Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Blaðsíða 29
21. maí 2010 FÖSTUDAGUR 29 Pappírs-Persi FÖSTUDAGUR n Kimmo á NASA Að hlusta á Kimmo Pohjonen er stórbrotin upplifun sem umbyltir öllum hugmyndum um hvernig harmonikka  hljómar. Listamaðurinn Kimmo Pohjonen verður með tónleika á NASA á föstudagskvöldið klukkan 21.00 í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Miðaverð er 2.900 krónur. n Gítarleikur í salnum Að hlusta á Kimmo Pohjonen er stórbrotin upplifun sem umbyltir öllum hugmyndum um hvernig harmonikka  hljómar. Listamaðurinn Kimmo Pohjonen verður með tónleika á NASA á föstudagskvöldið klukkan 21.00 í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Miðaverð er 2.900 krónur. n Íslenskt á Spot Að hlusta á Kimmo Pohjonen er stórbrotin upplifun sem umbyltir öllum hugmyndum um hvernig harmonikka  hljómar. Listamaðurinn Kimmo Pohjonen verður með tónleika á NASA á föstudagskvöldið klukkan 21.00 í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Miðaverð er 2.900 krónur. LAUGARDAGUR n Greifarnir í Sjallanum Það verður klikkað Greifaball í Sjallanum á laugardagskvöldið. Greifarnir hafa sjaldan klikkað og hvað þá þegar þeir eru á heimavelli fyrir norðan. Fullyrt er að þeir hafi aldrei verið í betra formi þannig það er um að gera fyrir Norðlendinga að skella sér. n Afmæli á 800 800 Bar á Selfossi fagnar tveggja ára af- mæli sínu á laugardagskvöldið. Þá treður upp ein allra vinsælasta hljómsveit síðari tíma á Íslandi, Skítamórall. Nóg verður af fríum drykkjum í boði Vífilfells. Húsið opnað klukkan 23.00 en það er átján ára aldurstakmark. n Nesball Það verður miklu tjaldað til í Féló á Nesinu á laugardagskvöldið. Ingó og Veðurguðirnir leika fyrir dansi fram undir morgun og þjálfari Gróttu í fótbolta, Ás- mundur Haraldsson, fer fyrir Nesvinum sem hita upp. Forsala aðgöngumiða fer fram á skrifstofu Gróttu fram til 21. maí. n Óli Ofur á NASA Óli Ofur er hvað þekktastur fyrir að spila teknó, hústónlist og ýmsa tónlist í þeim gera. Það sem fæstir vita þó er að Óli Ofur er algjör diskókall. Hann verður með dúndrandi diskóball á NASA á laugardagskvöldið en þar fá fyrstu píurnar sem mæta frían drykk. Hvað er að GERAST? EINN BRANDARI Í LOKIN Prince of Persia er enn ein sumar- myndin úr smiðju Jerrys Bruckheim- er, sem undanfarin ár hefur herjað á kvikmyndagesti, meðal annars með Pirates of the Caribbean-myndunum. Hér er einnig byggt á öðru efni, nú vinsælum tölvuleikjum. Eins og svo oft áður eru væntingarnar töluverðar. Við fylgjumst með ungum prinsi sem kemst fyrir tilviljun yfir rýting sem býr yfir dularfullum mætti. Ásamt prinsessu nokkurri reynir hann að koma rýtingnum í skjól áður en hann kemst í rangar hendur. Jake Gyllenhaal veldur töluverð- um vonbrigðum í titilhlutverkinu. Sjarminn sem hann hefur venjulega yfir að ráða er hvergi sjáanlegur og Gemma Arterton er litlu skárri sem mótleikkona hans. Pappaspjöld af þeim hefðu líklega skilað sömu út- komu. Það er þó ekki einungis við þau tvö að sakast því handritið býður ekki upp á neinar flugeldasýningar þegar kemur að persónusköpun. Samtöl- in eru sömuleiðis þvinguð og