Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Page 47

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Page 47
helgarblað 11. september 2009 föstudagur 47 Ótal hljómsveitir og tónlistarmenn hafa þurft að bíta í það súra epli að hugmynd þeirra að plötuumslagi hefur verið hafnað með öllu eða því breytt að meira eða minna leyti. Oftar en ekki spilaði nekt inn í, en ástæðan gat verið af allt öðrum toga. Í þeim tilfellum þar sem um gamlar hljómplötur er að ræða hafa þær gjarna verið gefnar út með upphaflega umslaginu á síðari árum. Umdeild Umslög og Þrátt fyrir að geisladiskurinn hafi valdið byltingu í útgáfu tónlistar þegar hann var kynntur til sögunnar upp úr 1980 og gerði hljóðsnælduna úrelta á augabragði, auk þess sem hin hefðbundna hljómplata átti skyndilega í vök að verjast, fylgdi þó böggull skammrifi. Umslög geisla- diskanna stóðust engan veginn sam- anburð við stærð og sjónræna eigin- leika hefðbundinna plötuumslaga. Á árum áður hefði það kannski ekki skipt eins miklu máli, en liðin var sú tíð að plötuumslag var ein- göngu plötuumslag og um tæplega tveggja áratuga skeið hafði verið litið á plötuumslög sem list. Þess ber þó að geta að ekki öll plötuumslög nutu þess heiðurs að falla í þann flokk. „Butcher“-umslagið Það er eðli listar að vera umdeild og ein var sú hljómsveit sem að mörgu leyti ruddi brautina í tónlist- arheiminum. Þar er að sjálfsögðu um að ræða The Beatles. Eitt fræg- asta plötuumslag hljómsveitar- innar er „butcher“-umslagið sem prýddi hljómplötu þeirra Yester- day and Today sem gefin var út árið 1966 af bandarísku Capitol-útgáf- unni. Myndin sýnir Bítlana í hvítum sloppum, sem geta verið hvort held- ur sem er slátrarasloppar eða ein- kennisklæðnaður hljóð- manna og framleiðenda í hljóðverum þess tíma, með höfuðlausar dúkkur og blóðuga kjötbita. Límt yfir myndina Þrátt fyrir að Capitol hefði innkallað hljómplötuna hafði henni verið dreift til kynningar á útvarpsstöðv- ar og til gagnrýnenda. Samkvæmt einni kenningu var hugmyndin að umslaginu komin frá Paul McCartney og átti að vera kaldhæðnisleg ádeila á styrjald- ir og stríðsrekstur. Önnur kenning er á þá leið að Bítlarnir hafi verið orðnir þreyttir á því hvernig Capitol bútaði niður fyrri hljómplötur sveitarinnar og pakkaði í öðruvísi umslög en gert var í Bretlandi og höfuðlausu dúkk- urnar hafi átt að skírskota til vinnu- bragða Capitol. Þegar ráðamenn Capitol stóðu frammi fyrir hneykslunarröddum vegna myndarinnar var upphaflega brugðið á það ráð að farga umslög- unum, en í ljósi þess hve mikið hafði verið framleitt var síðar ákveðið að líma aðra mynd, og sakleysislegri, yfir „butcher“-myndina. Eflaust er enn að finna umslög sem skarta báðum myndum, annarri yfir hinni. Vald hljómplötufyrirtækja Það er engum blöðum um það að fletta hve mikið vald hljómplötuút- gáfufyrirtæki hafa á endanlegt útlit plötuumslaga. Því er ekki úr vegi að líta á nokkur þekkt og alræmd dæmi um umslög sem voru bönnuð eða afar umdeild. Úr smiðju fyrrverandi Bítils, Johns Lennon, kom hljómplatan Two Virg- ins árið 1968. Á umslaginu gat að líta Lennon og Yoko Ono í fullri nekt, að framan séð á framhlið- inni og að aft- an séð á bak- hliðinni. Sagan segir að Paul McCartney hafi árangurs- laust reynt að telja Lennon hughvarf vegna þess hversu umdeilt umslagið yrði. Sú varð einnig raunin, því sums staðar var umslagið dæmt argasta klám og útgefendur neyddust til að pakka plötunni í brúnan pappír. Hendrix bann- aður í Banda- ríkjunum Sama ár og Two Virgins kom út kom frá Jimi Hendrix hljóm- platan Electric Ladyland. Á um- slaginu gat að líta kvennabúr fullt af nöktum konum. Eins og við var að bú- ast fór myndin fyrir brjóstið á fólki og var út- gáfan bönnuð í Bandaríkjun- um og síðan gefin út í ann- ars konar um- slagi. Svo virðist sem breytt út- gáfa af umslag- inu hafi ekki borist til Bretlands í tíma því þar fékkst platan í upphaflega umslag- inu. Á meginlandi Evrópu sáu menn ekki