Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 21. maí 2010 FRÉTTIR Undir lok febrúar urðu foreldrar fjögurra ára stúlku vitni að ítrek- uðum „læknisleikjum“ stúlkunn- ar með bróður hennar sem er jafn- gamall. Foreldrarnir segja að bæði börnin hafi viðurkennt að leikirn- ir væru að frumkvæði stúlkunnar. „Í kjölfarið spurði ég dóttur mína hvort einhver hefði gert svona með henni. Hún nefndi afa sinn sem hún hitti reglulega á þessum tíma. Hún sagði að hann kitlaði sig og gerði fleiri hluti sem hún vildi ekki segja frá,“ segir móðirin, en nafn henn- ar verður ekki nefnt í viðtalinu með hagsmuni barnsins að leiðarljósi. Mánuður leið Morguninn eftir hringdi móðirin í barnaverndarnefnd Reykjavíkur og tilkynnti málið. „Þar var mér sagt að málið yrði tekið fyrir þann 1. mars á fundi barnaverndarnefndar og í kjölfarið send tilvísun um málið til Barnahúss. Daginn eftir hringdi manneskja frá barnavernd sem sagði mér að hún hefði ekki tekið niður nægilega ítarlegar upplýsing- ar um málið og þyrfti meðal annars nafn meints geranda,“ segir móð- irin en það var ekki fyrr en tæpum mánuði síðar sem hún var kölluð til viðtals hjá barnaverndarnefnd. Sama dag var málið sent til Barna- húss og stúlkan var kölluð til viðtals viku síðar. „Þetta voru rosaleg vonbrigði hvernig málið var unnið,“ segir móðirin. „Biðtíminn var verstur og þegar ég áttaði mig á því að þetta væri alltof langur tími varð ég mjög reið. Dóttir mín lokaðist alveg og vildi ekkert tala um þetta þar sem tíminn sem leið var alltof langur. Ég treysti bara á kerfið og hélt að þetta ætti að vera svona.“ Lítur málið alvarlegum augum Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, lítur málið al- varlegum augum. Hann segir þó að hann geti ekki tjáð sig um það efn- islega. „Þetta mat má ekki tefjast og það er náttúrulega ótækt ef foreldrar sem hafa samband við barnavernd, jafnvel ítrekað, og það gerist ekk- ert í málinu svo dögum eða vikum skiptir. Það er ekki ásættanlegt und- ir neinum kringumstæðum.“ Mál geta skaðast „Almennt skiptir það mjög miklu máli að barn sem greinir frá kynferð- isofbeldi eigi möguleika á því að tjá sig sem fyrst hjá fagfólki. Þeim mun lengri tími sem líður, þeim mun erf- iðara er fyrir barnið að muna atvik og það getur komið verulega niður á rannsóknarhagsmunum. Mál geta skemmst í vinnslu ef það líður of langur tími þangað til barnið kemst undir hendur fagfólks til þess að kalla fram frjálsan framburð barns- ins,“ segir Bragi og nefnir sérstaklega að ef framburður barnsins er mjög skýr sé málinu strax vísað til lögreglu. Dóttirin lokaði sig af Þegar móðirin var kölluð í viðtal hjá barnavernd var henni ráðlagt að ræða málið ekki að fyrra bragði við dótturina. „Hún ýjaði að þessum hlutum nokkrum sinnum, en varð svo kjánaleg þegar ég reyndi að fá hana til að tala meira,“ segir móð- irin sem einnig var ráðlagt, þegar ljóst var að stúlkan færi í viðtal hjá Barnahúsi, að hvetja stúlkuna til að segja frá því sem afinn hefði gert henni. „Dóttir mín sagðist ekki ætla að segja þessari konu neitt og það varð raunin. Í viðtalinu sagði hún að afi hennar hefði ekki gert neitt og hún reyndar svaraði því líka þannig til að hún vissi ekki hvort hún ætti að fara í sokka eða skóna á undan og hún sagðist ekki vita hvaða dag hún ætti afmæli. Þetta er mjög skýr stelpa og þessa hluti veit hún, sem segir mér að hún hafi lokað sig af.“ Of langur tími leið Starfsmaður Barnahúss hafði sam- band við móðurina stuttu eftir við- talið við stúlkuna þar sem starfs- maðurinn var ósáttur við hve langan tíma það tók hjá barnavernd að vísa málinu til Barnahúss. „Kon- an í Barnahúsi sagði mér að þessi töf á málinu hefði getað skemmt málið þar sem um svo ungt barn væri að ræða,“ segir móðirin en í tölvupóst- skeyti frá starfsmanninum til móð- urinnar segir orðrétt: „Þetta er of langur tími sem þarna líður og getur útskýrt hvers vegna stúlkan tjáði sig ekki í viðtalinu enda mikilvægt að ræða við börn strax.“ Bragi ítrekar að hann geti ekki tjáð sig um þetta einstaka mál. „Ég get hins vegar sagt að það er til skoð- unar hjá Barnaverndarstofu hve langur tími líður frá því tilkynnt er um kynferðisbrot hjá barnavernd- arnefndum og þar til málinu er vís- að áfram í Barnahús. Því miður eru margar vísbendingar sem við höf- um fengið um að það kunni að líða óhóflega langur tími í allnokkrum málum og þau erum við að rann- saka núna,“ segir Bragi og býst við niðurstöðu eftir tvær vikur. Hann segir að í einstaka tilfellum geti ver- ið ástæður til að bíða með mál. „Sér- staklega ef framburður barnsins er óskýr og óljós. Í þeim tilvikum getur verið rétt að hinkra og leyfa barninu að finna að því sé trúað og sé óhætt að tjá sig. Barnið geti þá gengið út frá því sem vísum hlut að því sé trú- að og á það sé hlustað.“ Mjög reið Móðirin er hrædd um dóttur sína og segir verst að vita ekkert hvað hafi verið gert við hana. „Ég veit ekk- ert hvað gerðist og það eina sem ég veit er að það var eitthvað sem afi hennar gerði við hana. Ég er svo reið og finnst það með ólíkindum að ef slæm vinnubrögð barnaverndar- nefndar hafa orðið til þess að ekki sé hægt að rannsaka málið.“ Foreldrar fjögurra ára stúlku sem tilkynntu grun um kyn- ferðislegt ofbeldi gegn henni biðu í mánuð eftir viðbrögðum frá barnaverndarnefnd Reykja- víkur. Mál sem þessi geta skaðast mikið ef of langur tími líður frá tilkynningu og þar til rætt er við meint fórnarlamb. Forstjóri Barnaverndarstofu lítur málið alvarlegum augum og segir að nokkur mál af þess- um toga séu nú til skoðunar. JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is „DÓTTIR MÍN LOKAÐI SIG AF“ Mál geta skemmst í vinnslu ef það líður of langur tími þangað til barnið kemst undir hendur fagfólks til þess að kalla fram frjálsan framburð barnsins. Forstjórinn Bragi Guðbrandsson segir að mál barna sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi þurfi að komast strax í vinnslu. Hann segist líta það alvarlegum augum að slík mál séu ekki tekin strax til vinnslu hjá barnaverndar- nefndum. MYND KARL PETERSEN Biðin skaðaði Stúlkan sem er fjögurra ára vildi ekkert ræða við starfs- menn Barnahúss þegar hún fór þangað í viðtal, rúmum fimm vikum eftir að málið var fyrst tilkynnt til barnaverndarnefndar Reykjavíkur. MYND PHOTOS.COM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.