Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21. maí 2010 FÖSTUDAGUR 21 Baldur og Júlíus Guðmundssynir Hvar er Mjallhvít? André Bachmann Sævar SverrissonHulda Gestsdóttir Rúnars Júlíussonar minnst í tónum á Kringlukránni 21. & 22. maí. Dansleikur með hljómsveitinni Hvar er Mjallhvít? ásamt André Bachmann. Sérstakir gestir Synir Rúnars þeir Baldur og Júlíus ásamt popparanum síunga Sævari Sverrissyni og Diskódívunni Huldu Gestsdóttur. Dansleikurinn hefst kl. 23:00 mætið tímanlega. Með Stuð Í Hjarta Mark Zuckerberg, eigandi Facebook, er smám saman að breytast í helsta þrjót internetsins, ef marka má sí- aukna gagnrýni á hann í netheimum að undanförnu. Facebook-notandinn Kurt von Lichtenstein, komst í heims- fréttirnar í vikunni eftri að hann sak- aðiZuckerberg um að hafa látið eyða reikiningi sínum áf samskiptavefn- um, eftir að hann gagnrýndi að vefur- inn safnaði upplýsingum um notend- ur. Lichtenstein skrifaði athugasemd í umræðudálk á Facebook síðu Zuck- erbergs sjálfs, þar sem hann gagn- rýndi persónuverndarstefnu Face- book: „Við erum mjög reið yfir því að þegar við eyðum myndum og öðrum upplýsingum út, þá heldur Facebook afriti af öllu saman og býður fyrirtækj- um það til sölu.“ Skömmu síðar hvarf reikningur hans út af samskiptavefnum. Ann- ar notandi sem stofnaði ádeiluhóp á persónuverndarstefnu Facebook, segir forsvarsmenn Facebook hafa eytt honum út vegna þess að þar var að finna óþægilega gagnrýni. Hóp- urinn bar heitið: „Mark Zuckerberg fróar sér yfir stöðuuppfærslum.“ Fac- ebook eyddi hópnum á dögunum á þeim forsendum að hann væri brot á siðgæðisreglum, en það kann að skjóta skökku við, þar sem hann hafði verið inni á vefnum í 4 ár. Vefmiðillinn Gawker, telur þessar aðgerðir Zuck- erbergs vera til marks um að þolin- mæði hans á gagnrýni á stefnu sína, sé á þrotum. Hann noti því völd sín til þess að láta eyða reikningi þeirra sem gagnrýna stefnuna. Facebook-notendur saka Mark Zuckerberg um að þagga niður gagnrýni: Zuckerberg að verða þrjótur netsins Facebook Notendur segja forsvarsmenn Facebook eyða út gagnrýni á samskiptavefinn. Ninjur til bjargar Ræningjagengi valdi verstu mögu- legu staðsetninguna til að ræna varnarlausan einstakling, fyrir fram- an ninja-skóla í Ástralíu. Nemandi við ninja-skólann sá þegar ræningja- gengi réðst á varnarlausan mann fyrir utan skólann og fyrr en varir voru fimm ninjur í fullum skrúða mættar til að hjálpa fórnarlambinu. Ræningjarnir urðu svo skelkaðir að þeir lögðu á flótta undan ninjun- um fimm sem nálguðust þá óðfluga. Kaylan Sato, þjálfari við ninja-skól- ann, sagðist aldrei hafa séð neinn hlaupa svona hratt. Í form eða rekin Bandaríski veitingahúsakeðjan Hooters skipaði þjónustustúlkunni Cassie Smith að grenna sig. Hún íhugar nú að kæra staðinn fyrir að vera með fordóma í garð líkams- vaxtar hennar en hún er 1,73 metrar á hæð og 66 kíló. Yfirmenn hennar gáfu henni líkamsræktarkort og gáfu henni þrjátíu daga frest til að koma sér í betra form. Hún hefur fengið lögfræðing í málið en forsvarsmenn Hooters-veitingastaða segja að þeirra stefna varðandi líkamsform þjónustustúlkna sinna stangist ekki á við lög. Stærsta listaverka- rán sögunnar Hettuklæddur innbrotsþjófur komst undan með fimm meistaraverk að verðmæti áttatíu milljarða króna á fimmtudag af Nýlistasafni Parísar, Musee d’Art Moderne. Verkin sem stolið var eru eftir Pablo Picasso, Fernand Leger, Henri Matisse, Geor- ges Braque og Amedeo Modigliani. Talið er að ránið sé eitt það stærsta í sögunni. Á öryggismyndavélum sést að þjófurinn var einn á ferð og stekk- ur út um brotna rúðu safnsins með verkin. Þótt ótrúlegt megi virðast fór öryggiskerfi safnsins ekki í gang. Ólöglegir í frystigám Fimm ólöglegir innflytjendur sem ætluðu að smygla sér til Bretlands frá Frakklandi aftan í vörubíl með kæligámi læstust inni og urðu að hringja eftir aðstoð. Lögreglan í Calais í Frakklandi hóf mikla leit að vörubílnum eftir að hafa fengið þær upplýsingar að barn væri með í för sem ætti á hættu að frjósa í hel. Fólk- inu tókst á endanum að brjóta sér leið út úr vörubílnum þar sem hita- stigið var allt að mínus 25 gráður. Hópurinn hoppaði um borð í bílinn í Dunkirk í Frakklandi og töldu hann vera á leið til Bretlands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.