óeðli- leg, og hafa oftast þann eina tilgang að útskýra aðstæður fyrir áhorfendum á óþarflega skýran hátt. Gamansama hliðin, sem er bráð- nauðsynleg í myndum sem þessari, byggist hér aðallega á fyrirsjáanlegum „hnyttnum“ tilsvörum og uppskera ekki mikinn hlátur. Alfred Molina ger- ir þó sitt besta og á nokkrar skemmti- legar innkomur í hlutverki sínu. Gísli Örn Garðarsson sést í tveimur eða þremur atriðum og skilar nokkr- um dæmigerðum illmennafrösum ágætlega. Hlutverk hans er þó mun minna en gefið var í skyn í íslenskum fjölmiðlum. Tölvubrellurnar eru eins og við var að búast tilkomumiklar og sést það til dæmis vel í lokasenunni. Bardagaat- riðin eru hins vegar stórfurðulega út- færð, krydduð með illa gerðum slow- motion effekt. Útlit myndarinnar er sömuleiðis frekar einhæft og líta flest- ir út fyrir að vera nýkomnir úr brúnku- meðferð, svo sterkur er appelsínuguli liturinn í myndinni. Þegar öllu er á botninn hvolft kem- ur í ljós að Prince of Persia stenst eng- an veginn væntingar. Meðalmennsk- an er í fyrirrúmi og metnaður lagður í kolranga hluti. Þegar best hefði ver- ið að leggja áherslu á að skila sögunni vel frá sér og skapa skemmtilega kar- aktera var orkunni var eytt í tækni- brellur sem allir hafa séð áður og til- gerðarlegar hasarsenur. Jón Ingi Stefánsson ...myndinni Robin Hood Engin klisja bara forsaga Hróa í epísku máli. ...leikritinu glerlaufunum Snyrtilega unnin sýning af leikstjóra og leikendum. ...myndinni Food Inc. Ein albesta heimildamynd sem gagnrýn- andi hefur séð í langan tíma. ...myndinni The Back- up Plan Ævintýralega fyrirsjáanleg, ófyndin og ósniðug. ...leikritinu Ódauðlegu verki um stríð og frið Vitsmunalegt og einlægt, látlaust og fallegt. ...myndinni Burma VJ Mögnuð mynd með „lífs- hættulegum“ myndskeiðum. PRINCE OF PERSIA Leikstjóri: Mike Newell. Aðalhlutverk: Jake Gyllenhaal, Gemma Arterton, Ben Kingsley. KVIKMYNDIR Prince of Persia Meira að segja plakat myndarinnar er ljótt. á hana. „Ég get þetta alveg. En það er ekkert í hjarta mér sem kallar á mig þegar kemur að söngleikjum.“ Æfingum púslað saman Vegna þess að Kristján er búsettur er- lendis hefur það krafist góðs skipu- lags og óhefðbundins æfingaplans að undirbúa sýninguna. „Það eru næst- um því tvö ár síðan við byrjuðum. Út af því að hann býr úti höfum við þurft að klípa viku hér og viku þar,“ en auk Kristjáns eru allir aðir sem að sýning- unni koma að sinna öðrum verkefn- um af fullum krafti. Ólafía er til dæmis fastráðin leikkona hjá Þjóðleikhúsinu og hefur verið það frá árinu 1991. „Við fórum til dæmis út til Danmerkur að æfa síðasta sumar. Þá vorum við í nokkrar vikur og æfðum í sýningar- húsnæðinu hans í Vordingborg.“ Eftir miklar æfingar og mikinn spuna varð loksins til handrit fyr- ir verkið. „Valur og Ilmur settu allt saman sem við höfðum verið að gera og bjuggu til gott handrit. Svo þegar kom að því að lesa það saman notuð- um við Skype. Ég var alveg hissa á því hvað það virkaði vel. Það var bara al- veg eins og hann væri þarna með okk- ur. Hann á skjánum hjá okkur og við hjá honum.