Morgunblaðið - 20.05.2015, Qupperneq 82

Morgunblaðið - 20.05.2015, Qupperneq 82
82 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015 Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Aldrei hefur verið auðveldara að heyra Enn er bætt um betur með nýju ReSound heyrnartækjunum sem gefa eðlilega og áreynslulausa heyrn. Taktu þátt í framþróuninni og prófaðu þessa hágæða tækni. GOLDEN LOBE AWARDS 2014 ASSOCIATION OF INDEPENDENT HEARING HEALTHCARE PROFESSIONALS Most Innovative Concept 2014 presented to: Resound - LiNX made for iPhone Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Magnús Sigurðarson opnar sína fyrstu einkasýningu hérlendis frá árinu 2004 í Hafnarhúsi á morgun klukkan 17 en Magnús hefur verið búsettur í Miami í Bandaríkjunum í yfir áratug. Sýningin heitir Athöfn og yfirskin og verða á sýningunni fjórar myndbandsvarpanir og sex yf- irstórar músateikningar; tölvuteikn- ingar af íslenskum fjöllum. Flygildi í Hallgrímskirkju Myndbands- og hljóðinnsetn- inguna vann Magnús nýlega við Hall- grímskirkju. „Ég var í jólamessu hinn 25. desember og eftir messuna var orgelspil meðan gengið var út úr kirkjunni. Snart það mig djúpt. Ég stoppaði og fékk þessa sýn, af mér að hringsnúast á palli með orgelleikara og drón,“ segir Magnús en orgelleik- arinn, hann og flygildið eru allir kar- akterar í verkinu. Á sýningunni beinir hann sjónum sínum að nokkrum fastapunktum til- verunnar sem er að finna bæði í nátt- úru og menningu og hafa ýmis sköp- unar- og listaverk öðlast gildi í leit mannsins að hinu háleita. Sameina verkin, að því er virðist, andstæða eiginleika og eru þau annars vegar ægifögur og yfirgnæfandi og hins vegar látlaus og einföld. Undir myndbandinu við Hall- grímskirkju hljómar lag Þorkels Sig- urbjörnssonar við texta Kolbeins Tumasonar, Heyr himna smiður. „Við komum á staðinn og gerðum þetta. Flygildið er í mynd og hljóð- mynd þannig að það er hluti af verk- inu sem slíku. Flygildið er orðið ímynd einhvers sem horfir á okkur, hálfgerður guð,“ segir hann og bætir við að fólk viti ekki lengur hvað fylg- ist með því. „Öll okkar leyndarmál eru að leysast upp,“ segir Magnús. Hann segir einn af þeim hlutum sem hann saknar í Miami vera ís- lensku fjöllin, því þar séu hæstu hæð- ir ruslahaugar. Fjöllin dómkirkjur Íslands „Sjóndeildarhringurinn er alltaf himinninn, þannig að hugurinn leitar til þessara fjalla. Síðan leggur maður merkingu í fjöllin. Þetta eru dóm- kirkjur Íslands og búa þau yfir ótrú- legri orku. Hvert krummaskuð á Ís- landi á sér fjall, flott fjall, og maður vegur og metur landslagið út frá þessum fjöllum. Teikningarnar eru frekar sneiðmyndir af fjöllunum og kemur verkið inn á greiningu þess augljósa, þess sem við höfum fyrir framan okkur alla daga, alla tíð. Það verður að staldra við og skoða,“ segir hann en á sýningunni koma saman þrír hlutir sem tengja má við þessa speki; kirkjan, fjöllin og listasafnið. Upplausn leyndarmála Litríkt Listaverk Magnúsar Sigurðarsonar, Rotating Renaissance Man, í Vizcaya Museum & Gardens í Miami.  