Morgunblaðið - 20.05.2015, Qupperneq 76
76 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
Hágæða postulín
- með innblæstri frá náttúrunni
Verið velkomin
í verslun RV og
sjáið úrval af
glæsilegum
hágæða
borðbúnaði
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þig langar til að brjótast út úr viðjum
vanans. Heppnin er líka með þér, svona að
hluta til. Sýndu öðrum tillitssemi.
20. apríl - 20. maí
Naut Aðstæður hafa misst kraftinn. Sam-
starfsmenn þínir hafa margir hverjir lagt þér
drjúgt lið og það skal launa þegar upp er
staðið. Vertu samt óhræddur því innsæi þitt
er í góðu lagi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér verður afar lagið að vinna að
rannsóknum á næstu vikum. Orðspor þitt er
mikilvægara en peningar í banka. Um ástina
gegnir öðru máli.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er alltaf gaman að hitta aðra
þegar aðstæður leyfa. Vertu tilbúinn að deila
leyndarmálinu með vini.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú stefnir öllu í tvísýnu með þrjósku
þinni. Skyldan kallar svo þú þarft að gera
þitt besta í stöðunni. Mundu að hver er sinn-
ar gæfu smiður og allir þurfa að leggja sig
fram.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Í byrjun sambands varstu til í að líta
framhjá göllum hinnar manneskjunnar, hlæja
og deila með og vera eins og þú átt að þér.
Taktu hlutina í réttri röð.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu það bara eftir þér að leika þér
svolítið í dag. Mundu að kapp er best með
forsjá. Hver er sinnar gæfu smiður og þú átt
sjálfur að ráða því hvernig þú vilt haga mál-
um þínum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú átt erfitt með að skilja af
hverju aðrir sýna þér ekki sama traust og þú
þeim. Gefðu þér tíma til að gera hlutina vel.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Í dag er ágætur dagur til að
slappa af og skemmta sér. Fólk hrífst af
færni þinni til að átta þig á heildarmyndinni í
stað þess að dvelja við smáatriði.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú gætir svo sem haft þitt fram
með hávaða og látum en það er ekki rétta
aðferðin. Taktu eftir gjörðum, ekki orðum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Dagurinn mun einkennast af
gáskafullu daðri sem þarf ekki að vera skað-
legt ef þú tekur því ekki alvarlega. Líttu á at-
burði dagsins sem vísbendingu um það sem
koma skal.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er hætt við að þú bíðir lægri hlut
ef þú reynir að standa uppi í hárinu á þeim
sem eru ofar settir. Vittu hvað þú vilt segja
og hvernig þú vilt sýna þig.
Þá verður fram haldið með gaml-ar ferðavísur, sem Ólafur Stef-
ánsson rifjaði upp á Leirnum.
„Það er meiri hugur og jákvæð-
ari í hinni alkunnu vísu Þórðar á
Strjúgi Magnússonar, en hún er í
miklu uppáhaldi hjá hestamönnum.
Þó slípist hestur og slitni gjörð
slettunum ekki kvíddu,
hugsaðu hvorki um himin né jörð
haltu þér fast og ríddu.
Aftur á móti hefur vísan hans
Jóns Vídalíns biskups ekki alltaf
þótt góð, og fyrri parturinn hálf
norðlenskur, en hún er einlæg á
sinn hátt og lifir góðu lífi.
Herra Guð í himnasal,
haltu mér við trúna.
Kvíði ég fyrir Kaldadal,
kvölda tekur núna.
Sýslumenn þurftu oft að sinna
skyldum sínum um langan veg yfir
fljót og sanda og máttu þakka fyrir
stundum að komast „lífs á land“ úr
þeim svaðilförum, eins og Árni
Gíslason yrkir um.
Skrölt hef ég um Skeiðarársand,
og skemmtun haft af munum.
Nú er ég kominn lífs á land
úr ljótu Núpsvötnunum.
Fleiri hafa ort um góða vatna-
hesta, eins og Guðmundur Magnús-
son Stóruskógum gerir svo hlýlega
um reiðhestinn sinn, Glám.
Mesta gull í myrkri og ám,
mjúkt á lullar grundum,
einatt sullast eg á Glám,
er hálffullur stundum.
Hann á líka góðrar heimkomu
von, Eyjólfur á Króki, og hvetur
hestinn sinn heim.
Engu kvíðir léttfær lund,
ljúft er stríði að gleyma.
