Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Side 51

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Side 51
tíska 11. september 2009 föstudagur 51 gyllinæðarkrem gegn hrukkum Heyrst hefur að súpermódelin noti gyllinæðarkrem undir augun til þess að strekkja á öllu sem hægt er að kalla hrukkur. Engan skal furða að þessar gellur séu „haug“-sætar. Gisele Bünd- chen hefur einnig viðurkennt að gott sé að nota fölbleikan augnskugga undir augun til að fela bauga og notar ljóst púður yfir allt augnlokið. Allar út í apótek! 1) Þegar kemur að farða í ár er minna svo sannarlega meira. Notast skal við farða sem er léttur og leyfir náttúruleika húðarinnar að skína í gegn. Náttúruleg og gljáandi húð er málið en til þess að framkalla hina fullkomnu húð er mælt með svokölluðum hi-def farða en einnig er góð hug- mynd að búa til sitt eigið létta og litaða dagkrem með því að blanda saman uppáhalds- farðanum og góðu dagkremi. 2) Helstu litirnir í augnfarða á komandi hausti eru bókstaf- lega mjög haustlegir. Djúpir mosa- grænir, fallega gylltir og grábrúnir tónar eru sjóðheitir í mattri flauels- áferð. 3) Kattarleg augnmálningin sem var svo heit í fyrra er með örlítið breyttu sniði í ár. Í stað þess að herma eftir 60´s línunni er bein og hvöss augnblý- ants-lína það sem koma skal. Örlítið meira rokk og ról og minni rómantík. 4) Náttúrulegar augabrúnir munu halda áfram út árið 2009 þannig að það er um að gera að leggja plokk- arann á hilluna og muna að augabrúnirn- ar ramma inn andlit- ið. Þykkari augabrúnir geta einnig yngt þig um nokkur ár, svo lengi sem þær eru vel snyrtar. 5) Léttur og blautur kinnalitur sumartísk- unnar víkur fyrir fallega skyggðum kinnbeinum á komandi hausti en verður ekkert of drama- tískur. Hann leyfir hins vegar „smokey“ augn- förðuninni að njóta sín til hins ítrasta. Tíska sem ekki er vert að prófa: aflit- aðar augabrúnir. Við viljum ekki líkj- ast geimveru! Förðunartískan: haustið 2009 Umsjón: HElGA kristjánsdóttir Verð að fá það! svört upphá stígvél, kassalaga tær eru töff! stóra og kósí kápu eins og þessa frá Chloé. Um að gera að kíkja í verslanir sem selja notuð föt. Hina fullkomnu hvítu skyrtu. skólastelpulúkkið er sjóðheitt í september. djúprauðan varalit. Veldu litatón sem passar þér. stóra hálsfesti sem poppar upp hvaða dress sem er. Fallega alpahúfu eða eina sæta í reggístíl. Fallegan pels sem heldur þér sjóðheitri í marga vetur. Ísak Freyr Helgason er 19 ára förðunarsérfræðingur sem skotist hefur upp á stjörnuhimininn sem sérlegur aðstoðarmaður Karls Berndsen í sjónvarpsþættin- um Nýtt útlit á Skjá einum. DV spyr unga tískukónginn spjörunum úr um hvað sé það heitasta á komandi mánuðum. Grace Jones Ísak Freyr Helgason er 19 ára „make- up artist“ sem skotist hefur upp á stjörnuhimininn sem sérlegur að- stoðarmaður Karls Berndsen í þrusu- vinsæla sjónvarpsþættinum Nýtt útlit á Skjá einum. Honum er margt til lista lagt og er heldur betur með puttann á tískupúlsinum. DV spyr unga tísku- kónginn spjörunum úr um hvað sé það heitasta á komandi mánuðum. Hvað varð til þess að þú fórst út í tískubransann? „Ég sat á framhaldsskólabekk 17 ára gamall og var að klára aðra önn á lista- braut og var ekki alveg að finna mig í því námi, vissi ekkert hvað mig lang- aði að gera. Svo fékk ég þessa snilldar hugmynd að prófa að læra förðun og fann mig rosalega vel í því og þróaði minn eigin stíl. Ég hef haldið ótrauður áfram síðan þá.“ Hverjar eru þínar helstu tísku- fyrirmyndir? „Ég á mér engar íslenskar fyrirmynd- ir en Grace Jones er aðalnúmerið á er- lendri grundu. Hún hefur ávallt verið í uppáhaldi hjá mér og ég hef oft sótt mér innblástur til hennar.“ Hverjar finnst þér vera flottustu konur landsins? „Þær eru svo margar! Svala Björgvins finnst mér alltaf flott og Ragnhildur Gísla klikkar aldrei. Þær sem þora að stíga aðeins út fyrir rammann og fara í mismunandi snið og leika sér með ólíkar samsetningar finnast mér æði.“ Hverjir eru þínir uppáhaldshönn- uðir? „Það finnst mér svakalega erfitt að velja. Hér á landi eru það Rebekka Jónsdóttir, Arna Sigrún Haraldsdóttir, Elm, Mundi og margir fleiri. Bernhard Wilhelm, Skyward, Kokon To Zai, Viv- ienne Westwood, Balenciaga og Rod- arte eru mínir uppáhalds erlendu hönnuðir. Ég gæti haldið upptalning- unni endalaust áfram en þessir eru á toppnum hjá mér.“ Hvaða fegrunarleyndarmáli lumarðu á? „Að sofa vel og drekka nóg af vatni. Svo einfalt er það.“ Hvaða fimm snyrtivörur mynd- irðu taka með þér á eyðieyju? „Sensai-kremin mín. Rakakrem- ið, augnkremið og varakremið er al- gjört möst og síðan kannski hyljara og maskara ef einhver skyldi koma í heimsókn.“ Hvað er það nýjasta og heitasta í tískunni í haust? „Í fatnaði verður áhersla lögð á form og ákveðið „statement“ í lúkki. Og þar halda axlapúðarnir heldur betur áfram að vera heitir. Tískan er undir áhrifum af fág- uðu rokki og pönki þar sem ofurstór- ir skartgripir spila stóran þátt. Tískan á næstunni er svolítið rokkuð Jóhanna af Örk árið 2009. Áhrif frá áttunda ára- tugnum mun einnig halda áfram að poppa upp hér og þar. Í förðun spila lýstar augabrúnir stórt hlutverk. Um augun verða bláir tónar vinsælir og mikið um bronsaða tóna. Á vörum er rosa mikið um purp- urarauða og djúpa, dramatíska liti. Hárið helst áfram náttúrulegt en nú verða kaldir tónar og ískaldar strípur heitar. Öskutónar taka við af hlýjum og mjúkum tónum. Allar lengdir eru í gangi og mikið um lág tögl og hárið verður meira ýft heldur en slétt og full- komið.“ Hvert er þitt helsta tískuslys? „Ætli að það sé ekki neon appelsínu- guli fubu-gallinn minn sem ég keypti mér í Jónas á milli á sínum tíma. Alveg hræðilega ljótur.“ Hvað er á döfinni hjá þér? „Bara fjör og skemmtilegheit. Þáttur- inn Nýtt útlit hefur göngu sína aftur á Skjá einum og fullt af skemmtilegum og spennandi verkefnum eru fram undan.“ Er karlinn á lausu? „Já.“ Ísak Freyr Er laus og liðugur. fyrirmyndin Grace Jones „Hún hefur ávallt verið í uppáhaldi hjá mér og ég hef oft sótt mér innblástur til hennar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.