Fyrsta einkasýning Magnúsar Sigurðarsonar hérlendis frá 2004, Athöfn og yfirskin, verður opnuð í Hafnarhúsi á morgun Bókin Vatnsdalsá, sagan ogveiðimennirnir er meðbestu veiðibókum semundirritaður hefur lesið. Höfundum tekst að gefa ákaflega góða mynd af einstöku vatnasvæði og að nálgast viðfangsefnið af virð- ingu og næmni. Það er augljóst að höfundunum þykir vænt um Vatns- dalsá og kunna vel að segja sögur sem ég held að flestum veiðimönn- um þyki upplifun að því að lesa. Bók- in er bæði fróðleg og skemmtileg. Textinn er vandaður, myndirnar ein- stakar og teikningarnar af flugunum svo vel gerðar að tíma tekur að átta sig á því að þetta eru ekki ljós- myndir. Frásagnir veiðimanna af ævintýr- um á bökkum Vatnsdalsár eru lif- andi og auðvelt að lifa sig inn í marg- ar af þeim. Maður kemst ekki hjá því að ganga í huganum um bakkana með sögumönnum og láta sig dreyma um að kasta flugu á veiði- stöðum sem er vandlega lýst í bók- inni. Sá sem þetta skrifar hefur ekki lifað sig jafnmikið inn í veiðilýsingar síðan hann las bók Jakobs Hafstein um Laxá í Aðaldal. Eftir lestur þessarar bókar langar mann fátt meir en að endurnýja kynnin við Vatnsdalsá. Bókin Vatnsdalsá, sagan og veiði- mennirnir er í mínum huga bók sem allir veiðimenn ættu að eignast. Veiðibækurnar verða ekki betri en þessi. Morgunblaðið/Golli Höfundarnir Sigurður Árni, Einar Falur og Þorsteinn J. með bók sína um Vatnsdalsá. „Höfundum tekst að gefa ákaflega góða mynd af einstöku vatnasvæði og að nálgast viðfangsefnið af virðingu og næmni,“ segir rýnir. Veiðibækurnar verða ekki betri Stangveiði Vatnsdalsá – Sagan og veiðimennirnir bbbbb Eftir Einar Fal Ingólfsson, Sigurð Árna Sigurðsson og Þorstein J. Vatnslitamyndir: Sigurður Árni. Ljós- myndir: Einar Falur. Hönnun og kort: Finnur Malmquist. G&P, 2014. 230 bls. MAGNÚS E. KRISTJÁNSSON BÆKUR Hvorki vantar spennu néhraða í bókina Zack, þarsem samnefndur rann-sóknarlögreglumaður í Stokkhólmi í Svíþjóð er í aðal- hlutverki. Þetta er enn ein sagan um undirheima Svíþjóðar, mansal, vændi og eiturlyf. Höfundum tekst vel að sýna skuggahliðarnar og þær eru víða, jafnt á röngunni sem á réttunni. Áhersla er lögð á tvöfalt líferni aðalsöguhetj- unnar, lögreglumanns á uppleið en um leið á niðurleið. Um leið og hrí- fast má af framgangi hans á starfs- vettvangi er ekki hægt annað en fyr- irlíta hann þess á milli. Deniz, samstarfskona hans, sem einnig hef- ur lifað tímana tvenna í æsku, er samt af allt öðrum meiði, sam- viskusöm, ákveðin og veit hvað hún vill. Mikið blóð rennur í bókinni, illska og viðbjóður. Höfundar gera vel í að lýsa umhverfinu, þar sem græðgin og valdið ráða för, og eins bregða þeir upp glöggri mynd af þeirri hættu sem lögreglumenn og blaða- menn leggja sig í til þess að varpa ljósi á vandamálið og uppræta það. Zack er frábær spennusaga og að mörgu leyti trúverðug með góðum persónulýsingum og staðháttum. Auðvitað er allt leyfilegt í skáldsög- um en tvennt er þó sem dregur úr áhrifamætti þessarar sögu. Þar ber fyrst að nefna eiturlyfjafíkn aðal- söguhetjunnar. Lögreglumenn eru ekki í eiturlyfjum á milli vakta og jafnvel á vöktum, eins og Zack. Í öðru lagi passar senan með úlfana ekki almennilega inn í rammann. En frásögnin rennur vel, þýðingin er góð og lesturinn skilur jafnvel eftir sig vangaveltur um velferðarríkið Svíþjóð. Lögreglan á fullu á ystu nöf Spennusaga Zack bbbmn Eftir Mons Kollentoft og Markus Lut- teman. Sigurður Þór Salvarsson þýddi. Kilja. 432 bls. Sögur útgáfa 2015. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Höfundarnir Tvíeykið Mons Kallen- toft og Markus Lutteman. Listahátíð í Reykjavík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.