Blesa ríð ég greitt um grund
Guðný bíður heima.
Fyrsta vísan hér að framan var
eftir Eggert Ólafsson, sem ferðað-
ist, á vegum stjórnarinnar með
Bjarna Pálssyni um landið um
miðja átjándu öld, en Ferðabók
Eggerts og Bjarna er afrakstur
þeirra ferða. Hálfri öld fyrr voru
þeir Árni Magnússon og Páll
Vídalín sendir út af örkinni til að
skrásetja landshagi og taka mann-
talið fræga og einstaka á þeim tíma.
Jarðabókin kom út 1713. Páll var
skáld gott og best að láta hann eiga
síðustu vísurnar í þessum pistli.
Það er hægt að ímynda sér þann
þreytta ferðalang, Pál sýslumann,
eftir slarksama ferð, eða var hann
að koma úr málastappi?
Eg er svangur, syfjaður,
svívirtur og hrakinn.
Hvenær mun ég heitur, þurr,
hresstur, saddur, vakinn?
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gamlar ferðavísur enn
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HEF ÉG SAMT TÍMA FYRIR
KAFFIBOLLA?“
Hermann
Ferdinand
Grettir
...Hann Tarsan – Þú
Jane
Hrólfur hræðilegi
AHH, VETURINN
ER KOMINN
ÞÚ SKULDAR
KÓNGINUM
SKATTA ÞRJÚ ÁR
AFTUR Í TÍMANN
BORGAÐU,
ANNARS!
HVAÐ SEGIRÐU
UM TVÖFALT
EÐA EKKERT DÆS
VOGUN
VINNUR…
…VOGUN
TAPAR
Víkverji hefur upp á síðkastið rek-ið augun í aðsendar greinar um
fasteignamarkaðinn á Flórídaskag-
anum í Bandaríkjunum undanfarið.
Þar var þó hvergi minnst á fasteign
eina í Miami, sem fór á átta milljónir
dollara á dögunum. Fasteignin er
einkum fræg vegna íbúa, sem þar
bjó fyrir tæpri öld. Þá var hann óvel-
kominn, en nú er nafn hans notað til
að auglýsa húsið.
x x x
Al Capone er einn frægasti skúrk-ur sögunnar. Þegar hann ákvað
að hreiðra um sig á Miami Beach
1928 spruttu upp mótmæli. Íbúarnir,
sem margir höfðu sitt lifibrauð af
ferðamennsku, óttuðust að nærvera
hans myndi flæma ferðamennina
burt. Til að uppfylla kröfur um um-
fjöllun um fasteignir er rétt að taka
fram að húsið er í nýlendustíl. Að-
eins baðherbergið mun vera eins og
á tímum Capones, svart og gyllt í art
deco-stíl. Við húsið er feiknaleg
sundlaug, sem opnaðist út í sjó.
Fiskar syntu inn í laugina og þar sat
Capone og veiddi á stöng. Hann mun
hafa kunnað að meta að húsið var við
sjóinn og nálægt flugvellinum. Þá
hefði hann nægar flóttaleiðir. Iðu-
lega þurfti að kalla til lögreglu vegna
drykkju, samkvæma og rifrilda við
nágranna, en Capone hafði þó mun
hægar um sig í Miami en í Chicago
x x x
Capone var dæmdur í 11 ára fang-elsi 1931 vegna brota á skatta-
lögum. Dóminn afplánaði hann fang-
elsinu á eyjunni Alcatraz á San
Francisco-flóa. Í ljós kom að hann
var langt leiddur af sífilis. Heilsu
hans hrakaði í fangelsinu og 1939
var hann látinn laus. Hann sneri aft-
ur í húsið í Miami og var þá orðinn
sjúklingur. Hann lést 1947, nokkrum
dögum eftir að hann varð 48 ára.
x x x
Víkverji veltir því fyrir sér hversvegna fréttir á borð við þessa
vekja athygli hans, en líklega er
ástæðan hinar óútreiknanlegu vend-
ingar sögunnar, í þessu tilfelli að
maðurinn, sem menn hefðu eitt sinn
viljað velta upp úr tjöru og fiðri og
bera út úr bænum á teini, er nú not-
aður til að draga að. víkverji@mbl.is
Víkverji
En það er hið eilífa líf að þekkja þig,
hinn eina sanna Guð, og þann sem þú
sendir, Jesú Krist.
(Jóhannesarguðspjall 17:3)