Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 21. maí 2010 FRÉTTIR Bjarni Jónsson deildarstjóri er á full- um launum hjá Veiðimálastofnun á meðan hann stundar doktorsnám við Standford-háskóla í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig þegið rannsókn- arstyrki í gegnum fyrirtæki sitt Fræða- veituna ehf. þrátt fyrir að starfa fyrir Veiðimálastofnun. Styrkina er ekki að finna í ársreikningi einkahlutafélags Bjarna. Bjarni er sonur Jóns Bjarna- sonar, sjávarútvegs- og landbúnað- arráðherra. Veiðimálastofnun heyrir enn fremur undir ráðuneytið. Fræðaveitan fékk að minnsta kosti tvo styrki árið 2008 til að útbúa gagn- virka upplýsingaveitu um vötn og veiði á Norðurlandi vestra. Styrkirnir námu samtals 2,5 milljónum króna. Annar þeirra kom frá Framleiðni- sjóði landbúnaðarins. Hann var upp á eina milljón króna og voru 400 þús- und krónur greiddar út við upphaf verkefnisins. Hinn styrkurinn kom frá Vaxtarsamningi Norðurlands vestra og var hann upp á eina og hálfa millj- ón króna, en 900 þúsund krónur voru greiddar út við upphaf verkefnisins. Fulltrúar þessara sjóða könnuð- ust báðir við að styrkirnir hefðu ver- ið greiddir til Fræðaveitunnar. Jón G. Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, segir að engin framvinduskýrsla hafi borist vegna verkefnisins. „Það er nú ekki einsdæmi að svona verkefni dagi uppi, en um áramót munum við fara yfir öll verkefni sem sjóðurinn hefur styrkt og sjá hver staða þeirra er,“ seg- ir Jón. Hjördís Gísladóttir, framkvæmda- stjóri Vaxtarsamnings Norðurlands vestra, segir að verkefni Fræðaveit- unnar hafi verið frestað um ár og því eigi að ljúka á þessu ári. Styrkirnir ekki í ársreikningi Í ársreikningi Fræðaveitunnar fyrir árið 2008 kemur hvergi fram að fyr- irtækið hafi fengið styrki frá þess- um sjóðum. Einu tekjurnar eru und- ir liðnum: Seld fræðsla o.þ.h. upp á tæpar 3,2 milljónir króna. Stærsti útgjaldaliður fyrirtækisins eru laun upp á rúmar 2 milljónir. Aðspurður hvernig styrkjunum hafi verið varið segir Bjarni að þeir hafi farið í marg- víslega undirbúningsvinnu við að koma verkefninu áfram. „Ég ætla svo sem ekkert að fara út í það í smáatrið- um í hverju það felst,“ segir Bjarni og spurður hvort hann hafi notað pen- ingana í upplýsingaveituverkefnið segir hann svo vera. Aðspurður hvort fyrirtækið hafi greitt laun svarar hann: „Ég ætla bara ekkert að fara meira yfir það. Það hafa fleiri komið að þessu en ég sem vinna að þessu með mér og þetta er bara í góðum gír. Þetta er bara flott verkefni sem ég vona að komist sem fyrst á koppinn og snýr að veiði- nýtingu á svæði sem ekki er inni á kortinu í dag.“ Endurskoðendum að kenna Þegar Bjarni er spurður að því af hverju styrkirnir til Fræðaveitunnar komi ekki fram í ársreikningi félags- ins bendir hann á endurskoðanda fyrirtækisins. „Ég er með virta end- urskoðunarskrifstofu sem klárar og sér um þetta bókhald og ársreikninga fyrir mig þannig að ég geri ráð fyrir að þetta sé allt með eðlilegum hætti eins og annars staðar gerist, enda ekki miklar upphæðir undir,“ segir Bjarni og spurður hvort það væri ekki eðli- legt að opinberir styrkir kæmu fram í ársreikningi segist hann ekki vera sér- fræðingur í ársreikningagerð. „Enda fæ ég aðra til að vinna það fyrir mig. Mér finnst bara að það eigi að koma fram það sem þurfi að koma fram í þessum reikningi og þetta eru engin feluverkefni eða slíkt. Ég er bara stolt- ur af því að vera að vinna þessi verk- efni og ég vona að þau eigi eftir að skila árangri.