, f. 2009.
Foreldrar: Andrés G.
Guðbjartsson, f. 1954,
skólabílstjóri í Noregi, og
Unnur Rut Rósinkranz, f.
1961, starfsmaður hjá
Álafossi.
Sigurlín Edda
Andrésdóttir
40 ára Hulda ólst upp í
Reykjavík, hefur verið þar
búsett alla tíð og er dag-
foreldri.
Maki: Sveinn Sigfússon,
f. 1968, dagforeldri.
Börn: Anton Ingi, f. 1994;
Andri Freyr, f. 1996; d.
2014; Daníel Ottó, f. 1997;
Aldís Elva, f. 2000, Írena
Þöll, f. 2003, og Freydís
Katla, f. 2008.
Foreldrar: Dóra Friðleifs-
dóttir, f. 1930, og Guðjón
Ottósson, f. 1928.
Hulda
Guðjónsdóttir
Kristjana Stella Blöndal hefur var-
ið doktorsritgerð sína í uppeldis- og
menntavísindum við Uppeldis- og
menntunarfræðideild á Mennta-
vísindasviði Háskóla Íslands. Ritgerð-
in ber heitið Skuldbinding nemenda
til náms og brotthvarf úr framhalds-
skóla: Þáttur uppeldisaðferða for-
eldra (Student Disengagement and
School Dropout: Parenting Practices
as Context).
Í ljósi aukinnar áherslu á menntun í
samfélaginu eru þau ungmenni sem
ekki ljúka framhaldsskóla verr stödd
nú en áður fyrr. Meginmarkmið þess-
arar doktorsritgerðar er að auka
þekkingu og skilning á brotthvarfi frá
námi. Byggt er á langtímarannsókn
meðal íslenskra ungmenna.
Meginniðurstöður benda til þess
að skuldbinding nemenda til náms og
skóla og hvernig hún þróast við lok
grunnskóla segi fyrir um hve líklegir
þeir eru til að hafa lokið framhalds-
skóla átta árum síðar, við 22 ára ald-
ur. Önnur meginniðurstaða er að upp-
eldisaðferðir foreldra á unglingsárum
segi fyrir um hversu líkleg ungmenn-
in eru til að hafa lokið framhalds-
skóla við 22 ára
aldur. Á þessum
árum standa ung-
mennin frammi
fyrir mikilvægum
ákvörðunum er
lúta að menntun
þeirra; vali á námi
og skóla á nýju
skólastigi. Á sama
tíma aukast námskröfurnar og skóla-
umhverfið verður flóknara og oft
ópersónulegra. Samskipti foreldra og
barna, sem einkennast af tilfinninga-
legum stuðningi og gagnkvæmri virð-
ingu, þar sem foreldrarnir setja börn-
um sínum mörk með útskýringum og
hvetja þau til að hugsa sjálfstætt,
geta auðveldað ungmennunum að
takast á við þessar áskoranir með því
að ýta undir jákvæða skólahegðun og
tilfinningar í garð náms og skóla.
Draga má þá ályktun að til að auka
skilning á þeim áhrifum sem for-
eldrar hafa á menntun barna sinna sé
mikilvægara að beina athyglinni að
uppeldisaðferðum foreldranna í stað
afmarkaðri þátta sem tengjast beint
skólagöngu.
Kristjana Stella Blöndal
Kristjana Stella Blöndal lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri
1984, BA-prófi í uppeldisfræði frá félagsvísindadeild HÍ 1991, diplómagráðu í
námsráðgjöf við félagsvísindadeild HÍ 1992 og meistaraprófi í uppeldis- og
menntunarfræði frá félagsvísindadeild HÍ 1996. Hluta námstímans var hún
gestanemandi við Harvard Graduate School of Education í Cambridge, Banda-
ríkjunum. Stella hefur starfað sem lektor í meistaranámi í náms- og starfsáðgjöf
í Félags- og mannvísindadeild HÍ frá 2009. Stella á tvö börn, þau Halldór Reyni
Tryggvason og Ragnheiði Davíðsdóttur.
Doktor
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón