Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Side 6
Sandkorn
n Reiðiskrif Björgvins G. Sig-
urðssonar, þingflokksfor-
manns Samfylkingarinnar,
vegna nafnlausra skrifa um
hann á spjallsíðu Barnalands
fóru fram
hjá fáum,
en þar end-
urtók hann
staðhæfu-
lausar ásak-
anir í sinn
garð. Minna
fór fyrir
rógburði í
garð Þor-
gerðar Katrínar Gunnars-
dóttur, varaformanns Sjálf-
stæðisflokksins, og Kristjáns
Arasonar, eiginmanns henn-
ar, síðastliðinn vetur. Á sama
vef var ítrekað eytt út dylgjum
um einkamál þeirra hjóna.
Hins vegar fékk rógburðurinn
ekki viðlíka kynningu og í til-
felli Björgvins G.
n Ólafur Ragnar Grímsson
forseti hélt framúrskarandi
ræðu á Bessastöðum í tilefni
af alþjóðlegri ráðstefnu um
bindingu
kolefnis í
jarðvegi á
dögunum.
Þótti Ólafur
sérstaklega
vel að sér,
auk þess
sem hann
leyfði gest-
um ráð-
stefnunnar að upplifa fágaða
kímnigáfu hans þegar hann
sagði reynslusögur af leið-
togafundinum í Höfða 1986.
Forsetinn sagði frá því að
Ronald Reagan Bandaríkja-
forseti hefði gefið sér tignar-
lega styttu af skallaerni. Hins
vegar gaf Mikhaíl Gorbatsjov
honum klukku. Og klukkan
virkaði aldrei, var föst í tíma.
Rússnesku ráðstefnugestun-
um varð nokkuð hverft við,
en óljóst var hvort þeir hefðu
móðgast eða hvort þeir hefðu
hreinlega ekki skilið brand-
arann.
n Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson lífstíðarprófessor hefur
ekki farið leynt með aðdáun
sína á Dav-
íð Odds-
syni, og
mætti segja
að þar sé
á ferðinni
mesta per-
sónudýrkun
Íslandssög-
unnar ef frá
eru taldir Guð og Jesús Krist-
ur. Hins vegar hefur minna
farið fyrir aðdáun Hannesar á
Steingrími J. Sigfússyni, sem
hann nefndi fyrstan í útvarps-
viðtali á X-inu 977 sem helsta
leiðtogann á þingi, með lýs-
ingarorðunum „mælskur“ og
„kraftmikill“. Þá vill Hannes fá
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Vinstri grænna. Hannes hefur
aldrei orðið ósammála Davíð
Oddssyni fram að þessu, svo
vitað sé.
n Össur Skarphéðinsson ut-
anríkisráðherra hefur veitt
móttöku 2.500 spurningum frá
Olli Rehn,
stækkun-
arstjóra
Evrópu-
sambands-
ins. Með
spurning-
unum vill
Rehn kom-
ast að því
hvaða tromp Íslendingar hafa
á hendi í komandi aðildarvið-
ræðum. Ef miðað er við stöðu
íslenska þjóðarbúsins næstu
árin og stórfellda skuldsetn-
ingu auðlindanna hefur Össur
engin tromp uppi í erminni.
Illu heilli er Össur ren.
6 föstudagur 11. september 2009 fréttir
Fjögurra milljóna króna arður var
greiddur til hluthafa Alþjóðahússins
ehf. í fyrra samkvæmt ársreikningi
2008. Hagnaður ársins 2007 var hins
vegar aðeins tæplega þrjár milljónir.
Eini hluthafi Alþjóðahússins ehf. er
sjálfseignarstofnunin Kosmos. Kosm-
os ses. sér um túlkunarþjónustu og
íslenskukennslu í Alþjóðahúsinu og
er á samkeppnismarkaði. Alþjóða-
húsið ehf. er rekið með styrkjum og
veitir útlendingum ýmsa gjaldfrjálsa
þjónustu.
Arður hugsaður sem
varasjóður
Katla Þorsteinsdóttir, stjórnarmaður
Alþjóðahússins ehf., segir arðinn fara
í varasjóð í eigu Kosmos. Hún seg-
ir arðinn hafa verið greiddan vegna
hagnaðar ársins 2007 og 2006. Árið
2006 var hagnaður Alþjóðahússins
ehf. tæpar fjórar milljónir. Vanalegt
er að arður sé greiddur frá ári til árs,
ekki fyrir tvö ár í senn.