“ Fjölmargir styrkir Árið 2009 fékk Fræðaveitan styrk upp á 2 milljónir króna frá AVS, rannsókn- arsjóði í sjávarútvegi. Styrkurinn var ætlaður til rannsókna á ósakola við Ís- landsstrendur, en Bjarni hefur í nafni Veiðimálastofnunar sótt um og fengið fjölmarga styrki í sama verkefni und- anfarin ár. Meðal annars fékk hann styrk úr verkefnasjóði sjávarútvegsins upp á 3,4 milljónir árið 2009 og árið áður fékk hann 3,8 milljónir króna. Bjarni virðist því vera í samkeppni við Veiðimálastofnun um styrki því hann sækir annars vegar um í nafni Veiði- málastofnunar og hins vegar í nafni Fræðaveitunnar til sama verkefnis. Vill ekki svara um reksturinn Bjarni segir að styrkurinn sem Fræða- veitan fékk hafi nýst vel. „Þeir nátt- úrulega fóru í það að framkvæma verkefnið og það sem þeir náðu til, en verkefnið varð ekki af sama umfangi og það hefði orðið ef það hefðu ver- ið meiri upphæðir undir. Þess vegna var það lagað að því,“ segir Bjarni, en hann vill ekki svara því hvort styrkirn- ir sem Fræðaveitan hefur fengið hafi farið í að greiða laun til hans í ljósi þess að launakostnaður er stærsti einstaki útgjaldaliður fyrirtækisins. „Veistu það að ég sé ekkert ástæðu til þess að fara nákvæmlega ofan í rekst- ur á þessu við þig.“ Gott samstarf við forstjóra Bjarni segist hafa verið duglegur við að sækja um styrki til verkefna sem hann sinni hjá Veiðimálastofnun. Hann telur fyrirtæki sitt Fræðaveit- una ekki vera í samkeppni við Veiði- málastofnun. „Varðandi félagið þá snýr það að verkefnum sem ekki eru á verksviði stofnunarinnar eða reyndar mjög takmarkað,“ segir Bjarni og bæt- ir við að í lögum Veiðimálastofnun- ar sé einungis talað um rannsóknir í ám og vötnum. „Það er ekkert um það að ræða að það séu einhver verkefni í samkeppni við stofnunina. Ég hef ekki fengið neinar athugasemdir frá forstjóra og hef átt gott samstarf við hann,“ segir Bjarni og bætir því við að forstjórinn hafi óskað eftir skýringum frá öllum starfsmönnum stofnunar- innar þar sem þeir séu beðnir um að greina frá hagsmunatengslum sínum. „Það eru fleiri starfsmenn hjá stofn- uninni sem hafa aðkomu að einhverj- um fyrirtækjum,“ segir Bjarni. Veiðimálastofnun logar Að mati Bjarna er ástæða þess að DV skrifar um fyrirtæki hans sú að Veiði- málastofnun logi í illdeilum. „Það sem er fyrst og fremst um að ræða er öfund og erfiður starfsandi á Veiði- málastofnun – það er málið. Sem fær samstarfsmenn til margra ára til að vega að félögum sínum úr launsátri með fjöldatölvupóstsendingum og nafnlausum bréfasendingum. Það er búið að vera að senda fjölpósta um allt með einhverjum rógsamantekt- um og beðið um að nota það gegn manni. Það eru nokkrir einstaklingar sem láta öfund og vanlíðan ráða för – menn sem hefur fundist þeir sitja eft- ir og láta það bitna á samstarfsmönn- um. Þeir sem njóta velgengni í starfi og alþjóðlegrar viðurkenningar fyr- ir vísindastörf fara sérstaklega í taug- arnar á þessum mönnum. Það er al- veg ljóst hverjir eru heimildarmenn varðandi þetta mál og þeir eru því miður í hópi félaga minna á vinnu- staðnum,“ segir Bjarni. Á launum í námi Bjarni stundar nú doktorsnám við Stanford-háskóla og er á fullum laun- um hjá Veiðimálastofnun í eitt ár á meðan á náminu stendur, en stór- an hluta af náminu stundar hann á Íslandi. Bjarni segir að námið teng- ist þeim rannsóknum sem hann hafi stundað á Veiðimálastofnun undan- farin ár. Hann fái opinbera styrki sem renni til Veiðimálastofnunar sem aft- ur séu nýttir til að greiða laun hans. „Verkefni sem ég er að vinna í þessu doktorsnámi eru hluti af verkefn- um stofnunarinnar og ég stend skil á greinargerðum og skýrslum til þeirra sem veita þessa styrki til stofnunar- innar,“ segir hann. Bjarni segir þá staðreynd að hann sé sonur Jóns Bjarnasonar ráðherra ekki hafa hjálpað sér að fá styrki: „Ég hef ekki fengið neina styrki í verkefni í hans ráðherratíð fyrir mig persónu- lega.