ástæðu til að banna „kvenn- búrs“-útgáfuna. Ári síðar gaf Blind Faith út samnefnda hljómplötu. Á umslaginu gat að líta unglings- stúlku, sem var nakin að ofan og handlék silfur- lita geimskutlu. Myndin var talin afar óviðeigandi og platan var síð- ar endurútgef- in með einfaldri mynd af hljóm- sveitinni. Óhreint salerni Hljómsveitin Rolling Stones á einnig umdeilt hljómplötuumslag. Beggars Banquet, sem kom út 1968, var fyrsta platan í sögu sveitarinnar sem ekki skartaði hljómsveitinni á umslag- inu. Þess í stað ákvað hljómsveitin að nota mynd af frekar óásjálegu sal- erni, skítugu með miklu veggjakroti. Bæði Decca í Bretlandi og London Records í Bandaríkjunum leist illa á hugmyndina, sem var talin bera vott um slæman smekk. Í kjölfar þriggja mánaða slags fyr- ir dómstólum þurfti hljómsveitin að játa sig sigraða og „smekklegra“ um- slag var hannað sem skírskotaði til boðsmiða í veislu. Þegar geisladisk- urinn hóf innreið sína var plata gefin út með upphaflega umslaginu. Saman í baði If You Can Believe Your Eyes And Ears með hljómsveitinni The Mama’s and the Papa’s kom út 1966. Á umslaginu var að finna fyrstu merki „klósettmenningar“ á plötu- umslögum, ef svo er hægt að komast að orði. Samankomnir í einu baðkeri voru allir fjórir meðlimir sveitarinn- ar, en það var ekki það sem olli mót- mælum og umkvörtunum heldur sú staðreynd að baðkerið var staðsett við hliðina á klósetti. Plötufyrirtækið Dunhill brá á það ráð að hylja klósettið með auglýs- ingum um helstu smelli sveitarinn- ar. Síðan bætti Dunhill um betur og fjarlægði klósettið með öllu. Nekt ávallt illa séð Eins og sjá má á framanskráðu var nekt ávallt illa séð á plötuumslög- um, og er jafnvel enn. Hljómsveit- in Black Crowes gaf út plötuna Am- orica árið 1994 og umslagið prýddi mynd af miðhluta konu íklæddri bikiníi og má sjá nokkur skapahár gægjast upp úr bikiníinu. Þetta var meira en almenningur þoldi og vegna þrýstings frá valda- miklum íhaldssömum verslana- keðjum neyddist Universal-útgáfan til að útbúa annað umslag sem sýndi einungis bikiní á svörtum grunni og engin hár. Þýska hljómsveitin Scorpions þurfti að bíta í það súra epli að um- slag plötunnar Loverdrive sem kom út 1979 þótti sýna helst til mikið hold. Á umslaginu má sjá par sem situr í aftursæti bifreiðar og er karl- inn við það að fjarlægja tyggigúmmí af brjósti konunnar. Platan var síð- ar endurútgefin með umslagi sem sýndi bláan sporðdreka, fullklædd- an, á svörtum fleti. Þetta var reyndar ekki í fyrsta skipti sem hljómsveitin þurfti að endurskoða plötuumslag því árið 1976 var plötuumslagi Virg- in Killer hafnað en það sýndi nakta unglingsstúlku. Nakinn puttalingur og demantshundur Roger Waters, fyrrverandi liðs- maður Pink Floyd, gaf árið 1984 út hljómplötuna The Pros and Cons of Hitch Hiking en inntak plötunn- ar var kreppa hins miðaldra manns. Umslagið prýddi nakinn kvenmað- ur, séður aftan frá, með ekkert nema rauðan bakpoka. Þessa ferðaútbúnaður fékk ekki mörg stig hjá ritskoðunarnefndum og á seinni útgáfum plötunnar hafði verið settur svartur flötur yfir sitj- anda dömunnar. Myndin á plötu Davids Bowie Diamond Dogs frá árinu 1974, sem var máluð af Guy Peelaert, olli þó nokkrum skjálfta. RCA-útgáfunni hugnaðist sennilega ekki að „Bowie- hundurinn“ á umslaginu var líkam- lega rétt málaður og gripið var til þess ráðs að hylja kynfæri „hunds- ins“ á framtíðarútgáfum plötunnar. Eins og áður nefnd dæmi sýna er það sem sumir telja list smekkleysi í augum annarra. kolbeinn@dv.is bönnuð „Butcher“-umslagið Sakleysisleg mynd var límd yfir „butcher“-myndina. The Mama’s and the Papa’s Í neðra hægra horni er búið að hylja klósettið. Electric Ladyland Hendrix Var bönnuð í Bandaríkjunum vegna umslagsins. The Pros and Cons of Hitch Hiking Síðari útgáfa með svört- um fleti yfir sitjanda konunnar. Two Virgins Var pakkað inn í brúnan pappír enda umslagið talið klám af mörgum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.