Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Qupperneq 28
Jimmy Monroe (Bruce Willis) og Paul Hodges (Tracy Morgan) eru afar týp- ískir félagar í lögreglunni í New York. Þeir eru sprelligosarnir á stöðinni og beita óvenjulegum aðferðum við yf- irheyrslur. Þeir fara ekki sömu leið og aðrir. Þegar þeim er vikið frá störfum tímabundið vegna óheppilegs atviks fara vandamálin af stað. Monroe þarf að greiða fyrir brúðkaup dóttur sinn- ar en á ekki fyrir því. Á sama tíma vill stjúppabbi henn- ar borga fyrir það en þeim kemur vægast sagt illa saman. Þegar Mon- roe ætlar síðan að selja verðmæta hafnaboltamynd til þess að borga fyrir brúðkaupið en henni er stolið af smákrimma, leikinn af Sean Willi- am Scott (Stifler úr American Pie) og fer atburðarás af stað sem leiðir þá félagana hingað og þangað og lenda þeir í ýmsum uppákomum. Bruce Willis er töffari og er feng- inn inn í myndir sem slíkur. Í Cop Out tekst honum að vera ekkert töff þrátt fyrir að reyna gífurlega mik- ið og kemur það virkilega niður á myndinni. Honum er líka vorkunn að leika með Tracy Morgan sem er nákvæmlega ekkert fyndinn og það er svo sannarlega staðfest í þessari mynd. Söguþráðurinn er einfaldur og leikstjórnin þannig séð ágæt enda Kevin Smith á bak við myndavélina. Aftur á móti á þetta að vera gaman- mynd en hvernig getur það verið þegar maður hlær ekki einu sinni, jú, bíddu, einu sinni, það síðasta sem gerist í myndinni er fyndið. En að bíða ríflega eina og hálfa klukku- stund eftir því var ekki þess virði. Ótrúlegt en satt var Cop Out von- brigði. Ég bjóst við litlu en fékk enn minna. Það er alltaf vont. Tómas Þór Þórðarson BROADWAY BREYTT Í HIMNARÍKI Techno.is heldur hvítasunnupartí á Broadway á sunnudagskvöld þar sem D. Ramirez spilar. Kvöldið verð- ur í anda Sensation White þar sem Broadway verður breytt í himna- ríki. Klæðnaðarkóðinn er einfaldur: hvíti liturinn verður að vera ráðandi. Sensation-kvöldin úti í heimi eru þekkt sem einhver allra bestu dans- kvöld sem haldin hafa verið, segir í tilkynningu. Sjálfur D. Ramirez tryggir að kvöldið nái hámarksvænt- ingum en hann er mörgum kunnur fyrir remix sitt af laginu Yeah Yeah Yeah með Bodyrox. Miðasala er í N1og kostar venjulegur miði 2.999 krónur. UM HELGINA SKJALDBORG SKOLLIN Á Heimildamyndahátíðin Skjald- borg verður haldin á Patreksfirði um helgina, hvítasunnuhelgina, eins og venjan er. Um þrjátíu íslenskar heimildamyndir verða sýndar þar. Heiðurs- gestur í ár er færeyska kvikmyndagerðarkonan Katrín Ottarsdóttir. Hún útskrifaðist frá Danska kvikmyndaskólanum árið 1982 og á meðal þekktari mynda Katrinar eru Atlantic Rhapsody og Bye Bye Bluebird sem hlaut hin eftirsóttu Tiger-verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Rotterdam. NÝTT ÍSLENSKT DANSVERK Glænýtt íslenskt dansverk, Kyrrja, var frumsýnt á Norðurpólnum, nýju leikhúsi á Seltjarnarnesi, í gær, fimmtudag. Önnur sýning er í kvöld og svo verða að minnsta kosti fjórar sýningar næstu tvær helgar. Höfundur er Ragnheiður Bjarnarson en þetta er henn- ar fyrsta verk. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Ragnheiður unnið við danslistina í fjöldamörg ár. Hún er meðlimur í danshópn- um Íslensku hreyfiþróunarsam- steypunni en hópurinn var til- nefndur til Grímunnar á síðasta ári. Miðaverð á Kyrrju er 1.800 krónur, tilboðsverð núna er 1.500 kr. Miðapantanir í síma 772 5777 og á midi.is. 28 FÖSTUDAGUR 21. maí 2010 EINN BRANDARI Í LOKIN VILLIDÝR / PÓLITÍK TIL AKUREYRAR Uppistandssýningin Villidýr / Pól- itík hefur lokið göngu sinni í bili í Borgarleikhúsinu. Móttökur áhorf- enda og gagnrýnenda við sýningu Radíusbræðranna Davíðs Þórs og Steins Ármanns voru það góðar að ákveðið hefur verið að taka upp þráðinn í haust og halda sýningum áfram þegar Borgarleikhúsið kemur úr væntanlegu sumarfríi. En áður en að því kemur verða tvær sýningar á Akureyri í næstu viku, nánar tiltekið í samkomuhúsi Leikfélags Akureyrar á fimmtudag og föstudag. Miðasala er hafin á midi.is og hjá LA í síma 460 0200. COP OUT Leikstjóri: Kevin Smith Aðalhlutverk: Bruce Willis, Tracy Morgan, Sean William Scott, Kevin Pollack, Adam Brody KVIKMYNDIR Ekki aftur Það er vonandi að Tracy Morgan og Bruce Willis vinni ekki meira saman. „Þetta hefur fyrst og fremst verið ein- staklega skemmtilegt verkefni og ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í því,“ segir Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona um sýninguna Af ástum manns og hrærivélar sem frumsýnt var á Listahátíð í Reykjavík í gær. Ásamt Ólafíu fer Kristján Ingi- marsson með aðalhlutverk í sýning- unni en hún er byggð á hugmynd Vals Freys Einarssonar sem leikstýrir verkinu og Ilmar Stefánsdóttur lista- konu sem sér um leikmynd og bún- inga. Kristján er búsettur í Danmörku og mjög önnum kafinn þar og því var vandasamt að finna æfingatíma fyr- ir verkið. Sýningin var því ein tvö ár í vinnslu en meðal annars fóru æf- ingar fram í gegnum vefsamskipta- forritið Skype. Alls verður verkið sýnt sjö sinnum á hátíðinni en hópurinn hefur viðrað þær hugmyndir að setja verkið jafnvel upp aftur síðar meir. Alltaf að breytast „Það breyttist aðeins í dag,“ seg- ir Ólafía spurð að því á frumsýning- ardaginn hvort verkið væri klappað og klárt fyrir kvöld. „Þetta er þannig leikrit að það má í raun breyta þessu endalaust.“ Ólafía er ekkert sérstak- lega hrifin af því að setja sýninguna í einhvern ákveðinn flokk enda sé erfitt að segja hvað sé hefðbundið og hvað ekki þegar kemur að sviðslistum. „Ef- laust finnst þó einhverjum þetta vera óhefðbundin sýning.“ Þá vill hún heldur ekki gefa of mik- ið upp um söguþráð verksins. „Það er erfitt að fara út í hann án þess að segja of mikið. Verkið fjallar um hjón sem vinna, leika sér og keppa saman.“ Sem fyrr sagði er verkið byggt á hugmynd Vals Freys og Ilmar en und- ir það síðasta hefur Davíð Þór Jóns- son einnig unnið að tónlist verksins. „Ilmur hefur verið að vinna með sína myndlist þar sem hún hefur verið að snúa heimilistækjum við og ég kem svo inn í þetta sem venjulegur leik- ari. Kristján er svo náttúrulega mikill hreyfilistamaður og hefur þróað list sína mikið með hlutum, dansi, lát- bragði og fleiri þáttum. Þessu er svo öllu hrært saman.“ Ótrúlegur á sviði Kristján hefur verið búsettur í Dan- mörku frá árinu 1992. Hann hefur getið sér gott orð í sviðslistum í Dan- mörku sem og hér heima. Kristján er fyrst og fremst leikari en hann hef- ur, eins og Ólafía tekur fram, þróað list sína með ýmsum þáttum eins og dansi, látbragðsleik, fimleikum og slapstick svo fátt eitt sé nefnt. Hann er þekktur fyrir mikla orku og hreint út sagt magnaða sviðsframkomu. „Hann er náttúrulega alveg stór- kostlegur,“ segir Ólafía um samstarfs- mann sinn. „Alveg sérstakur. Bara hvernig hann hreyfir sig og lítur út hreinlega.“ Ólafía kynntist Kristjáni fyrst fyrir um fimm árum þegar hann kom hingað til lands með sýninguna Listin að deyja. „Ég hafði bara aldrei séð annað eins. Okkur langaði svo mikið að vinna saman og í kjölfarið vorum við eitthvað að bauka og ekki að bauka. Svo bauð Valur mér að vera með í þessari sýningu og þá gafst okk- ur tækifæri til þess.“ Þar sem leiklist Kristjáns er mjög líkamleg hefur reynt meira á Ólafíu en í flestum sýningum sem hún hef- ur tekið þátt í undanfarin ár. „Ég hef reynt að teygja mig til hans og það hef- ur verið svaka púl. Allavega púl fyrir mig. Það er mikið dansað og sungið en ég hef ekki verið mikið í því í gegn- um tíðina.“ Ólafía hefur haft ótrúlega gaman af þessari tilbreytingu þó söng- leikir séu ekkert sem kalli sérstaklega ÆFÐU Í GEGNUM SKYPE Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Kristján Ingimarsson leika aðal- hlutverkin í sýningunni Af ástum manns og hrærivélar sem frumsýnd var á Listahátíð í Reykjavík í gær. Ólafía segir hreint magnað að starfa með Kristjáni sem er þekktur fyrir að leika ótrúlegustu kúnstir á sviði. Þar sem hann er búsettur í Dan- mörku þurftu þau að nýta sér nútímatækni við æfingar. Ólafía og Kristján Af ástum manns og hrærivélar. Sjö sýningar Á Listahátíð í Reykjavík.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.