“ Bjarni Jónsson, sviðsstjóri hjá Veiðimála- stofnun, hefur móttekið opinbera styrki til rannsókna í nafni einkahlutafélags sem hann á. Innan Veiðimálastofnunar er verið að skoða hvort Bjarni sé kominn í samkeppni við stofnunina með því að þiggja styrkina. Forstjóri Veiðimálastofnunar vissi ekki um félagið fyrr en í vetur og segir ámælisvert af Bjarna að hafa ekki látið vita af fyrir- tækinu. Bjarni er sonur Jóns Bjarnasonar, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, og stundar nú doktorsnám á fullum launum. MILLJÓNASTYRKIR RÁÐHERRASONAR JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is Sonurinn Bjarni Jónsson á fyrirtækið Fræðaveitan ehf. Opinberir styrkir sem félagið hefur fengið koma ekki fram í ársreikningi þess. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar, segir að mál Bjarna sé nú til skoðunar innan stofnunarinnar. Bjarni hefur sótt um styrki vegna verkefna sem sögð eru í samstarfi við Veiðimálastofn- un. Sigurður segir að það sé eitt af því sem hann hafi spurt Bjarna að. „Ég vissi ekki af þessum styrkjum. Það sem maður byrjar á að skoða er hvað sé rétt og maður þarf að sinna hinni svokölluðu rannsókn- arskyldu. Það ferli er í gangi og lýkur vonandi innan tíðar,“ segir Sigurður. „Fræðaveitan hefur mér vitan- lega sótt um þrjá styrki og fengið. Mér er ekki kunnugt um neitt fleira. Síðan er Veiðimálastofnun að fá ótal styrki,“ segir Sigurður og spurð- ur hvað honum finnist um það að hann sem forstjóri fái ekki upplýs- ingar um styrki sem Bjarni hafi sótt um svarar hann: „Það er ámælis- vert.“ Um þá staðreynd að Bjarni sé á fullum launum hjá stofnuninni á meðan hann stundi doktorsnám segir Sigurður að hann sé ekki sá eini sem hafi fengið slíkt leyfi. Hann hafi einnig upplýsingar um það að innan fleiri ríkisstofnana hafi slíkt leyfi fengist fyrir starfsmenn. Spurður hvort honum finnist það rétt að Bjarni fái laun frá stofnun- inni þar sem svo virðist sem hann hafi farið á bak við forstjórann varðandi styrkveitingar segir hann menn verða að fara eftir lögum og reglum. „Á mér hvílir fyrst sú skylda að rannsaka málið og eins og ég sagði þá er það í gangi. Síð- an verður maður að sjá hvort eitt- hvað sé ekki eins og það á að vera. Við skulum orða þetta svona. Hon- um láðist að tilkynna um að hann ætlaði sér að fara í þessar rann- sóknir eða hans fyrirtæki. Það er ákveðin yfirsjón af hans hálfu – það liggur fyrir í málinu en hvort hann hafi farið í samkeppni, það eru ekki nein úrslit komin í það.“ Forstjórinn rannsakar Forstjóri Veiðimálastofnunar skoðar mál Bjarna Jónssonar: Ég hef ekki fengið neina styrki í verkefni í hans ráðherratíð fyrir mig persónulega. Pabbinn Bjarni Jónsson er sonur Jóns Bjarnasonar landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra. Fyrirtæki sem Bjarni á hefur sótt um og fengið styrki til rannsóknarverkefna sem virðast í beinni samkeppni við Veiðimálastofnun, þar sem hann starfar sem sviðsstjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.