“ Eins og Ólafía hefur komið inn á er hér á ferðinni frumlegt og skemmti- legt verk en hún vonar að það skili sér til áhorfenda. „Við erum búin að skemmta okkur svo ótrúlega vel. Ég vona að það skili sér út í sal og ég er mjög vongóð um það. Til dæmis sagði prestur sem kom á prufusýningu hjá okkur að þetta hefði bjargað degin- um hans. Manni þykir ótrúlega vænt um að heyra það. Svo voru tvær aðr- ar konur sem sögðust vera til í allt eftir að hafa séð þetta. Þetta er svona gleði- pepp, þessi sýning.“ Svartur maður Hópurinn sem kemur að sýning- unni hefur rætt þann möguleika að sýna verkið víðar en bara á Listahá- tíð þar sem settar verða upp sjö sýn- ingar. „Við höfum bæði rætt mögu- leikann á að fara með sýninguna á flakk um landið og eins að sýna hana úti í Danmörku. Það gæti samt verið vandasamt að sýna hana úti á landi því það er ekki hægt að vera með sýninguna á hefðbundnu sviði.“ Ólafía er ekki alls ókunn því að sýna með Kristjáni í Danmörku því hún var gestaleikari í verkinu hans Big Wheel Café. „Þar lék ég svartan karl- mann. Það var svolítið sérstakt. Það sló niður í mig þessari hugmynd. Að ég ætti að vera svartur maður. Hár- og sminkdeildin bjó til gervi handa mér og Helga Stefánsdóttir fann svo dás- amlegan búning á mig.“ Ólafía náði að fara á eina sýningu og æfa atriði sitt um tæpa þrjá tíma áður en hún steig á svið. „Það voru nokkur svona göt í sýningunni þar sem var pláss fyrir aukaleikara en það hafa aðrir leikarar tekið þátt í þessar sýningu. Til dæmis Nicolaj Kopernik- us sem lék í þáttunum Forbrydelsen.“ Skrifar kvikmyndahandrit Eins og áður kom fram hefur Ólafía verið fastráðin hjá Þjóðleikhúsinu í tæp tuttugu ár. Hún hefur tekið þátt í ótal mörgum sýningum á þeim tíma en ekki er langt síðan hún hreppti Grímuverðlaunin fyrir hlutverk sitt sem Ása í Pétri Gaut. Undanfarið hef- ur hún svo leikið í Gerplu eftir Halldór Laxness. „Við erum nýhætt að sýna það þar sem eitt okkar þurfti að fara til útlanda. En það hentaði líka ágætlega að fara í frí með það núna og svo hefj- ast sýningar aftur í haust.“ Ólafía hefur í nægu að snúast en hún hóf nýlega æfingar á leikriti sem hefur vinnuheitið Finnski hesturinn. „Það er nú ekki búið að ákveða nafn- ið endanlega en þetta er finnskt leik- rit og María Reyndal leikstýrir. Það verður sýnt í haust. Svo er það Sumar- landið í ágúst,“ segir Ólafía sem leikur í myndinni en það er Grímur Hákon- arson sem leikstýrir. Ólafía hefur undanfarin ár brugð- ið sér í hlutverk karlmanns ásamt Halldóru Geirharðs og fleiri lands- þekktum leikkonum. Þær Ólafía og Halldóra hafa verið að skrifa kvik- myndahandrit byggt á þessum per- sónum og eru langt komnar með það. „Við erum komnar vel á veg með þetta. Við fengum styrk til þess að skrifa handritið og erum að finna okk- ur tíma inni á millri annarra verkefna til þess að sinna þess.“ En hvað er það að lokum sem stendur upp úr þegar Ólafía hugs- ar um sýninguna Af ástum manns og hrærivélar? „Það er aðallega hvað við fjögur erum búin að hlæja mikið,“ segir hún en upplýsingar um sýning- ardaga- og tíma má finna á listahatid. is. asgeir@dv.is ÆFÐU Í GEGNUM SKYPE
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.