„Arðurinn er hugsaður sem vara-
sjóður til að reka Kosmos auk þess að
standa straum af halla Alþjóðahúss-
ins ehf. Þessi arður hefur ekki verið
greiddur. Hann verður greiddur þegar
peningar eru til fyrir honum. Helm-
ingur af honum hefur verið greiddur
til að standa straum af nauðsynleg-
um rekstri Kosmos. Í fyrra til dæmis
var ekki til peningur fyrir jólatré í Al-
þjóðahúsinu þannig að það var greitt
með peningum úr þessum sjóði. Úr
þessum sjóði kemur líka fé vegna
kostnaðar við endurskoðunarþjón-
ustu. Hann hleypur á einhverjum
hundrað þúsund krónum sem Kos-
mos greiðir.“
Auk þessara fjögurra milljóna fara
250 þúsund krónur árlega í lögbund-
inn varasjóð Alþjóðahússins ehf.
Veisla upp á hálfa milljón
Í ágúst árið 2008 flutti Alþjóðahús-
ið starfsemi sína frá Hverfisgötu á
Laugaveg. Við það tilefni var haldin
opnunarveisla sem samkvæmt árs-
reikningi Kosmos kostaði hálfa millj-
ón króna. Að mati Kötlu var ekki um
bruðl að ræða þar sem Alþjóðahús-
ið var ekki í neinum rekstrarerfið-
leikum á þessum tíma. Í ársreikningi
Alþjóðahússins ehf. fyrir árið 2008
kemur fram að tap af rekstrinum nam
rúmlega 7 og hálfri milljón króna.
„Alþjóðahúsið var ekki í neinum
rekstrarerfiðleikum í ágúst í fyrra.
Kosmos var því síður í rekstrarerfið-
leikum. Við höfum alltaf haft opið á
menningarnótt og þarna var ákveð-
ið að gera þetta með pompi og prakt
til að auglýsa flutninginn. Það var
ákveðið að Kosmos ætti að standa
straum af þessu til þess að pening-
urinn þyrfti ekki að koma úr vasa Al-
þjóðahússins.“
Milljón á mánuði
Samkvæmt ársreikningum Alþjóða-
hússins ehf. var húsnæðiskostnaður
ársins 2008 rúmlega fjórtán milljón-
ir, það er rúmlega milljón á mánuði.
Árið áður nam húsnæðiskostnaður
tæplega þrettán milljónum.
Aðspurð hvort komið hafi til greina
að flytja starfsemi Alþjóðahússins á
ódýrari stað á höfuðborgarsvæðinu
segir Katla það vera í skoðun.
„Við erum bundin af húsaleigu-
samningi til nokkurra ára. Þetta er allt
í skoðun. Við erum að leita að sam-
leigjendum og erum nú þegar komin
með einn leigjanda í hluta húsnæð-
isins. Ef við höldum áfram starfsemi
verður um mikla endurskipulagn-
ingu að ræða,“ segir Katla.
Starfsemin sköðuð
Í dag er fjárhagsstaða hússins slæm
og var öllum starfsmönnum Alþjóða-
húss sagt upp um síðustu mánaða-
mót. Katla kennir vanefndum Reykja-
víkurborgar um.
„Í júlí á þessu ári fáum við eins
dags fyrirvara um að Reykjavíkurborg
ætli að skera framlög niður um þrjá-
tíu prósent. Þetta er ástæða uppsagn-
anna og vandræðanna í dag,“ segir
Katla. Hún getur lítið sagt um framtíð
Alþjóðahússins.
„Það er í höndum Reykjavíkur-
borgar hvort Alþjóðahúsið ehf. verð-
ur til í janúar árið 2010. Það fer eftir
samningagerð við Reykjavíkurborg og
hve fljótt við náum saman um samn-
ing fyrir næst ár. Ég veit ekkert enn-
þá hvenær það verður. Þetta ástand
núna hefur verulega skaðað starf-
semina og miklu meira en þyrfti.“
Bera ekki ábyrgð
Anna Kristinsdóttir, mannréttinda-
stjóri Reykjavíkurborgar, segir það
ekki koma borginni við þótt Alþjóða-
húsið sé rekið með halla.
„Við þurfum að meta hvernig þjón-
ustu við innflytjendur er best farið og
erum með sérstakan starfshóp til að
sinna því. Við erum búin að greiða
fyrir þessa þjónustu til áramóta og
tökum ákvörðun um hvernig henni
verður háttað árið 2010. Það eru eng-
ar breytingar fyrirsjáanlegar en við
viljum að þjónustunni sé vel sinnt.
