Morgunblaðið - 20.05.2015, Side 84

Morgunblaðið - 20.05.2015, Side 84
84 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015 Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070 Fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is Þarftu að framkvæma? Við eigum pallana fyrir þig Jóel Pálsson hefur lengi veriðí fremstu röð íslenskradjassleikara – og tónskálda.Á plötum hans er að finna margan gimsteininn og fáir skína fegur en „Innri“ á plötunni Varp. Kjartan hafði útsett þetta verk, sem á nafn að rekja til trúarlegra pæl- inga, fagurlega í innhverfum stíl, sem honum er um margt eiginlegur. Í byrjun brá of oft fyrir hefðbundnu tónmáli margra stórsveitaútsetjara, en því var sem betur fer fljótt feykt burtu. Í öðru trúarpælingarverki Jóels, „Yggur“, sem er Óðinsnafn, ríkti evrópsk stemmning af sirkus- ætt einsog á plötunni þarsem það er að finna, Septett. Kjartan magnaði þessa stemmningu alla einsog fræg- ir evrópskir djassstjórar á borð við Breuker og Rüegg hafa gert og Saite og rússnesku nýklassíkerarnir í seilingarfjarlægð. Enn meiri mód- ernismi ríkti í „Kvabbi“ af sama diski og Davíð Þór sterkur á ham- mondið. Rafdjassinn hefur oft verið í nánd við verk Jóels einsog „Hótel Brist- ol“ af Varpi, svo var einnig í útsetn- ingu Kjartans. Það var líka mikið rafmagn í „Súrtá“ af Septett og hafði Kjartan fært verkið í austur- átt og Haukur Gröndal blék flottan altósóló með balkönskum klarinettukeim. Hann var líka stór- fínn á klarinettið í „Proximity“ af skífu Jóels: Klif. Þar þræddi hann skalann frá Goodman til Pee Wee í tóni, og að sjálfsögðu gægðist balk- aðið fram, enda útsetning Kjartans lituð austrænum áhrifum frá Mar- okkó til Tyrklands, en hann er vel- kunnugur á þeim slóðum einsog verðlaunaverk hans „Austurver“ af skífu Stórsveitarinnar HAK sýnir, en það var valið djassverk ársins 2012. Íslendingar eru með á nót- unum þegar slík tónlist er ann- arvegar því „Íslendingur í Al- hambrahöll“ af samnefndri skífu Stórsveitarinnar, sem höfundur, Stefán S. Stefánsson stjórnaði, fékk verðlaunin í ár. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um helstu einleikara Stór- sveitarinnar, þeir glönsuðu: Siggi, Sammi, Snorri, Kjartan, Ari Bragi, Jóel og allir hinir. Ekki voru gest- irnir síðri: Eyþór, Davíð Þór og Einar Scheving, sem styrkti frá- bæra hrynsveit. Ívar Guðmundsson, trompetleik- ari, hefur lengi leikið með Stórsveit- inni, með hléum þó, og á þessum tónleikum blés hann flýgilhornsóló í ballöðunni „Húmi“ af Septett. Sér- lega sterk tilfinning fyrir anda verksins, flottur tónn og tækni og útsetning Kjartans máluð mjúkum, impressjónískum litum. Þetta eru fyrstu stórsveitartón- leikar sem Kjartan stjórnar og skrifar fyrir. Þeir eiga vonandi eftir að verða fleiri. Hann brilleraði! Jóel Stórsveit Reykjavíkur flutti verk eftir Jóel Pálsson í Silfurbergi. Kjartan magnar Jóel Silfurberg Hörpu Stórsveit Reykjavíkur leikur verk eftir Jóel Pálssonbbbbn Ívar Guðmundsson, Kjartan Hákonar- son, Snorri Sigurðarson, og Ari Bragi Kárason trompeta; Einar Jónsson, Stef- án Ómar Jakobsson, Samúel Jón Sam- úelsson, og David Bobroff básúnur; Sig- urður Flosason, Haukur Gröndal, Jóel Pálsson, Ólafur Jónsson og Stefán S. Stefánsson saxófóna; Eyþór Gunnars- son píanó; Davíð Þór Jónsson, ham- mond-orgel; Eðvarð Lárusson gítar; Gunnar Hrafnsson bassa; Jóhann Hjör- leifsson og Einar Scheving trommur og slagverk. Stjórnandi Kjartan Valdimars- son, sem jafnramt hefur útsett verk Jó- els Pálssonar. Sunnudagur 17.5.2015. VERNHARÐUR LINNET TÓNLIST eru blóm í for- grunni, sóleyjar í vasa er glaðleg mynd. Tún verða blá af hélu. Ljóðin liggja ekki opin fyrir hraðfleygum les- anda, þau þarf að lesa hægt og oft, en þá opnast líka heimur sem er áhugavert að kynn- ast. Ljóðin geta fyllilega staðið ein og óstudd, án túlk- unar, yfirborðs- mynd þeirra er svo lýsandi og myndræn, orðin valin af kost- gæfni. En hér má lengi stinga upp með ljóðpál. Hér eru mörg orð sem geta haft táknlega tilvísun, brunnur og brú, árstíðir, skel, klukknahljómur, veiðimaður