Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Blaðsíða 56
SAMSKIPTAVEFUR FYRIR KRAKKA Samskiptavefnum
togetherville.com var hleypt af stokkunum í vikunni en síðan
er ætluð krökkum upp að tíu ára aldri og foreldrum þeirra. To-
getherville er ætlað að vera nokkurs konar þjálfunarbúðir þar
sem foreldrar geta kennt börnunum að fóta sig í hinum var-
hugaverða vefheimi áður en þau stíga fyrir alvöru sín fyrstu skref
á síðum eins og Facebook og Myspace. Foreldrar geta skráð sig
inn á síðuna með sama aðgangi og notaður er á Face book.
KLÁMIÐ KOMIÐ
FYRIR IPAD
Eins og fram kom í fréttum fyrir
stuttu sagði Steve Jobs, fram-
kvæmdastjóri Apple, þegar hann
svaraði einum viðskiptavini
fyrirtækisins í tölvupósti, að
iPad-tölvan fæli í sér frelsi frá klámi.
Ein af stærri klámsíðunum
vestanhafs, youporn.com, virðist
hins vegar hafa gert þessa
fullyrðingu framkvæmdastjórans
með öllu marklausa. Síðan hefur
þegar umkóðað hluta af klám-
myndskeiðum sínum sérstaklega
fyrir iPad og HTML5. Ef farið er á
myndskeiðshluta síðunnar má lesa
þessi skilaboð: „UPDATE: Welcome
to our iPad site. We are now
re-encoding our video archive to
make all our videos iPad compatible.
Please send us feedback.“
LOKA YOUTUBE
OG FACEBOOK
Stjórnvöld í Pakistan hafa lokað fyrir
aðgang almennings í landinu að
YouTube og Facebook. Ástæðan er
birting efnis á vefsvæðunum sem
stjórnvöld túlka sem guðlast en á
báðum síðunum má finna
myndbirtingar af Múhammeð
spámanni en slíkt gengur í berhögg
við túlkanir íslamstrúarmanna á
Kóraninum. Aðgangur að Wikipedia
og ljósmyndasíðunni Flickr hefur að
auki verið takmarkaður í Pakistan.
DEILISÍÐA HVERF-
UR... TÍMABUNDIÐ
The Pirate Bay, ein stærsta deilisíða
heims fyrir ólöglegt niðurhal, hvarf
sjónum netverja á dögunum eftir að
nokkur bandarísk kvikmyndaver
unnu dómsmál gegn þýska
fyrirtækinu CB3ROB sem hafði veitt
bandvídd fyrir síðuna. Enginn veit
þó hvar vélbúnaður og gagnagrunn-
ur síðunnar er geymdur og áður en
langt um leið var búið að tengja
síðuna aftur við annan þjónustuaðila
eftir krókaleiðum þannig að ekki var
hægt að rekja hvaða fyrirtæki væri
um að ræða. Hinir sænsku fjórmenn-
ingar sem stofnuðu The Piratebay
voru í fyrra dæmdir í eins árs fangelsi
og til að greiða jafnvirði 3,6 milljóna
Bandaríkjadala í sektir fyrir að veita
aðstoð og aðgengi fyrir ólöglegt
niðurhal á tónlist, kvikmyndum og
sjónvarpsþáttum.
UMSJÓN: PÁLL SVANSSON, palli@dv.is
Þróunarráðstefna Google hófst í vik-
unni en um 5000 manns víðsvegar
að úr heiminum sækja þennan við-
burð. Á fyrsta degi var hulunni svipt
af fyrirætlunum Google um að opna
VP8-afspilunarkóðann (VP8 video
codec) og gera hann frían (open-
source) fyrir alla vafra en Goog-
le hefur gagnrýnt Apple og Micro-
soft undanfarið vegna stuðnings
við H.264-afspilunarkóðann sem er
háður einkaleyfum. Fjárhagslegur
réttur og skilyrði einkaleyfishafa á
H.264 hafa hingað til gert Mozilla og
Opera afhuga því að innleiða stuðn-
ing fyrir þetta sniðmát í vafra sína.
Sameiginlegur staðall
Skortur á fríum og öflugum afspil-
unarkóða hefur orðið þess valdandi
að vafraframleiðendur hafa ekki get-
að komið sér saman um einn staðal
fyrir myndskeið á vefnum. Sameig-
inlegur staðall fyrir myndskeið þýðir
í raun að allir vafrar væru með inn-
byggðan stuðning fyrir þetta snið.
Nú er verið að þróa næstu kynslóð
HTML (HyperText Markup Langu-
age), hins undirliggjandi tungu-
máls vefsins, en markmiðið þar er
einmitt að draga úr þörf fyrir vafra-
viðbætur (plug-ins) eins og Adobe
Flash, Microsoft Silverlight og Sun
JavaFX. HTML5 eins og þessi upp-
færsla tungumálsins verður nefnd
býður uppá ýmsa nýja möguleika
fyrir myndskeið og því mikilvægt að
finna opinn, frían og sameiginlegan
afspilunarkóða fyrir hljóð og mynd.
WebM
Google, ásamt Mozilla og Opera,
kynnti á ráðstefnunni WebM, snið-
mát sem sameinar í einum pakka
VP8-kóðann fyrir myndskeið og Ogg
Vorbis-kóðann fyrir hljóð. Vafra-
framleiðendurnir Mozilla (Firefox,
Flock og Camino) og Opera hafa
þegar gert tilraunir með stuðning
við WebM fyrir vafra sína en hljótt
hefur verið í herbúðum Apple og
Microsoft. Önnur mikilvæg fyrirtæki
hafa einnig lýst yfir stuðningi við
WebM, meðal annars Adobe, sem
þegar hefur hafist handa við inn-
byggðan WebM stuðning fyrir Flash.
YouTube sem er í eigu Google hef-
ur þegar innleitt stuðning fyrir VP8
og Android-stýrikerfi fyrirtækisins
verður uppfært á síðari hluta ársins
með VP8 í huga. Chrome-vafrinn
frá Google mun að sjálfsögðu einnig
styðja WebM.
Allt frá því Google keypti On2 í
fyrra, fyrirtækið sem þróaði VP8-
kóðann, hafa menn velt vöngum yfir
því hvort Google myndi gera þennan
kóða opinn og frían. VP8 er talið vera
sambærilegt við H.264-sniðmátið að
gæðum.
56 FÖSTUDAGUR 21. maí 2010 HELGARBLAÐ
Stuðningur Apple og Microsoft við H.264-myndskeiðs-sniðmátið hefur orðið þess vald-
andi að vafraframleiðendur hafa ekki getað komið sér saman um einn staðal fyrir afspil-
un á myndskeiðum í HTML5, næstu uppfærslu HTML-tungumálsins. Google, Mozilla og
Opera hafa nú tekið höndum saman um WebM, frítt og opið sniðmát fyrir hljóð og mynd.
OPIÐ OG FRÍTT
FYRIR HTML5
Chrome, Opera og Mozilla
Mozilla (Firefox, Flock og Camino) og
Opera hafa þegar gert tilraunir með
stuðning við WebM fyrir vafra sína.
Opið og frjálst Skortur á fríum og öflugum
afspilunarkóða hefur orðið þess valdandi að
vafraframleiðendur hafa ekki getað komið sér
saman um einn staðal fyrir myndskeið á vefnum.