Það er ekki okkar vandi ef rekstrar-
vandi er í húsinu. Við berum enga
ábyrgð á starfsemi Alþjóðahússins.“
Fjögurra milljóna króna arður var greiddur til hluthafa Alþjóðahússins ehf. í fyrra.
Hagnaður ársins 2007 var aðeins tæplega þrjár milljónir. Katla Þorsteinsdóttir, stjórn-
armaður Alþjóðahússins ehf., segir arðinn hafa verið greiddan fyrir árið 2007 og 2006.
Alþjóðahúsið þurfti að segja upp öllum starfsmönnum um mánaðamótin vegna fjár-
hagserfiðleika. Framtíð þess er óráðin.
ARÐUR GREIDDUR ÚR
ALÞJÓÐAHÚSINU
„Það er í höndum
Reykjavíkurborgar
hvort Alþjóðahúsið
ehf. verður til í janúar
árið 2010.“
liljA KAtrín gunnArSdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Ekkert gruggugt Katla segir ekkert
athugavert við arðgreiðslur Alþjóðahúss-
ins til Kosmos. Peningurinn fer í varasjóð.
Siðanefnd Blaðamannafélags Ís-
lands hefur úrskurðað að ritstjórar og
blaðamaður DV hafi framið alvarlegt
brot gegn ónafngreindri konu, þegar
birt var viðtal við kraftlyftingamann-
inn Ingvar Jóel Ingvarsson í helgar-
blaði DV 12. júní síðastliðinn.
Í viðtalinu sagði Ingvar Jóel meðal
annars frá upplifun sinni af sambandi
og samskiptum sem hann átti við
ónafngreinda konu, sem hann taldi sig
svikinn af. Þótt konan hafi aldrei verið
nefnd á nafn í viðtalinu fullyrðir siða-
nefndin að þar „jaðri við nafngrein-
ingu“, þar sem fram hafi komið að um-
rædd kona sé tengd heimi kraftlyftinga,
sé gift, eigi tvo syni og hafi átt „stöð“
sem Ingvar lagði peninga í, en fór svo í
þrot. Að mati siðanefndar nægja þess-
ar upplýsingar til að nafngreina „út fyr-
ir heim kraftlyftinga“.
Konan leitaði ekki leiðréttingar á
umfjölluninni, eins og krafa er um í
siðareglum. Hins vegar var, að mati
meðlima siðanefndar, vandséð að
hægt væri að leiðrétta meintar rang-
færslur í máli Ingvars og var málið
tekið fyrir á grundvelli þess og undan-
þáguákvæðis í siðareglum.
Í röksemdum fyrir úrskurðinum er
fullyrt að „sterkar vísbendingar“ hafi
verið uppi um „andlegt ójafnvægi“
Ingvars, þar sem hann hafi kveðist
hafa sótt þjónustu sálfræðings á ein-
hverjum tímapunkti, sem og heilara.
Vegna hins meinta andlega óstöðug-
leika viðmælandans hefði átt að fara
„sérstaklega varlega við birtingu við-
talsins“, að mati siðanefndarinnar.
Í siðanefnd blaðamannafélags-
ins sitja Hjörtur Gíslason, fyrrver-
andi blaðamaður Morgunblaðsins,
Jóhannes Tómasson, fyrrverandi
blaðamaður Morgunblaðsins, Frið-
rik Þór Guðmundsson fréttamað-
ur og Valgerður Anna Jóhannsdóttir
fréttamaður. Formaður nefndarinnar
er Björn Vignir Sigurpálsson, blaða-
maður á Morgunblaðinu.
Aths. ritstjóra
Í viðtali við Ingvar Jóel Ingvarsson
kom fram frásögn hans af persónu-
legri reynslu hans, en þar var kær-
andi hvergi nefndur á nafn. Hér er
harmað að siðanefnd viðhafi alvar-
legar aðdróttanir um „andlegt ójafn-
vægi“ nafngreinds viðmælanda DV.
Siðanefnd segir birtingu viðtals varasama – efast um andlegt jafnvægi manns:
„Andlegt ójafnvægi“ viðmælanda
Fjölmiðlar Siðanefnd Blaðamannafé-
lags Íslands hefur úrskurðað að viðtal
sem DV birti brjóti gegn siðareglum.