á báti sínum, vegur, skógur og mörg fleiri. Kannski er lykillinn að skilningi fólginn í heiti bókarinnar, Alman- akið. Orðið merkir m.a. dagatal í tímaröð og er þá nærtækt að líta á bókarhlutana tvo með tólf ljóðum sem tákn fyrir mánuði. Tólf langa mánuði í hvorum hluta. Bókinni lýkur á þessum línum: Kerran fer hljóðlaust hjá/ sveigir niður bláan troðninginn í tunglsljósinu/ og hverfur í mistrið hjá ánni./ Þar bíður hún en hann heldur leitinni áfram/ í gamla stólnum við borðið/ því nú orðið veit hann/ að þig er hvergi að finna nema í bókum. Í ljósi þessara lína er freistandi að líta á þessa bók sem eins konar samtal höfundar við minningu um ástvin eða ástvini, ekki síst föður sinn sem var öflugur og vandvirk- ur rithöfundur, bundinn landi og þjóð; ég las ljóðabækur Ólafs Jó- hanns Sigurðssonar í beinu fram- haldi af Almanakinu og þóttist skynja vissan samhljóm; næma náttúruskynjun og myndvísi, virð- ingu fyrir foldarskarti, óbeit á tildri tímans. Almanakið er áleitin bók og vek- ur margar spurningar. Brugðið er upp einkar fallegum myndum sem vekja lesanda til umhugsunar um hverfulleika tilverunnar, ferðalag manna um troðninga lífsins og allt okkar bjástur. Kannski eru góðar minningar gildari þáttur í lífsham- ingju en okkur órar fyrir. Ef til vill eru þær sá ódáinsakur sem miklu varðar að vaxi vor hvert. Almanakið er fyrsta ljóða-bók Ólafs Jóhanns semer löngu kunnur fyrirskáldsögur sínar. Bókin skiptist í tvo hluta og eru tólf tölu- sett ljóð í hvorum og kallast sum- part á; þannig eru t.d. ljóð nr. níu í báðum hlutum ort með sama lagi. Tónn bókarinnar er sleginn í erindi sem fer fyrir bókarhlut- unum: Þeir lögðu af stað í bítið/ og höfðu jökulinn með í för./ Vetur kominn,/ tunglið kyrrt/ í tjörninni heima,/ en ljós á himni/ sem þeir könn- uðust ekki við./ Þeir sögðu: Hvar fáum við leynst,/ hvar finnum við nú myrkrið/ sem við þráum?/ Á leiðinni heyrðu þeir klukknahljóm… Þessir menn vildu leynast og stangast á við gamla goðsögn um vitringana þrjá sem sáu bjarta stjörnu á himni og eltu hana. Öll eru ljóðin í frjálsu formi og málið er meitlað, jafnvel kaldhamrað á köflum. Myndirnar eru skýrar: Húsið er eins og fjallið/ þegar sól- in er sest á bak við það/ og skuggi þess leggur af stað yfir dalinn./ Á efri hæðinni eru hvít gluggatjöld/ sem blakta í vindinum eins og skýjaslæður/ en neðri hæðin sést ekki fyrir trjám. Ljóðmælandinn í bókinni er einmana, fullur sakn- aðar, tungutak hans er hófstillt. Hann er einn í búðinni en þangað kemur enginn. En stundum er kona hjá honum en efinn er með þeim í för (18). Hann sér andlit hennar skýrast þegar hún er ekki hjá honum. Oft er eins og ljóð- mælandinn sé milli svefns og vöku; og hann dreymir uggvænlega drauma. Hann er einn á flótta uppi í fjöllunum og saknar bók- anna. Eitthvað voveiflegt er á sveimi: Hvernig bý ég þau undir það sem koma skal/ án þess að ræna þau gleðinni? Þannig hefst fyrsta ljóðið í seinni hlutanum. Ljóðmælandinn býr á eyju, þar er mylla sem malar korn, kart- öflugarður og saltgrafir, bræðslu- pottar á bryggjunni, leiði á hóln- um næst kirkjunni. Þar eru bæði vitavörður og apótekari og verk- stæði en sá sem þar starfar hverf- ur. Umhverfið er að jafnaði nokk- uð dimmt. Það er oft myrkur, þoka, nótt, móða á glugga, eldur- inn deyr út, tunglið skín, herbergi eru skuggasæl. En það vottar líka fyrir ljósi, sól skín á hvítar skeljar, sól baðar land mildu ljósi, við sjáum hvít fjöll, hvíta akra. Oft Skáldið „Almanakið er áleitin bók og vekur margar spurningar. Brugðið er upp einkar fallegum myndum sem vekja lesanda til umhugsunar um hverfulleika tilverunnar, ferðalag manna um troðninga lífsins og allt okkar bjástur,“ segir gagnrýnandi meðal annars um fyrstu ljóðabók Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Almanakið. Sólskin bak við skugga Ljóð Almanakið bbbbn Eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Myndskreytingar: Ólafur Jóhann Ólafsson yngri. Veröld, 2015. 80 bls. SÖLVI SVEINSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.